Bretar sukka á kostnað íslenskra skattgreiðenda

Hún er ævintýraleg þessi frásögn af ferð stjórnenda bresku verslunarkeðjunnar Iceland til Flórída. Stjórnendur í 800 verslunum eyða 800 milljónum í skemmtiferð til Disney World í boði skilanefndar Landsbankans.

Ekki kemur þetta sukk til með að auka verðmæti eigna Landsbankans sem eiga að ganga upp í Icesave. Eins og við vitum öll þá mun það sem upp á vantar lenda á íslenskum skattgreiðendum.

Það verða því ég og þú sem munum á endanum borga þessa ferð þessa fólks til Flórída.

Ljóst er að "móralinn" hjá Bretum virðist vera að sólunda og sukka með eignir Landsbankans í Bretlandi.

Hver er það sem er að gæta hagsmuna íslenskra skattgreiðenda og er verja eignir Landsbankans í Bretlandi?

Það er ljóst að sá aðili annað hvort sefur á verðinum eða er sjálfur á fullu að sólunda og sukka með eignir Landsbankans.

 


mbl.is Yfirmenn Iceland í 800 milljóna króna ferð í Disney
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Voru ekki eignir Landsbankans í Bretlandi frystar. Eða taldist þetta fyrirtæki ekki til eigna LB. Fattarinn minn er ekki að ná þessu

Hólmfríður Bjarnadóttir, 9.10.2009 kl. 17:03

2 Smámynd: Friðrik Hansen Guðmundsson

Þessar "eignir" Landsbankans sem voru frystar á sínum tíma eru meðal annars lán bankans til félaga og fyrirtækja. Á mörgum fyrirtækum hvíla há lán frá Landsbankanum og þegar þessi félög fóru í gjaldþrot þá eignaðist Landsbankinn þessi félög. Menn hafa ekki viljað selja þau eins og markaðsaðstæður eru nú því verðið í dag er lágt. Þess vegna eru menn að bíða þar til ástandið lagast og þá á að selja þau.

Ef allt er tekið innan úr þessum félögum með sukki og bruðli og þau rekin með tapi á þessum tíma þegar þau eru í eigu Lansbankan þá fær Landsbankinn lítið fyrir þau þegar þau loksins verða seld. Því meira sem fæst fyrir eigur Landsbankans í Bretlandi því minna þurfa Íslendingar að borga vegna Icesave.

Þess vegna er svo mikilvægt að þann tíma sem Landsbankinn á þessi félög að þau séu rekin með skynsömum hætti. Það er ekki verið að gera nú.

Friðrik Hansen Guðmundsson, 9.10.2009 kl. 17:20

3 identicon

Það þarf nú að fara að athuga hverskonar glæpastarfsemi er í gangi hjá þessum skilanefndum.

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 9.10.2009 kl. 17:20

4 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Friðrik,

Hvar heldur þú að þessir Bretar hafi lært að fara í sukk ferð til Flórída?  Kannski að skilanefnd hafi ákveðið að hafa fólkið gott.  Ólíkt Íslendingum hefur þetta fólk val.  Það er nú ekkert vinsælt að vinna fyrir íslensk fyrirtæki í Bretlandi.  Það þykir ekki gott á starfsferilskrána.

Andri Geir Arinbjarnarson, 9.10.2009 kl. 18:16

5 identicon

Sá sem situr í stjórn Iceland fyrir hönd skilanefndar (okkar) heitir Gunnar Sigurðsson og er fyrrum forstjóri Baugs í London. Það vakti furðu sumra þegar hann ásamt vini sínum Jóni Ásgeiri voru skipaðir í stjórnir hinna ýmsu fyrirtækja í Bretlandi f.h. skilanefnar. Þetta munu víst vera einhverjir hæst launuðu ríkisstarfsmenn Íslands. Skilanefndin (gamli Lsb) mun eiga um 14% í Iceland.

sigurvin (IP-tala skráð) 9.10.2009 kl. 22:17

6 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Hérna heima situr gamall "tertubani" úr hrunaliðinu í bankastjórastól Landsbankans.  Setti sig í þann stól sjálfur. 

Stöðugleikaliðið sem er að mestu leiti skipað leikmönnum gamla hrunaliðsins tekur þátt því með rísstjórninni að teikna upp fyrir þjóðna þær hörmungar sem yfir munu ganga kyngi hún ekki icesave með húði og hári. 

Er hægt að taka íslenska hagsmuni alvarlega?  Þarf að undrast það að hver hrifsi til sín sem betur getur?

Magnús Sigurðsson, 10.10.2009 kl. 11:39

7 Smámynd: Magnús Jónsson

Friðrik: Baugur- nú Landsbankinn hinn nýi fara með 14% eignarhlut í umræddu fyrirtæki, stjórnandi fyrirtækisins er sókndjarfur og reyndur stjórnandi, sem ætlar að auka markaðshlutdeild Iceland áfram eins, og hann hefur gert undanfarin 4 ár, og ef honum tekst það þá hækkar virði bréfa Landsbankans, hann velur þessa aðferð til að stappa stálinu í sína menn og er eins og hann segir sjálfur í greininni bæði að verðlauna stjórnendur og sína þeim hærra þjónustustig, og hver veit hans stjórn á Iceland hefur verið afar farsæl hingað til, og engin ástæða til að ætla annað en að svo verði áfram.

Magnús Jónsson, 10.10.2009 kl. 13:47

8 identicon

Þetta eru nú meiri SÓÐARNIR . Græðgin ríður ekki við einteyming hjá mannskepnunni .Úfff.....

Kristín (IP-tala skráð) 10.10.2009 kl. 14:39

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband