"Sviðsbók" nýyrði fyrir "Facebook"?

SviðÉg er búinn a heyra tvö nýyrði fyrir enska orðið "Facebook". Það eru orðin "Snjáldurskinna" og "Fésbók". Ég ætla að blanda mér í þessa tillögugerð og sting hér með upp á orðinu "Sviðsbók".

Rökstuðningur: Svið er gamalt og gott orð yfir "andlit" eða sviðna kindahausa. Það hefur líka skírskotun til þess að koma fram og sýna sig og tjá. Orðið hefur mikla hefð í leiklist og allstaðar eru menn á "sviðinu" þegar þeir tjá sig. Þannig tengir nýyrðið "Sviðsbók" saman tvær merkingar í tungumálinu. Á "Facebook" birtir fólk mynd af "andliti" sínu og er í vissum skilningi á "sviði" í þessum nýju netheimum.

Orðið "Sviðsbók" er ekki notað til að lýsa öðrum hugtökum og fellur vel að málinu og getur því vel tekið við af enska orðinu "Facebook".

Ástæðan fyrir því að mér datt þetta í hug er að ég er nýbyrjaður með síðu á "Sviðsbók" og ég var áðan í Nóatúi og sá alla þessa girnilegu sviðahausa í kjötborðinu hjá þeim. Þorrinn er jú ný hafinn.

Já, mín tillaga er að við köllum "Facebook" hér eftir "Sviðsbók".


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sviðamyndin hér við, er ekki mjög girnileg!

Kristín Óladóttir (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 19:14

2 Smámynd: Friðrik Hansen Guðmundsson

Baunirnar líta vel út.

Friðrik Hansen Guðmundsson, 24.1.2009 kl. 19:24

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sviðsbók er frábært orð og mér líst vel á það. Það er svo mikil sköpun í gangi, það fæðast stjórnmálaflokkar, nýyrði og hvað eina. Til hamingju með þetta Friðrik, hann faðir minn hefði verið ánægður með orðið, hann var svo mikill mála maður og um leið svo mikill Íslendingur.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 24.1.2009 kl. 21:16

4 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Mér finnst Snjáldurskinna langskemmtilegasta orðið yfir fyrirbærið.  Enda held ég að mín ágæta og orðhaga frænka, Björg Baldursdóttir frá Vigur, hafi fundið "Snjáldrið" upp.

Svo styttist það svo vel, smbr. "þau sáust fyrst á Snjáldrinu" osfrv.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 25.1.2009 kl. 02:44

5 identicon

Orðanefnd Skýrslutæknifélagsins hefur lagt til orðið "Vinamót". Eftir því sem ég nota Vinamót meira finnst mér orðið eiga betur við því maður hittir þarna vini sína.

Sigrún Hlegadóttir (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 20:29

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband