Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Njörður P. Njarðvík sendi mér bréf.

"Þú átt öruggleg eftir að verða leiðinlegur þar" sagði sonur minn og hló við þegar að ég sagði honum að ég hafi fengið boð á Þjóðfundinn og að ég hafi síðasta vetur sett nokkra pistla um stjórnarskrána á bloggið mitt.

En hvernig breytingar viljum við sjá á stjórnarskránni?

IMG_0056Jú, skýrari aðskilnað framkvæmdavalds, dómsvalds og löggjafarvalds. Það held ég að flestir eru sammála um. Sérstaklega þarf að halda með einhverjum hætti í eyrun á framkvæmdavaldinu / flokkunum og tryggja sjálfstæði Alþingis. En hvernig?

Eins og ég skil lýðræðisríkin í löndunum í kring um okkur þá eru þessi lýðræðisríki tvenns konar.

Annar vegar eru það konungsríkin og hins vegar lýðveldin.

Þar sem við erum ekki konungsríki þá hljóðum við að horfa til lýðveldanna. Frakkland er þeirra elst auðvita en tungumálið er þröskuldur þannig að ég þekki ekki gjörla til hefða í Frakklandi. Finnar eru okkur nær og Bandaríkin og bandaríska stjórnkerfið þekkjum við en þessi tvö lönd byggja sitt lýðveldi á þessum franska grunni. Öll Austur Evrópa, þar á meðal Rússar tóku upp þetta franska lýðveldið þegar þessi lönd voru endurreist eftir fall kommúnismans fyrir um 20 árum. 

Öll þessi "frönsku" lýðveldi byggja á þjóðkjörnum forseta sem kosinn er í beinni kosningu. Forsetinn skipar ráðherra í ríkisstjórn. Engin hefð er fyrir því í þessum löndum að ráðherrar þurfi endilega að vera þingmenn. Ef þingmenn verða ráðherrar þá er það víða þannig að þá segja þeir af sér þingmennsku. 

Eitthvað er mismunandi hve sterkir þessir forsetar eru. Í Bandaríkjunum er forsetinn mjög sterkur. Svo viðrist einnig vera í Rússlandi.

Eitt eiga þessi lýðveldi sameiginlegt. Forsetinn sem er eini embættismaðurinn sem þjóðin kýs í beinni kosningu og þar með eini fulltrúi þjóðarinnar sem þjóðin getur ráðið og rekið á fjögurra ára fresti. Þetta er valdamesti maðurinn í öllum þessum lýðveldum. Ef þessar þjóðir eru óánægðar með stjórn landsins þá kjósa þær sér nýjan forseta. Eins og við þekkjum frá Bandaríkjunum þá getur forsetinn verið í minnihluta á þingi en hann og ráðherrar hans eigi að síður sinnt störfum sínum með prýði.

Er það þannig lýðveldi sem við viljum? Alvöru franskt, bandarísk, finnskt, rússneskt, pólskt, Evrópskt lýðveldi?

Eigum við að gera það sem öll Austur Evrópa gerði fyrir 20 árum og skipta út okkar gömlu stjórnarskrá sem búið er að afbaka og gjörbreyta með vísan í allskonar "hefðir, venjur og skilning" og taka í staðinn upp vel útfærða nýja Evrópska stjórnarskrá?

Eigum við þá að horfa til þeirrar finnsku, frönsku, pólsku eða bandarísku?

Sjá einnig þessar greinar hér:

Mynd: Gönguleiðin upp Esju.

 


Þau ákváðu að ræna Deutche bank, Seðlabanka Evrópu, HSBC og alla hina bankana.

Í ákærum þingmannanefndarinnar er eingöngu horft til vanrækslu ráðherra í aðdraganda hrunsins. Ekkert er horft til þess sem gerðist í hruninu. Í hruninu stóð ríkið fyrir einu stærsta ráni í Evrópu og það sem ég vil kalla glæp gegn þjóðinni. 

IMG_0054Ekkert er horft til þess að ríkisstjórnin ákvað að tryggja að fullu allar innstæður í bankakerfi sem var 10 sinnum stærra en landsframleiðslan. Þar með talið Icesave. Það að ríkisstjórnin tók ákvörðun um að tryggja að fullu allar innistæður í bankakerfi sem var  10 sinnum stærra en landsframleiðslan er ekkert annað en glæpur gegn þjóðinni.

Þetta er ekkert annað en glæpur gegn þjóðinni því þær ábyrgðir sem verið var að leggja á þjóðina með því að láta hana ábyrgjast þessar innistæður, þær skuldbindingar er tvöfaldar þær stríðsskaðabætur sem lagðar voru á hvern þjóðverja eftir fyrri heimstyrjöldina. Bætur sem þá þóttu óheyrilegar. Hitler komst m.a. til valda í Þýskalandi þegar hann lofaði að hætt yrði að borgar þessar háu bætur.  Uppreiknað þá samsvara stríðsskaðabætur þjóðverja til 4.700 evra á mann. Það sem ríkisstjórnin og Alþingi ætlar Íslendingum að greiða til að tryggja allar innistæður að fullu eru 8.800 evrur á mann. Sjá nánar um þessar tölur hér.

Það var eitt að tryggja þessar innistæður að fullu. Annar var að að taka ákvörðun um að ræna Deutche bank, Seðlabanka Evrópu, Seðlabanka Svíþjóðar,  HSBC bankann, Commercebank og allar hinar fjármálastofnanirnar sem áttu í viðskiptum við gömlu bankana.

Með neyðarlögunum var framið eitt stærsta rán sem framið hefur verið í Evrópu frá dögum sjóræningja soldánanna í Alsír sem rændu Evrópu í um 300 ár, frá 1500 til 1800, þar á meðal Vestmannaeyjar.

Með neyðarlögunum þá var röð kröfuhafa breytt þannig að við uppgjör gömlu bankana er fé sem Deutche bank, Seðlabanki Evrópu og HSBC áttu að fá, það fé er tekið og sett í hendur innistæðueigenda. 

Með þessu ráni þá var Íslandi breytt á einni nóttu úr réttarríki í ræningjabæli.

Að ræna viðskiptavini gömlu bankana með þessum hætti og breyta þjóðinni í ræningjabæli það er ekki bara glæpur gegn þjóðinni, það er einnig glæpur gegn alþjóðasamfélaginu.

Þó ríkisstjórn og Alþingi hafi séð fyrir að fjöldi einstaklinga, félagasamtaka og fyrirtækja myndu tapa stórum hluta af innistæðum sínum, færu bankarnir í þrot, þá var engin ástæða til þess fyrir ríkið að fara út í þjófnað og rán. 

Það var engin ástæða að eyðileggja orðspor Íslensku þjóðarinnar næsta mannsaldurinn með því að ríkið fór í það að ræna fé frá öllum helstu fjármálastofnunum heimsins. Það var engin ástæða til að breyta Alþingi í ræningjabæli þó einhverjir væru að tapa fé. 

Þingvallastjórnin fórnaði orðspori heillar þjóðar og æru elsta samfellt starfandi þings í heimi í þeim tilgangi að tryggja fjármuni auðmanna Íslands.

Er að furða þó Orkuveitan og Landsvirkjun fái hvergi lán? Auðvita þorir engin að lána þessum opinberu fyrirtækum af hættu við að peningunum verði stolið með nýrri lagasetningu frá Alþingi. Sama fólkið er hér meira og minna enn við völd.

Þeir þingmenn og ráðherrar sem ákváðu að ræna þessar erlendu fjármálastofnanir með lagasetningu að næturlagi, tveir þriðju hlutar þessa fólks situr enn á þingi.

Einu sinni þjófur, alltaf þjófur.

Engin sátt verður í þessu samfélagi fyrr en þetta fólk er allt horfið á braut úr trúnaðarstörfum á Alþingi.

Ekkert traust verður hægt að byggja upp, hvorki hér heima né erlendis, fyrr en það fólk sem setti þessi Neyðarlög og stóð að þessu ráni er horfið á braut.

Það er á ábyrgð okkar kjósenda að sjá til þess að slík endurnýjun eigi sér stað sem fyrst.

Að kalla saman Landsdóm og rétta yfir þessum ráðherrum er óhjákvæmilegt skref á þeirri leið.

Sjá einnig: Skjaldborg slegin um stræsta rán Íslandssögunnar.

Mynd: Göngustígurinn upp Esju. 

 


mbl.is „Röng niðurstaða“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar "ræningjalýður" í augum Evrópu?

Ekkert ríki leyfði bankakerfinu sínu að vaxa ríkinu þannig yfir höfðuð að ríkið gat ekki sinnt skyldum sínum sem lánveitandi bankana til þrautavara nema íslenska ríkið.

Ekkert ríki missti allt bankakerfið sitt í gjaldþrot vegna þessarar vanrækslu ríkisstjórnarinnar og eftirlistaðila nema íslenska ríkið.

IMG_4046Ekkert ríki, hvorki í Evrópu né annarstaðar, setti lög eins og neyðarlögin í þeim tilgangi að hafa fé af þeim sem höfðu lánað bönkunum þeirra fjármuni nema íslenska ríkið. 

Öll ríki Evrópu ákváðu að ábyrgjast innistæður í bönkum en það var bara íslenska ríkið sem breytti lögum og reglum í þeim tilgangi að láta erlenda lánadrottna bankana bera stóran hluta af því sem það loforð kostaði.

Þess vegna líta fjölmargir útlendingar á okkur Íslendinga sem "ræningjalýð", því miður. Margir líta svo á að við Íslendingar höfum framið eitt stærsta "rán" í sögu Evrópu þegar við settum neyðarlögin á lánadrottna íslensku bankana.

Og það sem er sárast er að þetta "rán" frömdu ekki einhverjir glæpamenn heldur ríkisstjórn Íslands og Alþingi.

Þess vegna er það svo nauðsynlegt að við losum okkur við það fólk úr öllum opinberum trúnaðarstörfum sem sat í ríkisstjórn og á þing og framdi þennan gjörning, þetta "rán".

Fyrr getum við Íslendingar ekki byggt á ný upp trúnað og komið fram sem trúverðug þjóð en ekki sem "ræningjalýður" gagnvart þjóðum heims.

Sjá einnig greinar:

Neyðarlögin stærsta "rán" í sögu Evrópu?

Skjaldborg slegin um stærsta "rán" Íslandssögunnar. 

 


Neyðarlögin stærsta "rán" í sögu Evrópu?

Var íslenski bankamálaráðherrann undrandi á því að evrópskir ráðamenn voru honum fjandsamlegir eftir að hann og íslenska ríkisstjórnin hafði breytt öllum leikreglum á íslenska fjármálamarkaðnum og framið eitt stærsta "rán" sem nokkurn tíma hefur verið framið í sögu Evrópu?

"Rán" sem fólst í því að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, Þingvallarstjórnin, ákvað að ræna þá banka og fjármálastofnanir sem höfðu átti í viðskiptum við íslensku bankana og höfðu lánað íslensku bönkunum fé. Það fé sem ríkisstjórnin tók með þessum hætti af lánadrottnum gömlu bankana það fé fengu innistæðueigendur í hendurnar.

IMG_4045Með því að breyta lagarammanum á íslenska fjármálamarkaðnum á einum næturfundi í byrjum október 2008 þá var þetta "rán" mögulegt í skjóli þess að Ísland er sjálfstætt ríki og setur sín eigin lög og það er ríkistjórn og Alþingi sem saman framkvæma þetta "rán". Það sem mestu skipti í þeirri breytingu sem gerð var með setningu neyðarlaganna er að innlán voru gerð að forgangskröfu. Það þýðir að þegar þrotabú bankana eru gerð upp þá fá innistæðueigendur allt sitt fyrst. Síðan kemur að öðrum kröfuhöfum.

Þannig voru lögin og reglurnar ekki þegar Deutscke bank, HSBC, Commerce bank og allar hinar fjármálastofnanirnar lánuðu íslensku bönkunum fé. Þvert á móti, þá voru þessi innlán eingöngu tryggð af Tryggingasjóði innistæðueigenda og fjárfesta.

Er að undra þó ráðmenn í Evrópu hafi verið fjandsamlegir við íslenska bankamálaráðherrann eftir að hann og ríkisstjórnin sem hann sat í framdi eitt allra stærsta "rán" ef ekki það stærsta sem framið hefur verið í Evrópu þegar hann og ríkisstjórnin "rændi" á annað þúsund milljörðum frá öllum helstu fjármálastofnunum Evrópu og setti það fé í hendurnar á innistæðueigendum?

Er að undra?

Sjá nánar um stærsta "rán" Íslandssögunnar í þessum pistli hér:

Skjaldborg slegin um stærsta "rán" Íslandssögunnar.

 

Mynd: Meyjarós í Reykjavík.

 


mbl.is Bildt var fjandsamlegur í garð Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjaldborg slegin um stærsta "rán" Íslandssögunnar.

Stærsta "rán" Íslandssögunnar og eitt stærsta "rán" í Evrópu framdi Alþingi haustið 2008 undir forystu ríkisstjórnar Geirs Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.

Stærsta "rán" Íslandssögunnar var framið þegar Þingvallastjórnin ákvað að "ræna" Deutsche bank, HSBC, Commerce bank og alla hina bankana og fjármálafyrirtækin sem höfðu lánað íslensku bönkunum fé.

IMG_4039Þetta "rán" sem Alþingi og íslenska stjórnsýslan framdi var framkvæmt þannig að leikreglum og lögum á Íslandi var breytt á einni nóttu þannig að Íslendingar sem áttu innistæður í íslensku bönkunum þær innistæður ákváðu þingmenn / "ræningjarnir" að tryggja að fullu á kostnað þessara erlendu lánadrottna.

Til þess að hægt væri að trygga íslenskum innistæðueigendum innistæður sínar að fullu ákváðu réttkjörnir fulltrúar almennings á Alþingi að setja hin svokölluð Bráðabirgðalög. Með því var hægt að "ræna" þá banka og fjármálafyrirtæki sem höfðu átt í viðskiptum við íslensku bankana og lánað þeim fé.

Með því að breyta lögum og reglum, lögum og reglum sem var grundvöllur þess að erlendir bankar og fjármálafyrirtæki lánuðu íslensku bönkunum fé og gera innistæður að forgangskröfum þannig að fyrst verða þær greiddar út að fullu áður en byrjað verður að greiða inn á kröfur erlendu lánastofnanna þegar þrotabúa bankana verður gert upp, með þessu þá var Alþingi að fremja eitt stærsta "rán" sem framið hefur verið í Evrópu.

Líkalega þarf að fara aftur til sjóræningjana sem ríktu og stjórnuðu Alsír frá um 1500 og fram yfir aldamótin 1800, þ.e. "Tyrkina" sem rændu og rupluðu Evrópu til að finna samjöfnuð við það rán sem "réttarríkið" Ísland undir forystu Alþingis framdi haustið 2008. Þessi ræningjalýður sem stjórnaði og ríkti í Alsír í nærri 300 ár, þeir komu meðal annars hingað til lands og rændu Vestmannaeyjar. Í heimildum frá Grænlandi er einnig að finna sagnir um komur slíkra sjóræningja til Íslendingabyggðanna á Grænlandi og eru þær taldar ein af orsökunum þess að byggð lagðist þar af. Danir stofnuðu á þessum öldum svokallaðan "Slavekasse" sem allir sjófarendur voru látnir borga í sem nokkurskonar tryggingu þannig að til væri fé í sjóði svo danska ríkið gæti keypt brottnumda Dani heim af Soldánunum í Alsír. Norðmenn fóru heldur ekki varhluta af sjóræningjum frá Alsír, sjá þessa grein hér.

Á sama hátt og þegar ræningjalýður stjórnaði Alsír og stóð fyrir skipulögðum sjóránum urðu þjóðir Evrópu, þá eins og nú, að reiða fram háar fjárhæðir, nú í formi lána frá AGS / Slavekassen, til að tryggja hagsmuni sína, sinna þegna, banka og fjármálafyrirtækja sem "ræningjalýðurinn" sem stjórnar Íslandi er búinn að "ræna" og setja í gíslingu með gjaldeyrishöftum.

Mikil er ábyrgð þeirra "ræningja" sem sátu á Alþingi þegar þessi bráðabirgðalög voru sett.

En íslenskum þingmönnum nægði ekki að "ræna" Deutsche bank, HSBC, Commerce bank og allar hinar erlendu fjármálastofnanirnar til að tryggja hagsmuni íslenskra innistæðueigenda og fjárfesta. Nei það var ekki nóg. Þeir ákváðu líka að "ræna" Íslenska Seðlabankann. Íslenski Seðlabankinn var tæmdur nokkrum vikum eftir hrun. Hver einasta króna, pund, dollar og evra var tekin út úr Seðlabankanum, tæpir 300 milljarðar og settir í hendur þeim fjárfestum sem keyptu bréf í peningamarkaðssjóðum íslensku bankana. Í framhaldi var Íslenski Seðlabankinn lýstur gjaldþrota.

Mikil er ábyrgð þeirra "ræningja" sem gerðu Seðlabankann gjaldþrota með því að tæma hann og afhenda féð fjárfestum sem gömbluðu með sitt fé í peningamarkaðssjóðum gömlu bankana.

En það að "ræna" alla erlenda banka og fjármálastofnanir sem lánuðu gömlu bönkunum og tæma Seðlabankann og setja í gjaldþrot það dugði "ræningjum" á Alþingi ekki. Ekki þegar hagsmunir íslenskra innistæðueigenda og fjárfesta eru annar vegar. Þess vegna var ráðist í það að gera alla íslensku þjóðina ábyrga fyrir því að tryggja allar innistæður að fullu í íslenska bankakerfinu. Engu máli skipti þó bankakerfið væri tíu sinnum stærra en árleg þjóðarframleiðsla. Engu máli skipti þó þjóðin verði þar með að tryggja allar innistæður vegna Icesave og Edge reikninga Landsbankans og Kaupþings. Hér ráða ferð einkahagsmunir, ekki almannaheill.

þegar búið var að "ræna" erlenda lánadrottna gömlu bankana og gera Seðlabanka Íslands gjaldþrota þá skildi það koma í hlut launafólks á Íslandi, bænda, verkafólks og sjómanna að borga það sem upp á vantaði til að bæta að fullu þær innistæður sem íslenskir innistæðueigendur og fjárfestar töpuðu í gjaldþroti íslensku bankana.

Ef Ísland væri réttarríki og þingmenn ekki hagað sér eins og þjófar að nóttu þá hefðu íslenskir innistæðueigendur og fjárfestar tapað 70% til 80% af innistæðum sínum í gjaldþroti bankana.

Mikil er ábyrgð þeirra "ræningja" sem sátu á Alþingi þegar ákveðið var að gera vandamál innistæðueigenda að vandamáli íslenskra launþega og fyrirtækja. Að breyta tapi innistæðueigenda í gjöld á almenning á Íslandi.

Mikil er ábyrgð þeirra þingmanna sem heimiluðu innistæðueigendum að ganga í vasa almennings á Íslandi og sækja þangað það fé sem þessir innistæðueigendur töpuðu þegar bankarnir fóru í gjaldþrot.

Það fé sem innistæðueigendur og fjárfestar töpuðu í gjaldþroti bankana er líklega á milli 1.500 til 2.000 milljarðar. Ríkistjórn Geirs Haarde og þeir þingmenn sem sátu á þingi haustið 2008 þeim tókst að tryggja hag þessara innistæðueigenda og fjárfesta með því að "ræna" erlenda lánadrottna gömlu bankana, "ræna" Seðlabankann og með því að veðsetja almenning og fyrirtækin á Íslandi fyrir afganginum.

Til að standa vörð um þetta mikla "rán" þá var við myndun ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur valin maður sem bankamálaráðherra sem var þá nýhættur í stjórn Félags fjárfesta eftir 8 ára setu.

Til að kóróna herlegheitin kom svo Goðmundur kóngur á Glæsivöllum og lýsti því yfir í frægasta sjónvarpsviðtali eftirstríðsáranna að íslenska "bankaránið" hafi heppnast vel og við Íslendingar myndum hagnast gríðarlega á gjörningnum öllum. Hálf þjóðin og heimurinn allur stóð á öndinni þegar Goðmundur kóngur á Glæsivöllum toppað flesta sjóræningjasoldána þeirra Alsírbúa.

IMG_4041Fátt hefur breyst í aldanna rás. Stórbændur á Norðurlöndunum og soldánarnir í Alsír sendu húskarla sína í ránsferðir um víða veröld hér á öldum áður. Okkar tíma "útrásarvíkingar" eru okkar tíma húskarlar. Okkar tíma "stórbændur" og "soldánar" heita í daga innlánseigendur / fjárfestar / auðmenn og svo aftur ráðherrar.

Hagsmunabandalag okkar helstu stjórnmálamanna og auðmanna hefur breytt okkar samfélagi úr því að vera friðsælt bænda- og fiskveiðisamfélagi í það að vera "ræningjabæli" þar sem lög og réttur skiptir engu máli þegar hagsmunir auðmanna eða okkar æðstu stjórnmálamanna er annars vegar.

Ljóst er að þessi ríkisstjórn hefur slegið skjaldborg um þetta stærsta "rán" Íslandssögunnar og ætlar sér að verja "þjófnaðinn" með öllum ráðum. Í kvöldfréttum fékk bankamálaráðherrann klapp á kollinn frá forsætisráðherra fyrir að standa sig vel í að verja "ránið" og vinna og stuðla að því að í stað ólöglegrar gengistryggingar verði teknir upp okurvextir. Eftir 8 ár í stjórn Félags fjárfesta klikkar bankamálaráðherrann ekki á aðalatriðunum.

IMG_4042Vonandi að komandi Stjórnlagaþing komi á þeim réttarbótum sem þarf þannig að hér komist á svipað réttarríki og aðrar þjóðir Evrópu búa við. Réttarríki þar sem ríkisvaldið kemst ekki árum saman upp með mannréttindabrot og þingmen breyta ekki grundvallarþáttum í lögum samfélagsins á skyndifundum á nóttunni. Samfélag þar sem stjórnvöld og auðmenn í hagsmunabandalagi komast ekki upp með "rán" og "gripdeildir" og hafa ekki umboð til að veðsetja samfélag okkar með þeim hætti sem hér var gert. 

Myndir: Í garði í Reykjavík

 


mbl.is Krafðist skýringa frá Seðlabankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvalfjarðargöngin frá upphafi aldrei uppfyllt alþjóðlegar öryggiskröfur.

Áður en hafist var á gerð Hvalfjarðargangana fór fram lífleg umræða um göngin og gerð þeirra. Í þeirri umræðu bentu fjölmargir á þá staðreynd að þau göng sem til stóð að gera undir Hvalfjörðinn uppfyltu ekki þær öryggiskröfur sem gerðar voru á þeim tíma til slíkra botnganga. Síðan þá hafa þessar öryggiskröfur aukist enn frekar.

Þeir sem stóðu að gerð Hvalfjarðarganga völdu að nota sem forskrift fyrir þessum göngum einhverjar gamlar norskar reglur sem þeir grófu upp. Reglur sem þá þegar voru orðnar úreltar í Noregi. Eftir þessum gömlu úreltu norsku reglum voru göngin síðan gerð. Þess vegna hafa þessi göng aldrei staðist neinar alþjóðlegar reglur sem gilda um öryggismál í svona göngum. 

Vegna þess að menn menn gáfu sér mikinn afslátt frá þessum alþjóðlegu öryggiskröfum þá tókst mönnun að sýna fram á að göng voru ódýrari leið til að þvera Hvalfjörðinn en þvera hann með brú.

Ef göngin hefðu ekki verið gerð í samræmi við löngu úreltar norskar kröfur en miðað við þær alþjóðlegu kröfur sem giltu í Evrópu eða Bandaríkjunum á sínum tíma þá hefði brú verið ódýrari kostur við þverun Hvalfjarðar.

Eftir stendur sú staðreynd að gerð Hvalfjarðarganga er ein misheppnaðasta einkaframkvæmd sem farið hefur verið í hér á landi. Í fyrsta sinn sem öðrum en Vegagerðinni var falin slík jarðgangna- og vegagerð þá fóru þessir "einkaaðilar" og byggðu og hafa rekið verst gerðu og hættulegustu jarðgöng í Evrópu ef ekki í heiminum.

Það að við skulum vera að reka hér í "einkaframkvæmd" einhver hættulegustu jarðgöng í heimi er klúður á borð við það hvernig staðið var að einkavæðingu bankana á sínum tíma.

Að svindla sér undan öryggiskröfum með þessum hætti í þeim tilgangi að spara fé kann aldrei góðri lukku að stýra.

Mikil er ábyrgð þeirra manna sem það gerðu.

Þar sem ég á sínum tíma tók þátt í þeirri líflegu umræðu sem fór fram um gerð Hvalfjarðarganga áður en framkvæmdir hófust þá hefur þessi umræða komið upp nokkrum sinnum á þessu bloggi. Ég vil því benda á eftirfarandi pistla hér á blogginu og á gömlu heimasíðuna mína en þar er að finna þær greinar sem ég skrifaði um málið á sínum tíma:

 http://fhg.blog.is/blog/fhg/entry/822696/

http://fhg.blog.is/blog/fhg/entry/711516/

http://www.simnet.is/fhg/index_files/Page2550.htm

 


mbl.is Unnið að því að bæta öryggið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byggingaiðnaðurinn og mannvirkjagerðin látin taka allt höggið.

Sveitarstjórnir um allt land hældu sér að því fyrir nýliðnar sveitarstjórnarkosningar að hafa skorið niður nær allar verklegar framkvæmdir. Ríkisstjórnin hælir sér af því að hafa skorið niður útgjöld ríkisins um 90 milljarða. Nær allur þessi niðurskurðar er niðurskurður til framkvæmda og viðhalds.

Afrakstur þessa niðurskurðar hefur samfélagð verið að uppskera síðustu misseri með fjöldagjaldþrotum og massífu atvinnuleysi í þessum greinum.

Botnlaus verkefni bíða við hvert fótmál í byggingaiðnaði og mannvirkjagerð. Leið allra landa út úr efnahagssamdrætti og atvinnuleysi er að dæla fjármangi inn í þessar greinar. Með því skapast strax störf og velta í samfélaginu. Þessa leið hafa allar þjóðir farið nema Íslendingar. Þegar kreppir að á Íslandi þá skera opinberir aðilar framkvæmdir niður eins og enginn sé morgundagurinn. Í uppsveiflu á Íslandi bjóða opinberir aðilar endalaust út verkefni eins og engin sé morgundagurinn. Af hverju þarf íslenska stjórnsýslan að gera allt öfugt?

Lífeyrissjóðirnir eru fullir af fé og hafa beðið í rúmt ár eftir að ríkisvaldið eða sveitarfélögin bjóði þeim til samstarfs í einhver af þessum framkvæmdaverkefnum sem liggja á borðum þessara opinberu aðila og gætu skapað fullt af störfum.

Af hverju horfa ráðamenn aðgerðalausir upp á síðustu fyrirtækin á íslenska verktakamarkaðnum segja upp síðasta starfsfólkinu?

Af hverju hafa ráðamenn ekki nýtt þau tækifæri sem eru og hafa verið í boði og skapað hér ný verkefni og ný störf í samstarfi við Lífeyrissjóðina?

Það er ljóst að eitthvað mjög mikið er að í íslenskri stjórnsýslu og það vandamál nær langt út fyrir ríkisstjórnina. 

 

 

 


mbl.is Sextíu sagt upp hjá KNH
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið áfram ótrúverðugustu stofnanir á Íslandi.

Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið voru fyrir tæpum tveim árum staðnar að einhverju ævintýralegasta rugli Íslandssögunnar. Æðstu stjórnendur þessara stofnana á þeim tíma eru nú opinberlega sakaðir um vanrækslu í starfi.

Allt bendir til að núverandi yfirmenn þessara stofnanna muni innan ekki of langs tíma verða sakaðir um, ekki vanrækslu heldur afglöp í starfi.

Ótrúlegt er að þessir menn ætli sér að grípa inn í samninga milli banka og lántakanda og taka sér það vald að breyta ákvæðum samninga milli aðila. 

Ótrúlegt er að fjármálaráðherra bakkar upp þessar áætlanir.

Með því að þvæla ríkinu inn í þessa samninga, þ.e Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið ákvarða aðra vexti á lánasamningunum en um er samið, þetta gæti í versta falli skapað ríkinu bótaskyldu telji lántakendur brotið á rétti sínum og þeir orðið fyrir tjóni vegna þessa inngrips stjórnsýslunnar i þessa lánasamninga.

Í besta falli sleppur ríkið frá þessum inngripi án þessa að verða dæmt bótaskylt.

Eftir standa trausti rúinn Seðlabanki og Fjármálaeftirlit þar sem ekkert virðist hafa breyst frá því löngu fyrir hrun.

Eftir þetta útspil stjórnsýslunar standa viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra veikari en nokkru sinni fyrr.

Það getur aldrei verið stjórnmálamönnum hollt að taka alltaf afstöðu með hagsmunum banka og fjármagnseigenda  gegn hagsmunum almennings. Það kann ekki góðri lukku að stýra.

 


mbl.is Miða við lægstu vexti á hverjum tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pétur Blöndal æfur vegna dóms Hæstaréttar.

Í framhaldi af dómi Hæstaréttar þar sem gengistrygging lána var dæmd ólögleg hafa nokkrir einstaklingar gengið fram með hreint ótrúlegum hætti. 

Fremstur meðal jafningja í þeirri umræðu hefur farið Pétur Blöndal. Hann skammast og rífst yfir því að þessi gengistrygging lána hafi verið dæmd ólögleg og hellir sér yfir þá sem fagna þessari niðurstöðu Hæstaréttar. Hann talar um að lántakendur hugsi bara um naflann á sjálfum sér og svo framvegis.

Pétur Blöndal gleymir eða vill ekki ræða aðal atriði í þessa máls

  • Almenningur á Íslandi var óspurður neyddur til þess með neyðarlögunum sem Alþingi setti að næturlagi í október 2008 að tilstuðlan Péturs Blöndal og félaga  að ábyrgjast allar innistæður í íslenskum bönkum langt umfram það sem lög og reglur gerðu ráð fyrir. Með þessu var almenningur á Íslandi látinn ábyrgjast um 2.000 milljarða hér heima plús það sem kemur út úr Icesave.
  • Með þessum neyðarlögum þá var Pétur Blöndal og félagar að veðsetja Íslensku þjóðina fyrir um 2.000 milljörðum til að tryggja innistæður á Íslandi 100%. Innistæður sem almenningi á Íslandi bar og ber engin skylda til að ábyrgjast.
  • Pétur Blöndal og félagar gerðu sér grein fyrir því þegar bankarnir féllu að allt það fé sem fjármagnseigendur áttu í bönkunum, það fé var horfið, tapa og glatað. 
  • Það er þá þegar myrkraverkin hefjast. Það er þá þegar Pétur Blöndal og félagar byrja að haga sér eins og þjófar að nóttu. Það er þá þegar Pétur Blöndal og félagar ákveða að breyta lögum og reglum og fara í það að "stela" fé til að láta fjármagnseigendur fá.
  • Pétur Blöndal og félagar ákváðu að "stela" fé af lánadrottnum gömlu bankana. Það gera þeir með því að setja neyðarlög sem breyta forgangsröðum kröfuhafa þannig að innistæður verða nú allt í einu í forgangi fram yfir aðrar kröfur þegar bú bankana eru gerð upp.  
  • Pétur Blöndal og félagar ákváðu að "ræna" Seðlabankann öllu því fé sem hann átti enn eftir og setja það fé inn í peningamarkaðssjóði bankana, um 270 milljarða. Þessi "þjófnaður" varð til þess að Seðlabankinn varð tæknilega gjaldþrota. Seðlabankanum og ríkinu og þar með almenningi bar engin skylda að tryggja innlán í þessum peningamarkaðssjóðum.
  • Pétur Blöndal og félagar ákveða síðan að "stela" því sem þá vantar hugsanlega upp á af almenningi á Íslandi með því að gera íslensku þjóðina ábyrga fyrir öllum þessum innistæðum, það er ríkið er látið tryggja allar innistæður 100%.

Þetta nefnir Pétur Blöndal ekki þegar hann rótast yfir því að hugsanlega muni ríkið tapa 100 milljörðum falli nýju bankarnir vegna þess að gengistryggðu lánin reyndust ólögleg. Svo þvaðrar hann um það að orðspor landsins sé í hættu tapi erlendir lánadrottnar fé vegna þessa klúðurs.

Fyrir mér eru þessir 100 milljarðar smámunir miðað við það að Pétur Blöndal og félagar stóðu fyrir því að "ræna" 2.000 milljörðum af lánadrottnum gömlu bankana, Seðlabankanum og almenningi á Íslandi og létu í hendur fjármagnseigenda. 

Pétur Blöndal var tilbúinn að taka þátt í því að "stela" 2.000 milljörðum og láta fjármagnseigendur fá. 

Pétur Blöndal er ekki tilbúinn til að gera neitt fyrir aðra hópa í þessu samfélagi. 

Það lætur ekki að sér hæða það fólk sem situr í dag á þingi í boði bankana.


AGS segir viðskiptaráðherra og seðlabankastjóra að slappa af.

Eftir að hafa lesið þessa frétt af blaðamannafundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, AGS, í dag þá er AGS á mannamáli að segja eftirfarandi:

  • AGS er að segja viðskiptaráðherra og seðlabankastjóra að slappa af.
  • AGS er að segja þessum mönnum að í lýðræðissamfélögum er það dómsstóla að ljúka máli eins og þessu með gengistryggðu lánin, ekki ríkisstjórnarinnar.
  • AGS er að segja að það er í góðu lagi fyrir efnahagslífið á Íslandi þó stór hluti bankana fari aftur í þrot. Þeir einu sem munu tapa á því eru núverandi eigendur bankana, eigendur sem engin veit hverjir eru. Allar innistæður eru tryggðar af ríkinu og engin mun því tapa fé sem þeir eiga í bönkunum þó bankarnir fari í þrot. Þess vegna er í lagi, þjóðhagslega, þó allt eða stór hluti bankana fari aftur í þrot.
  • AGS er að segja að það er í góðu lagi þó tekið sé til í bankakerfinu og þetta allt of stóra bankakerfi sé skorið verulega niður með gjaldþrotum. Það sé bara jákvætt og mun engu breyta fyrir þjóðarbúskapinn. Þó einhverjir bankamenn missi vinnuna þá sé ódýrara fyrir samfélagið að hafa þá á atvinnuleysisbótum skapandi engin verðmæti en á himinháum bankalaunum skapandi engin verðmæti.
  • AGS er að segja að það er jákvætt fyrir þjóðarbúskapinn að fjölskyldurnar í landinu skuli skornar niður úr skuldasnörunni sem þær eru nú í vegna þess forsendubrest sem hér varð vegna þeirrar glæpastarfsemi sem þáverandi og núverandi starfsmenn bankana stunduðu hér um árabil. Þessi skuldaaflausn muni bara hjálpa þjóðinni að ná sér á strik og auka verulega líkurnar á því að þjóðin borgi til taka peningana sem AGS lánaði þjóðinni. Þar með brosa allir hjá AGS og allir hjá vinaþjóðunum sem lánuðu okkur.
  • Hvern varðar um þessa vogunarsjóði sem keyptu skuldatryggingar bankana á sent fyrir dollarann á uppboði í Kauphöllinni í Kaupmannahöfn í febrúar 2009 og eiga í dag þessa banka? Það er ljóst eftir þennan blaðamannafund að AGS hefur meiri taugar til almennings á Íslandi en til eigenda þessara banka.

Í fyrsta sinn frá því AGS fór að hafa afskipti að málum hér á landi er ég sammála því sem AGS er nú að leggja til.

Ég skil vel að AGS hafi hlaupi til og haldið þennan blaðamannafund í snarhasti eftir að þeir fréttu af viðbrögðum viðskiptaráðherra, seðlabankastjóra, bankamanna og margra þingmanna og hvaða tökum þetta lið vill taka á þessum dómi Hæstaréttar rétt eins og hér á landi sé ekki neitt til sem heitir þrískipting valdsins.

Ótrúlegt að það skulu svo eftir allt vera AGS sem er sá aðili sem stendur vörð um fjölskyldurnar í landinu gegn siðblindum bankamönnum og spilltum stjórnmálamönnum sem sitja á þingi í boði bankana.

Hvern hefði grunað að það yrði svo eftir allt AGs sem sem slær skjaldborg um fjölskyldurnar í landinu á sama tíma og stjórnvöld slá, eins og alltaf áður, skjaldborg um fjármálastofnanirnar?

 


mbl.is Kreppunni lokið segir AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband