Er frambjóðandi til Stjórnlagaþings

Í framhaldi af því að ég hef skrifað nokkra pistla á síðustu misserum sem tengjast stjórnarskránni og stjórnskipun Íslands og það að ég var valinn í þetta 1000 manna úrtak sem mun sitja Þjóðfundinn 6. nóvember næstkomandi þá ákvað ég að gefa kost á mér í framboð til stjórnlagaþingsins.

Það er sérstakt og í raun einstakt að fá tækifæri til þess að taka þátt í því að setja þjóðinni nýja stjórnarskrá.

Ég hefði gjarnan viljað taka þátt í því.

Pistlarnir sem ég skrifað og tengjast stjórnskipun Íslands eru hér:

Hef sett upp nýja heimasíðu í tilefni af þessu framboði, sjá:  www.fridrik.info.


mbl.is Skiptar skoðanir um stjórnlagaþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með það. (Flokks)Pólitískt er ég kannski ekki á sömu línu en ég les alltaf bloggið þitt og tel þig eiga fullt erindi á þingið.

Villi (IP-tala skráð) 18.10.2010 kl. 19:48

2 Smámynd: Friðrik Hansen Guðmundsson

Takk fyrir það Villi.

Friðrik Hansen Guðmundsson, 18.10.2010 kl. 20:17

3 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Friðrik Hansen Guðmundsson.

Ég vil byrja á því að þakka þér ánægjuleg samskipti í kringum árinn sem við höfum starfað saman í pólitík. Sem betur fer er ég hættur í mínum flokki. Ég get ekki annað séð að hér skrifar inn á þið blogg virtur maður sem heldur enn tryggð við flokk sem gróf undan honum með grófum hætti.

Friðrik þú átt erindi inn á þetta Stjórnlagaþing á því liggur ekki nokkur vafi ef fólk vill fá mann sem það treystir þá mæli ég með þér.

Kjósum Friðrik Hansen Guðmundsson á Stjórnlagaþing.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 18.10.2010 kl. 23:28

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband