Myljandi hagnaður af rekstri Íslands.

Fyrirtækið Ísland hefur verið að skila myljandi hagnaði í hverjum mánuði í tæpt eitt og hálft ár. Horft á stóru myndina þá er útlitið framundan á Íslandi fagurbjart.

IMG_0028Þessa góðu afkomu fyrirtækisins Íslands ber að þakka þeim fjárfestingum sem hafa átt sér stað í íslenskum atvinnurekstri undanfarin ár. Þegar fjárfestingar í atvinnurekstri, byggingaiðnaði og bílainnflutningi stöðvast eins og nú hefur gerst þá koma hinar vel reknu grunnstoðir útflutningsgreinanna í ljós. Um leið og arðurinn af útflutningnum er ekki tekinn að mestu í nýjar fjárfestingar þá um leið kemur þessi myljandi hagnaður sem er á rekstrinum af fyrirtækinu Íslandi í ljós.

Eina hættan í dag er ef þjóðin samþykkir þá skuldaklafa sem ríkisstjórnin vill leggja á þjóðina með þessum Icesave samningum. Þá breytist þessi fagurbjarta mynd sem framundan er í óvissu skuldaáþjánarinnar og lífskjaraskerðingu sem mun vara um áratugi meðan þjóðin glímir við að greiða af þessum Icesave skuldum.

Látum það ekki gerast. Samþykkjum ekki skuldir sem á hvern Íslending eru tvöfalt hærri en lagðir voru á þjóðverja í Versalasamningunum eftir seinni heimstyrjöldina.

Sjá: Versalasamningurinn betri en Icesave og bar lægri vexti.

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Afgangur af vöruskiptum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Væri ekki sterkur leikur hjá öllum fjölmiðlum landsins að sýna afgangin af vöruskiptunum einhversstaðar í línuriti yfir árið=Er þjóðin að standa sig eða ekki?

Hafa það sem fastan lið; og bera þá línu saman við árið í fyrra.

Jón Þórhallsson (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 10:47

2 identicon

Það verður að hafa það í huga að þetta eru veltutölur og það kemur ekkert fram í þeim um hversu stór hluti verður eftir í landinu. M.v. hlutfall fiskútflutnings og álútflutnings í þessum tölum má gera ráð fyrir að um álíka upphæð verði eftir í landinu og íslenska þjóðin á að greiða í vexti af IceSlave samningunum. Að því gefnu að allur beinn hagnaður Íslendinga af vöruskiptajöfnuði fari í vaxtagreiðslur til Breta og Hollendinga mun vara óbreytt ástand á Íslandi frá deginum í dag sem einkennast af lágu gengi krónu, minnkandi kaupmætti almennings o.s.frv. Persónulega er ég ekki ánægður með ástandið í dag. Ég vil ekki að það sé óbreytt. Það er nauðsynlegt fyrir Íslendinga að ná fyrirhuguðum vaxtagreiðslum eins mikið niður og unnt er ef að það á að verða einhver lífskjaraaukning á næstu árum hér á landi og að ástandið batni frá deginum í dag.

Kristinn (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 11:23

3 identicon

"mun einkennast" á þetta að vera hjá mér í færslunni að ofan.

Kristinn (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 11:26

4 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Hressandi og uppörvandi pistill!

Kýs nei á morgun!

Jenný Stefanía Jensdóttir, 5.2.2010 kl. 17:56

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband