Til hamingju Ísland

Við Íslendingar eigum eitt allra besta handboltalandslið í heimi. Það var staðfest á ný í dag að liðið okkar er eitt af þrem bestu í heiminum og hefur verið það undanfarin ár.

Á þessum vettvangi eins og á svo mörgum öðrum stöndum við Íslendingar fremstir meðal jafninga.

 

Íslenska handboltalandsliðið og aðstandendur:  Kærar þakkir.

 


mbl.is Ísland landaði bronsinu í Vín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn til sóma

Mikið er ánægjulegt að fylgjast með hvernig forseti Íslands tekur upp hanskann fyrir Íslenska þjóð í erlendum fjölmiðlum í þessu flókna deilumáli sem Icesave deilan er.

IMG_0023Mikið er ánægjulegt að lesa ummæli forsetans í erlendum fjölmiðlum þar sem hann kynnir málstað Íslands af næmni og þekkingu.

Mikið er ánægjulegt að æðsti embættismaður okkar Íslendinga og sá eini sem við kjósum á fjögurra ára fresti í beinni kosningu til að fara með framkvæmdavaldið, skuli berjast með oddi og egg í erlendum fjölmiðlum að verja málstað okkar Íslendinga.

Mikið er ánægjulegt að loks hafi athygli umheimsins verið dregin að þeirri svívirðilegu aðför og því gríðarlega tjóni sem hér varð þegar Bretar settu hryðjuverkalög, ekki bara á Kaupþing og Landsbankann, heldur einnig á íslenska Fjármálaráðuneytið og Seðlabanka Íslands.

Mikið er dapurt að þeir ráðherrar sem forseti hefur falið að framkvæma vald sitt skuli ekki feta í fótspor forsetans og berjast með sama hætti fyrir málstað Íslands í erlendum fjölmiðlum.

Mikið er dapurt að þeir ráðherrar sem forseti hefur falið að framkvæma vald sitt skuli ekki enn hafa gert kröfur um bætur úr hendi Breta vegna þess tjóns sem hér varð þegar Bretar settu á okkur hryðjuverkalög sem varð til þess að Kaupþing og restin af íslenska bankakerfinu féll. Tjónið sem hér varð vegna þessarar efnahagsárásar Breta á Ísland er sambærilegt við það og ef þeir hefðu sent hingað sprengiflugvélar og jafnað hálfa Reykjavík við jörðu.

Nú þarf þjóðin að taka slaginn með forsetanum og þeim fjórðungi þjóðarinnar sem skoraði á forsetann að synja Icesave lögunum staðfestingar og vill fella þennan samning.

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is „Það er verið að kúga okkur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Illa líst mér á ferð forystumanna okkar til Hollands.

Mér líst illa á að forystumenn stjórnmálaflokkana fari til fundar við embættismenn Hollendinga og Breta.

IMG_0022Eini tilgangur þess fundar er að draga forystumenn stjórnarandstöðunnar fram fyrir þaulæfða og þjálfaða samningamenn Breta og Hollendinga í þeim tilgangi að láta þessa erlendu sérfræðinga lesa þeim pistilinn og hóta þeim öllu illu.

Þeir fundir sem forystumönnum stjórnarandstöðunnar á Íslandi verður boðið upp á í þessari ferð verður þaulæft sjónarspil þar sem okkar menn hafa litla sem enga möguleika að verja sig og sínar skoðanir. Þessi ferð verður notuð til að ná taki á forystumönnum stjórnarandstöðunnar á Íslandi og setja á þá þumalskrúfurnar.

Þetta mál er samkvæmt stjórnarskrá komið úr höndum ríkisstjórnarinnar og úr höndum flokkana. Framundan er þjóðaratkvæðagreiðslan. Felli þjóðin þennan samning í þeirri atkvæðagreiðslu þá er þetta mál úr sögunni af hálfu Íslending og engin ríkisábyrgð verður veitt á einu né neinu. Sitji Bretar og Hollendingar við sinn keip og óska samt eftir ríkisábyrgð þá eiga þeir að koma til okkar og óska eftir henni. Þeir fundir eiga þá að fara fram á Íslandi.

Í nýjum samningaviðræðum eigum við að taka inn viðræður um fjárhagstjónið sem hér varð þegar Bretar beittu hryðjuverkalögum í október 2008 á Seðlabanka Íslands, fjármálaráðuneytið, Kaupþing og Landsbankann og frystu allar eignir þessar aðila inni á Bretlandi, þar á meðal gull- og gjaldeyrisforða ríkisins sem er geymdur í London. Þetta tjón má meta svipað og ef Bretar hefðu sent hingað sprengjuflugvélar og jafnað hálfa Reykjavík við jörðu. Okkur ber skylda til að krefjast bóta vegna þess tjóns sem hryðjuverkalögin hafa valdið okkur, þar með talið fall Kaupþings. Gleymum því ekki að við veðjuðum á að Kaupþing myndi ekki falla. Seðlabankinn lánaði Kaupþingi stærsta lán Íslandssögunnar, 500 milljónir evra, nokkrum dögum áður en Bretar felldu bankann með hryðjuverkalögum. Í nýjum samningaviðræðum sem við færum í að ósk Breta eigum við að bjóða þeim eftirfarandi:
  • Bretar láta Icesave niður falla. Á móti láta Íslendingar allar kröfur niður falla vegna þess fjárhagstjóns sem hér varð þegar Bretar settu á okkur hryðjuverkalög. 

Er þetta ekki sanngjörn og eðlileg leið til að ljúka þessu máli?

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Utan til funda vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seðlabankastjóri fór með sína útgáfu af Þorraþrælnum.

Það er ljóst að í augum fjárbóndans á Svörtuloftum geisar hér enn ofsaveður með miklum frosthörkum og jarðbönnum. Ekkert vit er að hleypa fénu í fjárhúsum Svörtulofta á beit utandyra. Þar er því voðinn vís, þar mun það allt falla.

IMG_0021Halda verður áfram fullri gjöf á húsi. Að minnka gjöf núna að einhverju marki þýðir að féð gæti orðið svangt og farið að leita út og þá skapast hætta á fjárfelli. Lítillega skal þó minnka gjöfina þannig að féð fitni áfram en hlaupi ekki í spik.

Eru þetta búhyggindi hjá fjárbóndanum á Svörtuloftum eða glópska?

 

Líklega hefðu fleiri landsmenn skilið Seðlabankastjóra ef hann hefði einfaldlega staðið upp á fundinum í morgun og lesið upp hægt og rólega eftirfarandi:

 

 

Nú er frost á Fróni,
frýs í æðum blóð,
kveður kuldaljóð
Kári í jötunmóð.
Yfir laxalóni
liggur klakaþil,
hlær við hríðarbyl
hamragil.
Mararbára blá
brotnar þung og há
unnarsteinum á,
yggld og grett á brá.
Yfir aflatjóni
æðrast skipstjórinn,
harmar hlutinn sinn
hásetinn.

Horfir á heyjaforðann
hryggur búandinn:
,,Minnkar stabbinn minn,
magnast harðindin. -
Nú er hann enn á norðan,
næðir kuldaél,
yfir móa og mel
myrkt sem hel.
Bóndans býli á
björtum þeytir snjá,
hjúin döpur hjá
honum sitja þá.
Hvítleit hringaskorðan
huggar manninn trautt;
Brátt er búrið autt,
búið snautt.

Þögull Þorri heyrir
þetta harmakvein
gefur grið ei nein,
glíkur hörðum stein,
engri skepnu eirir,
alla fjær og nær
kuldaklónum slær
og kalt við hlær:
,,Bóndi minn, þitt bú
betur stunda þú.
Hugarhrelling sú,
er hart þér þjakar nú,
þá mun hverfa, en fleiri
höpp þér falla í skaut.
Senn er sigruð þraut,
ég svíf á braut.



Kristján Jónsson
1842 - 1869

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Óvissa um efnahagshorfur eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun fjárbóndinn á Svörtuloftum minnka gjöfina á garðann?

Á morgun tekur fjárbóndinn á Svörtuloftum og húskarlar hans ákvörðun um hvort minnka eigi gjöfina á garðann næsta mánuðinn. Hrakviðrið sem hefur geisað undanfarin misseri er að mestu gengið niður og því ætti að vera óþarfi að halda öllu fénu á húsi.

IMG_0019Þó bóndi hafi minnkað nokkuð gjöfina undanfarna mánuði þá velur féð samt að hanga á húsi. Það þorir ekki út þó veðrið sé orðið skaplegt og víða megi finna græn tún og engi. 

Eftir mikinn fjárfellir undanfarinna missera er féð hrætt og allir vilja vera gætnir en bóndi veit líka að það eru lítil búhyggindi að hafa féð allt á húsi.

Eina leiðin til að ná fénu út er að minnka gjöfina á garðann. Ef bóndi minnkar gjöfina þá verður féð svangt og byrjar að leita út. Þar bíða víða grænir balar og brekkur. Minnki bóndi verulega gjöfina þá má jafnvel ætla að aðkomuféð sem mikið er af og hraktist inn í fjárhúsin á Svörtuloftum í ofsaveðrum síðustu missera, það fari líka að kíkja út á grænar nálar.

Smalarnir bíða óþreyjufullir eftir að bóndi minnki gjöfina á garðann svo eitthvað af fénu fari að kíkja út og fari að bíta úr nálinni. Eins og góðum smölum sæmir þá vita þeir um marga góða bala og brekkur þar sem féð verður fljótt vænt og bústið komist það þar á beit.

En meðan fjárbóndinn á Svörtuloftum gefur jafn vel á garðann og nú þá heldur féð sig innandyra því féð gerir meira en halda holdum á fóðrum hjá bónda, það fitnar. Á meðan staðan er þannig þá sitja smalarnir aðgerðarlausir og ekkert fé bítur grænu balana og brekkurnar.

Á meðan ekkert fé bítur balana og brekkurnar gengur hratt á stabbann hjá bónda.

Hvað gerir fjárbóndinn á Svörtuloftum á morgun?

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Spáir lækkun stýrivaxta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

InDefence með mótleik gegn þunglyndisrausi ríkistjórnarinnar.

Frá því forseti synjaði Icesave lögunum staðfestingar þá hafa stjórnvöld farið hamförum. Endalausar heimsenda- og hamfaraspár hafa dunið á þjóðinni. Þá hafa forystumenn ríkisstjórnarinnar verið óþreytandi að úthúða þeim sem skoruðu á forsetann að hafna Icesave lögunum staðfestingar. 

IMG_0018Þessi áróður ríkisstjórnarinnar hefur dunið á þjóðinni með vaxandi þunga. Síðast í gær var fyrrum aðstoðarmaður formanns íslensku samninganefndarinnar mættur að eigin ósk í Silfur Egils til að hóta þjóðinni með eldi og brennisteini felli hún samninginn. Þessi fyrrum aðstoðarmaður Svavars Gestssonar skautaði reyndar þannig á atriðum málsins að ég skildi ekki samhengið í því sem hann var að segja. Það eina sem ég skildi voru þessar innihaldslausu hótanir sem við höfum svo oft heyrt og að það yrði bara að samþykkja þetta mál alveg óháð því að allir eru því sammála að þetta eru óréttlátir nauðasamningar sem engin vill eða ætti að samþykkja. Við yrðum samt að samþykkja þá. Ekki var þetta framlag aðstoðarmannsins til að bæta skilning minn á þessu máli.

Mig óar við ef það verða slíkir menn sem leiða umræðuna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Menn eins og alþingismaðurinn sem hótaði forsetanum í fjölmiðlum að forseti yrði að skrifa undir Icesave lögin ekki síðar en sunnudaginn 3. janúar annars hryndi Íslenski hlutabréfamarkaðurinn þegar markaðir opnuð á mánudagsmorgni. Forsetinn skrifaði ekki undir og að sjálfsögðu haggaðist hlutabréfamarkaðurinn ekkert. Allar þessar hótanir, allar þessar heimsendaspár, allt þetta þunglyndisrugl, ekkert af þessu hefur ræst. Þetta hefur allt reynst innantómt raus fólks með rangt mat og ranga sýn á stöðu mála. Ég verð nú bara að segja það, mér finnst þetta fólk sem sér svona ofboðslegt svartnætti framundan að það er eins og lífið sé nánast búið hafni þjóðin Icesave, þetta fólk eigi að leita sér aðstoðar. Það eru til lyf við svona þunglyndi.

Þess vegna fagna ég í dag þessu framlagi InDefence að fara í fundarherferð um landið. Þeir sem standa að þessu áhugamannafélagi, þeir tala skiljanlegt mál, þeir skilja út á hvað málið gengur og þeir geta miðlað þeim skilningi til annarra.

Einhver von er nú til þess að þjóðin fái líka réttar og hlutlausar upplýsingar um þetta Icesave mál.

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 

 

 


mbl.is Indefence á leið í fundaherferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Leggja til" sameiningu stofnana.

Þetta er kunnuglegt orðalag. Þetta höfum við öll heyrt svo oft áður. Nefnd "leggur til" að farið verði í aðgerðir til að auka hagræði og skilvísi í stjórnsýslunni.

IMG_0017Þegar slíkar skýrslur hafa verið lagðar fram er gert upp við nefndarmenn og skýrslunni komið þægilega fyrir í einhverjum skjalaskápnum. Næsta mál takk.

Þannig hafa hlaðist upp fjöldi skýrslna og álita í skjalageymslunum ráðuneytanna, skýrslur og álit sem engin gerir síðan neitt með.

Er einhver von til þess að núverandi ríkisstjórn komi þjóðinni þægilega á óvart og framkvæmi eitthvað af loforðum sínum um breytingar á stjórsýslunni eða breyti skipan stjórnsýslustofnana eins og þessi nefnd leggur til? Hefur einhver trú á því að þessi ríkisstjórnin fari í breytingar á stjórnsýslunni sem hafa í för með sér sparnað og jafnvel fækkun stjórnenda og starfsfólks?

Hefur einhver trú að því að þessi ríkistjórn hafi vilja og getu til að berja slíkar breytingar í gegnum embættismannakerfið? Embættismannakerfi sem engum hefur hingað til tekist að hrófla við?

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum. 

 

 


mbl.is Stjórnsýslustofnanir sameinist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Icesave kosningin snýst um lífsýn bóndans og víkingsins.

Það eru áhöld um það í samfélaginu hvort þjóðin standi sterkari eftir taki hún á sig auknar skuldbindingar og lán með því að samþykkja Icesave-2. Hér skiptast menn í tvo hópa.

IMG_0015Annar hópurinn heldur því fram að því meira af skuldbindingum og lánum sem þjóðin tekur því betra verði orðspor hennar í útlöndum og með auknum lánum verði hún líklegri til að geta staðið í skilum.

Hinn hópurinn heldur því fram að því minna af skuldbindingum og lánum sem þjóðin tekur því betra verði orðspor hennar í útlöndum og með lægri lánum verði hún líklegri til að geta staðið í skilum.

Um þetta er það mikill ágreiningur að efnt hefur verið til þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars nk. til að fá úr því skorið hvora leiðina þjóðin vill fara. 

Á Landnámsöld voru forfeður okkar ýmist bændur eða víkingar. Í eðli sínu snýst þessi þjóðaratkvæðagreiðslan um lífsýn bóndans og víkingsins.

  • Víkingurinn vill taka meiri lán og taka á sig meiri skuldbindingar því víkingurinn telur að því meiri sem lánin eru því auðveldara verði að borga af þeim.
  • Víkingnum er umhugað um orðspor sitt í útlöndum, vill láta tala vel um sig og vill líta vel út þegar hann spókar sig um í höllum erlendra höfðingja.

 

  • Bóndinn vill ekki taka meiri lán, lán sem hann er ekki 100% viss um að geta staðið við að greiða af. Bónda finnst nóg komið af lántökum og skuldbindingum. Nú er mál að linni.
  • Bóndinn blæs á eitthvað ímyndað orðspor í útlöndum. Bóndi veit að þar þarf ekkert orðspor til þess að selja fisk, veitingar og ál.

Á hitt ber að líta að á meðan ekki er deilt um alvarlegri hluti en peninga og fjármál á Íslandi þá erum við í góðum málum.

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Styðji Ísland af öllum mætti verði útkoman nei
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Setja verður miklu strangari lög og reglur á bankana.

Núverandi lagaumhverfi þar sem bönkum og dótturfélögum þeirra er heimilað að vera á kafi í gambli í fasteignaverkefnum, fyrirtækjarekstri o.s.frv. það er ekki í boðleg staða.

IMG_0014Núverandi lagaumhverfi þar sem yfirmönnum og útibústjórum bankana er heimilt að vera hluthafar í fyrirtækum sem eru í viðskiptum hjá þeim sjálfum það er ekki boðleg staða. Að stjórnendur bankana hafi verið í aðstöðu til að útvega eigin fyrirtækjum botnlaus lán og fyrirgreiðslu, það er ekki boðlegt.

Núverandi lagaumhverfi þar sem stórum eigendum bankana er leyft að eiga fyrirtæki sem eru í viðskiptum við þeirra eigin banka, það er ekki boðlegt. Við vitum hvernig það endaði. Kaupþing lánaði fyrirtækum eigenda sinna yfir 500 milljarða. Allt þetta fé er að mestu glatað.

Núverandi lagaumhverfi er ávísun á sukk, spillingu og ógætilega meðhöndlun fjár. Eins hindrar það samkeppni. Það er sterk tilhneiging hjá bönkunum, stjórnendum þeirra og eigendum að veita eigin fyrirtækum "sérstaka" fyrirgreiðslu og setja um leið fótinn fyrir þau fyrirtæki sem eru í samkeppni við þessi fyrirtækja þeirra.

Ég skora á stjórnvöld að setja strangari lög og reglur á bankana, starfsmenn þeirra og eigendur. Lög og reglur í ætt við það sem víða tíðkast erlendis. Sjá þessa punkta hér:

  • Bönkum og dótturfélögum þeirra verði bannað að eiga í fyrirtækjum á samkeppnismarkaði.
  • Einstaklingar og fyrirtæki sem eiga meira en 1% til 2% í banka verði bannað að eiga í fyrirtækum á samkeppnismarkaði.
  • Bankar sem eru fyrirtæki með ríkisábyrgð í formi þess að Seðlabankinn er lánveitandi þeirra til þrautavara verði bannað að hagnast meira en sem nemur 15% af eigið fé á ári. Ef hagnaður verður meiri þá er það skylda bankans að minnka vaxtamun eða lækka þjónustugjöld. Þannig reglur eru víða og með þeim er komið í veg fyrir að bankar féfletti almenning og fyrirtæki.
  • Starfsmönnum banka sem gegna stjórnunarstöðum verði bannað að eiga hlutabréf í fyrirtækum á samkeppnismarkaði. Þannig reglur gilda t.d í Danmörku.

Komum í veg fyrir aðra helreið í boði bankana, starfsmanna þeirra og eigenda.

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Rætt um eignarhald á bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besta frétt dagsins: Kosið 6. mars 2010.

Því ber að fagna að kjördagur í þjóðaratkvæðagreiðslunni hefur verið ákveðinn. Því ber að fagna að þetta mál skuli lagt í dóm þjóðarinnar. Því ber að fagna að þjóðin skuli nú í fyrsta sinn frá 1944 ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu um ákveðið mál. Lýðræðissinnar á Íslandi hljóta að fagna í dag.

IMG_0013Í fjölmiðlum hefur komið fram að margir áhrifamenn í samfélaginu vilja afnema þennan málskotsrétt forseta.

Sumir segja það hreint út að þeir vilja ekki að þjóðin geti kallað eftir þjóðaratkvæðagreiðslum.

Aðrir vilja hafa þjóðaratkvæðagreiðslur en setja um það mjög ströng lög og skilyrði hvað má fara í slíka kosningu og hvað ekki.

Enn aðrir vilja að hægt verði að kalla eftir þjóðaratkvæðagreiðslu en það verði þá gert í gegnum þingið og að þingmenn og þar með flokkarnir stýri því ferli og stjórni.

Þeir sem mest tjá sig um þetta mál og heimta breytingar, þeir tala illa um stjórnarskána, þeir tala illa um það fólk sem skrifaði og setti stjórnarskrána, þeir tala illa um þann grunn sem þetta samfélag byggir á.

Ég spyr á móti, er þessi málskotsréttur ekki bara vel komin þar sem hann er? Til hvers að breyta stjórnarskránni til þess eins að taka þetta vald frá forsetaembættinu og færa til þingsins? Fyrir hvern er verið að gera það? Er þjóðin eitthvað bættari með það? 

Ég held við eigum að halda okkur við stjórnarskrána eins og hún er hvað þetta varðar. Við eigum að sýna mikla íhaldssemi þegar stjórnmálamen sem tímabundið gegna einhverjum áhrifastöðum fara að tala illa um stjórnarskrána og heimta að henni verði breitt hið snarasta. 

Það er búið að sýna sig að stjórnarskráin okkar er að virka vel.

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum. 

 


mbl.is Kosið 6. mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Versalasamningurinn betri en Icesave og bar lægri vexti.

Eins ótrúlega og það hljómar þá voru vextirnir í Versalasamningnum lægri en vextirnir eru í Icesave samningnum. Í Versalasamningnum er kveðið á um að Þjóðverjar greiði 2,5% til 5,0 % vexti, sjá hér. Íslendingum er gert samkvæmt Icesave samningnum að greiða 5,55% vexti.

IMG_0012Versalasamningurinn sem undirritaður var 28. júní 1919 er einn af svívirðilegri nauðasamningur herðaðarsögunnar og af mörgum talin helsta ástæða þess að Nasistar Hitlers komust til valda 14 árum eftir undirritun hans. Hitler komst til valda m.a. vegna þess að hann neitaði að borga þetta bull. 

Stríðsskaðabæturnar sem Þjóðverjum var gert að greiða eftir fyrri heimstyrjöldian, eftir að hafa drepið 4,6 milljónir manna og lagt norður og austur Evrópu meira og minna í rúst, stríðsskaðabæturnar hljóðuðu upp á 132 milljarða ríkismarka ($31,5 milljarða, £6,6 milljarða). Samkvæmt alfræðiritinu Wikipetia, sjá hér, þá er þessi upphæð í dag uppreiknuð miðað við verðbógu orðin árið 2007 að $400 milljörðum. Á þessum tíma, árið 1919, voru Þjóðverjar 58,5 milljónir, sjá hér. Það þýðir að samkvæmt Versalasamningunum var hverju mannsbarni í Þýskalandi gert að greiða á gengi ársins 2007, 6.800 USD per mann, þ.e. 4.700 evrum per mann.

Samkvæmt grein Dr. Jóns Daníelssonar frá 17.01.2009, sjá hér, þá eru Íslendingar að gangast í ábyrgð fyrir 2.4 milljörðum punda til Bretlands og 1,3 milljörðum evra til Hollands. Samtals nema þessar ábyrgðir um 4,0 milljörðum evra eða sem samsvarar 12.500 evrum per mann.

Miðað við útreikninga Jón Daníelsson út frá forsendum skilanefndar Landsbankans þá munu, vegna Icesave, falla með vöxtum 507 milljarðar króna á Íslendinga miðað við 88% fáist upp í forgangskröfur úr búi Landsbankans. Þetta gera 8.800 evrur per mann.

Án vaxta eru samkvæmt Jóni Daníelssyni að falla á okkur 120 milljarðar króna. Þetta gera 2.100 evrur per mann.

  • Hvernig datt mönnum í hug að skrifa undir samning sem án vaxta skuldbindur hvern Íslending til að greiða tæp 50% af þeim stríðsskaðabótum sem Þjóðverjar voru dæmdir til að greiða í Versalasamningunum?
  • Hvernig má það vera að framferði alþjóðlegs banka sem skráður var í Kauphöllinni í Kaupmannahöfn verði þess valdandi að hver einstaklingur í heimaland bankans er dæmdur til að greiða með vöxtum tvöfalda þá upphæð sem þjóðverjar voru dæmdir til að greiða per mann í Versalasamningunum?
  • Treystir nokkur dómstóll sér til að dæma okkur til að greiða með vöxtum tvöfalt það sem Þjóðverjar voru dæmdir til að greiða samkvæmt Versalasamningum?

Er hægt að láta síkt ranglæti yfir sig ganga?

Liggur ekki ljóst fyrir hvernig almenningur á að kjósa í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu?

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.


mbl.is Lækkun lánshæfiseinkunnar gæti orðið afdrifarík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norskir ráðherrar komnir upp að vegg vegna Icesave?

Um leið og Norðmenn átta sig á því hvernig nauðasamningur þessi Icesave samningur er og þeim gerð grein fyrir framkomu Breta í málinu þá eðlilega blöskrar hinum venjulega Norðmanni. 

IMG_0011Í góðri grein í Dagsavisen í Noregi í rekur Øystein Noreng, prófessor við Viðskiptaháskólann BI tildrög þessa máls.

  • Hann bendir á þá meðvituðu áhættu sem innistæðueigendur tóku þegar þeir lögðu fé sitt inn á hávaxtareikninga í erlendum banka í einkaeigu sem var ekki með neina ríkisábyrgð á bak við sig.
  • Hann bendir á að það var einhliða ákvörðun Breta og Hollending að greiða þessum innistæðueigendum út þessar innistæður langt umfram það sem lög og reglur kveða á um.
  • Hann bendir á að Bretar felldu Landsbankann og Kaupþing með því að setja á þá hryðjuverkalög og frysta þannig eignir þeirra inni í Bretlandi.
  • Hann bendir á að Bretar settu einnig hryðjuverkalög á Seðlabanka Íslands og Íslensk ríkið og fyrstu þar með inni gull- og gjaldeyrisforða þjóðarinnar sem geymdur var í banka á Bretlandi.
  • Hann bendir á að réttarstaðan í málinu er þannig að Bretar geti alls ekki verið vissir um að vinna málið fari það fyrir dóm.
  • Hann bendir á að alþjóðlegar skuldbindingar Íslendinga í þessu máli liggja hreint ekki fyrir.

Frá því Eva Joly birti grein sína í norska Morgunblaðinu, sjá hér og íslenskan úrdrátt hér, þá er ljóst að Norðmenn eru að átta sig á því um hvað Icesave nauðasamningarnir snúast. Ef marka má viðbrögð þeirra Norðmanna sem skrifuðu athugasemdir við þessar greinar þá er ljóst að almenningsálitið í Noregi er að snúast hratt með okkur.

Um leið og almenningsálitið í Noregi snýst þá átta Norðmenn sig líka á því að hinir eiginlegu handrukkarar Breta og Hollending í þessu máli, þeir sem hafa þvingað ríkistjón Íslands til að gangast undir þessa nauðasamninga, það eru þeirra eigin ráðherrar vegna þess að þessir norsku ráðherrar vilja tengja lánafyrirgreislu Noregs við að Íslendingar skrifi undir þennan nauðasamning.

Nauðsamning sem felur það meðal annars í sér að bótagreiðslur Íslendinga per mann verða hærri en þær bótagreiðslur sem Þjóðverjum var gert að greiða per mann eftir tvær heimstyrjaldir. Auk þess sem Þjóðverjar fengu 90 ár en ekki 14 ár eins og við til að greiða þessar bætur. Þar fyrir utan fengu þjóðverjar lægri vexti. Sjá nánar hér.

Stæði Íslendingum í dag til boða Versalasamningur þjóðverja í stað þessa Icesave samnings þá teldumst við góðir.

Ég spyr, fari þetta mál fyrir alþjóðlegan dómstól, eru þá einhverjar líkur á því að slíkur dómstóll dæmdi okkur til að greiða hærri bætur per mann en Þjóðverjar voru dæmdir til að greiða per mann eftir tvær heimstyrjaldir?

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á Vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Norðmönnum ber að aðstoða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Falli Icesave í þjóðaratkvæðagreiðslu kallar það á nýjan og gjörbreyttan samning?

Fjármálaráðherra telur að prútta eigi um vexti verði gengið til nýrra samninga um Icesave. Martin Wolf, dálkahöfund hjá Financial Times, mælir með að Íslendingar leggi fram nýjan og betri samning verði gengið til nýrra samningaviðræðna. Himinn og haf virðist vera á milli þessara tveggja manna í afstöðu þeirra til þessa máls.

IMG_0010Fjöldinn allur af erlendum prófessorum, hagfræðingum, lögfræðingum, ritstjórum, dálkahöfunum, þingmönnum að ógleymdri Evu Joly, sjá þessa grein hennar hér og á norsku hér, hafa tekið upp málstað okkar Íslendinga og bent á það sama eða svipað og Martin Wolf. 

Af hverju taka Íslensk stjórnvöld ekki undir sjónarmið þessara erlendu Íslandsvina og heimta nýjan og betri samning?

Hvað liggur á að fara meira og minna óundirbúin í samningaviðræður við Breta og Hollendinga á þessum tímapunkti? Það er búið að taka þetta mál úr höndum ríkisstjórnarinnar. Nú er þjóðaratkvæðagreiðslan framundan. Af hverju hættir ríkisstjórnin ekki að hugsa um Icesave og fer að sinna öðrum málum? 

Af hverju fellum við ekki þennan Icesave samning í þjóðaratkvæðagreiðslu og skiljum þannig við málið í einhverja mánuði, misseri eða ár eða þar til Bretar eða Hollendingar óska eftir nýjum viðræðum?

Ef þjóðin fellir þennan Icesave samning er þá ekki búið að taka það umboð af ríkisstjórn og Alþingi að gera nýjan samning á óbreyttum nótum? Verður þá ekki að koma til nýr og öðruvísi samningur? Samningur sem er á þeim nótum sem allt þetta erlenda fólk er að ræða um?

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Leggi fram nýjan samning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í tvígang hefur þjóðin sett ríkisstjórnum Samfylkingarinnar stólinn fyrir dyrnar.

Nú verða ráðherrar ríkisstjórnarinnar að taka sér tak og hætta að munnhöggvast við forsetann og hætta að fjargviðrast yfir því að hér eigi að fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave lögin.

IMG_0009Vilji ráðherrar munnhöggvast við einhverja vegna synjunar forseta þá eiga þeir að munnhöggvast við þessa 60.000 Íslendinga sem undirrituðu áskorun til forseta Íslands að synja lögum um þennan hræðilega lélega Icesave samningi staðfestingar. Ráðherrar verða að fara að gera sér grein fyrir því að það voru 25% kjósenda á Íslandi sem stöðvuðu þessi Icesave lög.

Öllum á að vera ljóst að ef ekki hefði komið til þessi gríðarlegi fjöldi áskorana þá hefði forsetinn staðfest lögin. Engin þjóðkjörinn forseti gat hunsað áskorun 25% kjósenda í landinu. Ríkisstjórnin verður að gera sér grein fyrir því að það lifir enn glatt í glæðum búsáhaldabyltingarinnar þó í þetta sinn hafi byltingaraðgerðirnar komið fram sem fjöldaáskorun til forsetans.

Í janúar í fyrra stöðvaði almenningur ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks með eldi, hávaða í búsáhöldum og átökum við lögreglu. Í janúar í ár stöðvar almenningur ríkistjórn Samfylkingar og Vinstri grænna með  því að neyða forsetann til að synja Icesave lögunum staðfestingar með 60.000 áskorunum og með eldi og rauðum reyk við athendingu þessara undirskrifta á Bessastöðum. Forsetinn var "brenndur inni" á Bessastöðum þennan dag.

Það hlýtur að vera mikið áhyggjuefni fyrir forystufólk Samfylkingarinnar að hafa setið í tveim ríkisstjórnum, ríkisstjórnum sem hafa farið þannig fram að þjóðin hefur í tvígang á einu ári risið upp og sett þessum ríkisstjórnum Samfylkingarinnar stólinn fyrir dyrnar. Þar á bæ hljóta menn að endurskoða sína starfshætti.

  • Góð byrjun væri að fara að ákvæðum stjórnarskrárinnar og halda þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. 
  • Góð byrjun væri að taka þátt í því að móta hér nýjar lýðræðishefðir þar sem beint lýðræði og þjóðaratkvæðagreiðslur eru hluti af nýjum stjórnarþáttum og koma til móts við kröfur búsáhaldabyltingarinnar um aukin áhrif almennings.

Fyrir forystufólki Samfylkingarinnar lauk Búsáhaldabyltingunni kannski þegar Davíð Oddssyni var velt úr Seðlabankanum. Fyrir  þessum 60.000 Íslendingum sem skrifuðu undir áskorun til forsetans er Búsáhaldabyltingunni ekki lokið.

Forystufólk Samfylkingar, ekki ögra þjóðinni með því að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna og leggja í þriðja sinn meira eða minna óbreyttan Icesave samning fyrir þingið.

Ef þið teljið að þið getið ekki náið betri samningum, saltið þá þetta Icesave mál í nokkur ár frekar en að ögra þjóðinni með því að leggja fram í þriðja sinn svona hræðilega lélega samninga.

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Jóhanna: Skynsamlegra að leysa án þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sænski forsætisráðherran skilur ekki um hvað Icesave deilan snýst.

Það er ljóst af ummælum forsætisráðherra Svíþjóðar og annarra forystumanna Norðurlandanna að þeir skilja ekki út á hvað þessi deila gengur. Þeim hefur greinilega ekki verið kynntur málstaður Íslendinga. Ef forsætisráðherra Svíþjóðar hefði lesið grein Sigurðar Líndals lagaprófessors í Fréttablaðinu í dag þá hefði hann ekki talað með þessum hætti. Sjá grein Sigurðar Líndal hér.

IMG_0008Ef forystumenn Norðurlandanna læsu einnig grein hollenska hagfræðiprófessorsins Sweder van Wijnbergen i nrd handelsblad, sjá hér og íslenskan úrdrátt hér, þá töluðu þeir ekki með þeim hætti sem þeir nú gera.

Það er ljóst að okkur Íslendingum hefur til þessa mistekist að upplýsa hin Norðurlöndin um hvað þetta Icesave mál snýst. Almenningur í Bretlandi og Hollandi, fræðimenn þar og ritstjórar eru hins vegar farnir að skilja út á hvað þetta mál gengur og þeim blöskrar framkoma sinna eigin forystumanna og krefjast réttlætis fyrir okkar hönd.

Nú þyrfti að þýða þessa grein hans Sigurðar Líndal yfir á sænsku, dönsku og norsku og senda hana ásamt gein Sweder van Wijnbergen á alla þingmenn og alla fjölmiðla í þessum löndum.

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Reinfeldt: Ákvörðun AGS forsenda fyrir láni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretar jákvæðir að leysa Icesave deiluna með kaupum á rafmagni um sæstreng.

Nú gæti sú hugmynd sem varpað var fram í sumar að við Íslendingar eigum að bjóða Bretum að greiða fyrir Icesave með rafmagni um sæstreng, nú gæti sú leið orðið að veruleika.

IMG_0006Í það minnsta þá varpar Denis MacShane, þingmaður breska Verkamannaflokksins og fyrrverandi Evrópumálaráðherra þessari hugmynd fram sem leið að lausn í viðtali við rúv í morgun. Sjá frétt rúv hér: Ísland geti greitt með orku.

Ég ásamt innlendum og erlendum samstarfsaðilum höfum verið að skoða möguleikann á að reisa hér slíka verksmiðju. Við erum komnir það langt að eftirfarandi liggur fyrir:

  • Áhugasamir kaupendur eru að rafmagni í Bretlandi, Hollandi og Noregi.
  • Tæknileg lausn á gerð og legu sæstrengsins um Færeyjar til Skotlands liggur fyrir.
  • Fjármögnun kapalverksmiðjunnar ásamt öllum búnaði, vélum og tækjum liggur fyrir.
  • Fjármögnun á gerð Sæstrengsins liggur fyrir um leið og sölusamningar á rafmagninu liggur fyrir.
  • Möguleiki er á að ganga samhliða frá fjármögnun á virkjunarframkvæmdum vegna virkjana sem framleiddu rafmagn á slíkan sæstreng.  
  • Okkur vantar 500 Mw til 1.000 MW af rafmagni.
  • Okkur vantar að ríkisstjórn Íslands og Bretlands vinni með okkur að gera þetta mögulegt.

Þessi leið að lausn á Icesave deilunni hefur bæði kosti og galla. 

  • Gallinn er sá að hugsanlega má skapa hér fleiri störf með því að nýta þetta rafmagn hér heima í álver, gagnver o.s.frv.
  • Ákveðnar umhverfisfórnir þarf að færa vegna virkjana.

Á móti koma kostirnir: 

  • Þessi leið að reisa hér það stóra kapalverksmiðju að hún ráði við að framleiða slíkan sæstreng, það er verkefni á stærð við að reisa hér meðalstórt álver. Störfin sem slík verksmiðja skapar eru álíka mörg. Kapalverksmiðjan sjálf þarf um 25MW.
  • Við komumst í þá aðstöðu að geta selt rafmagn beint inn á smásölumarkaðinn á Bretlandi, inn á markað sem er að borga eitt hæsta rafmagnsverð í heiminum í stað þess að vera að keppa með rafmagnið á heildsöluverði á álmarkaðnum í samkeppni við Venúsavela.
  • Ef við náum samningum um þetta við Bretana þá yrðu þau umsvif sem hér eru fyrirsjáanleg, að reisa verksmiðjuna, virkjanir og framleiða kapalinn, þau myndu rífa okkur upp úr þessari kreppu.
  • Við myndum aldrei finna fyrir greiðslubrigðinni vegna Icesave. Hér væru nokkrar virkjanir sem möluðu allan sólahringinn næstu 15 árin sem myndu sjá um að greiða niður Icesave og stofnkostnaðinn af öllum framkvæmdum og sæstrengnum.

Þessi Icesave - Sæstrengs leið var kynnt í eftirfarandi pistlum:

Áður höfðu aðilar sem ég er í samstarfi við sýnt mikinn áhuga á að setja hér upp verksmiðju til að framleiða jarð- og  sæstrengi. Sjá þessa fréttatilkynningu hér:

Þessum samstarfsaðilum mínum féllust síðan hendur eftir að gjaldeyrishöftin höfðu ítrekað verið hert og fóru og settu verksmiðjuna upp í Kanada. Þar eru þeir að fara í gang með framleiðslu á jarðstrengjum. Þeir eru þó enn að skoða möguleikann á að geta líka farið út í framleiðslu á sæstrengjum. Þannig kemur þessi hugmynd til að selja rafmagn til Bretlands um sæstreng, sæstreng sem við framleiddum hér á Íslandi. 

Þessi hugmynd var kynnt fjármálaráðherra í sumar sem leið. Við höfum beðið svara síðan.

Allt er búið að vera á öðrum endanum eins og alþjóð veit og ótal spjót staðið á okkar forystumönnum þannig að það er engin leið að þeir geti svarað öllum þeim fyrirspurnum og ábendingum sem þeim berast á degi hverjum.

Nú hins vegar þegar breskur stjórnarþingmaður og fyrrum Evrópumálaráðherra, þetta er "þungaviktarmaður" sem tekur þetta mál upp og bendir á að þetta geti verið leið til að leysa þetta Icesae mál þá eru Bretar að rétta okkur sáttahönd og benda okkur á að þessi leið er fær og þeir eru tilbúnir í samstarf um hana.

Við eigum að keyra á þetta mál.

Steingrímur, síminn hjá mér er 894 1949.

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


Eru áherslur ríkistjórnarinnar í ríkisfjármálunum boðlegar?

Áherslurnar í fyrstu fjárlögum þessarar ríkistjórnar eru einfaldar. Þær felst í því að hækka skatta, skera niður framkvæmdir og halda ríkisrekstrinum að öðru leiti óbreyttum.

Eftir höfðinu dansa limirnir og þetta plan hafa sveitarstjórnir um land allt tekið upp. Ríki og sérstaklega sveitarfélögin hæla sér af því að í mestu kreppu á Íslandi hafi þau ekki sagt upp einum einasta starfsmanni. Frekar safna þau skuldum. Það má safna skuldum til að standa undir rekstri en það má ekki taka lán til að fara í gang með  arðbærar framkvæmdir.

IMG_0004Á nýliðnu ári var ríkistjóður rekinn með 150 milljarða króna halla. Í ár er ætlunin að reka ríkissjóð með 90 milljarða króna halla.

Þegar lesin eru yfir fjárlögin fyrir 2010 þá er ljóst að það eru fyrst og fremst framkvæmdir og viðhald sem skera á niður. Sama er uppi á teningnum hjá sveitarfélögunum. Bygginga- og verktakastarfsemin í landinu er látinn taka allt höggið í niðurskurði hins opinbera á árinu 2010. Fyrir tveim árum voru 17.000 manns starfandi í bygginga- og verktakastarfsemi. Í dag eru starfandi í greininni milli 2.000 til 3.000 manns og fer hratt fækkandi.

Á sama tíma hefur fáum ef nokkrum opinberum starfsmönnum verið sagt upp störfum. Í fjárlögum ríkisins fyrir 2010 er ekkert tekið á þeirri gríðarlegu útþenslu hins opinbera sem varð í góðærinu. Fyrir utan niðurskurðinn til framkvæmda þá fá ráðuneytin öll nánast sömu krónutölu til ráðstöfunar í ár og í metfjárlögunum frá 2009. Niðurskurðurinn í öllu heilbrigðiskerfinu er minni en niðurskurðurinn bara til vegagerðar. 

Við erum að láta ríkið safna gríðarlegum skuldum, við erum að auka verulega skattheimtu á almenning og fyrirtæki, við erum að leggja heila atvinnugrein í rúst, allt til þess að geta haldið í útblásið ríkisbákn góðæristímans.

Eru þessar áherslur boðlegar?

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Nauðsynlegt að hækka skatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fellum Icesave þá verða Bretar, ekki við, að biðja um nýjar viðræður.

Nú þarf stjórn og stjórnarandstaða að ná saman um hvernig standa á að því að leiða þetta Icesave mál til lykta í ljósi breyttra tíma.

IMG_0003Bretar og Hollendingar líta svo á að þeir eru með samþykktan samning í höndunum. Það er vonlaust mál á núverandi tímapunkti að óska eftir nýjum samningaviðræðum jafnvel þó reynt verði tefla fram einhverjum sáttasemjara. Þetta var fær leið í haust, ekki nú.

Sú leið sem ég vil sjá stjórn og stjórnarandstöðu sameinast um er eftirfarandi:

  • Við höldum hér þjóðaratkvæðagreiðslu og við fellum þennan Icesave-2 samning með sóma.
  • Bretar og Hollendingar voru búnir að hafna Icesave-1 vegna þeirra fyrirvara sem þar voru. Ef við fellum Icesave-2 þá er engin ríkisábyrgð lengur til staðar á neinu.
  • Vilji Bretar og Hollendingar fá slíka ríkisábyrgð á þeim lánasamningi sem þeir hafa þegar gert og undirritað við Tryggingasjóð innlánseigenda þá verða þeir að koma og biðja Íslensk stjórnvöld um viðræður um slíka ábyrgð. 
  • Í framhaldi af þeim mikla viðsnúningi sem er orðin í afstöðu heimsbyggðarinnar í þessu máli, samanber viðhorfin sem komu fram í Silfri Egils í gær, afstöðu allra helstu viðskiptablaða Bretlands sem halda því blátt áfram fram að Íslendingar eiga ekki að borga krónu, þá eiga Íslensk stjórnvöld að ganga treg til nýrra viðræðna um slíka ábyrgð.
  • Látum Breta og Hollendinga hafa frumkvæði að því að hafa samband og óska eftir viðræðum. Vonandi bara að það líði eitt eða tvö ár þar til þeir hafa samband. Þá erum við komin út úr samstarfinu við AGS. Þær viðræður eiga þá að fara fram á Íslandi. Þær viðræður eiga í öllu falli ekki að fara fram á Bretlandi eða Hollandi.
  • Í þessum nýju samningaviðræðum eigum við að taka inn viðræður um  fjárhagstjónið sem hér varð þegar Bretar beittu hryðjuverkalögum í október 2008 á Seðlabanka Íslands, Kaupþing og Landsbankann og frystu allar eignir þessar banka inni á Bretlandi, þar á meðal gull- og gjaldeyrisforða ríkisins sem þar var geymdur. Það tjón má meta svipað og ef Bretar hefðu sent hingað sprengjuflugvélar og jafnað hálfa Reykjavík við jörðu. Okkur ber skylda til að krefjast bóta vegna þess tjóns sem hryðjuverkalögin hafa valdið, þar með talið fall Kaupþings. Gleymum því ekki að við veðjuðum á að Kaupþing myndi ekki falla. Seðlabankinn lánaði Kaupþingi stærsta lán Íslandssögunnar nokkrum dögum áður en Bretar felldu bankann með hryðjuverkalögum.
Í nýjum samningaviðræðum sem við færum í að ósk Breta eigum við að bjóða þeim eftirfarandi:
  • Bretar láta Icesave niður falla. Á móti láta Íslendingar allar kröfur niður falla vegna þess fjárhagstjóns sem hér varð þegar Bretar settu á okkur hryðjuverkalög. 

Er þetta ekki sanngjörn og eðlileg leið til að ljúka þessu máli?

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Mjög gott skref
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látum greiningarfyrirtækið Fitch Ratings ekki hræða okkur.

Sérkennileg eru þessi rök framkvæmdastjóra greiningarfyrirtækisins Fitch Ratings sem lækkaði nýverði lánshæfismat ríkisins. Við þekkjum öll hvernig þetta sama greiningarfyrirtæki gaf íslensku bönkunum hæðstu einkunnir misserin og árin fyrir hrun. Við vitum öll að þetta fyrirtæki vanmat stöðu bankana algjörlega. Allt sem þetta fyrirtæki sagði og gerði misserin og árin fyrir hrun reyndist tóm vitleysa.

Það sem mig undrar er að þetta fyrirtæki skuli enn vera starfandi. Það sem mig undrar er að enginn skuli hafa lögsótt þetta fyrirtæki fyrir að gefa út jafn villandi mat á stöðu íslensku bankana og raun bar vitni. Án efa hafa þúsundir aðila, innlánseigendur, lánadrottnar og viðskiptaaðilar, tapað stórfé á því að trúa því mati sem þetta greiningarfyrirtæki lagði á íslensku bankana þegar fyrirtækið gaf íslensku bönkunum hæstu matseinkunnir. Bera þessi greiningarfyrirtæki ekki neina ábyrgð á því  sem þeir bera borð fyrir almenning?

Rökin sem Fitch ber núna á borð fyrir okkur og eiga að skýra ástæður þess að fyrirtækið lækkaði lánshæfismat ríkisins niður í ruslflokka halda hvorki vatni né vindum.

Höfum þetta hér á hreinu: Lánshæfi minnkar eftir því sem skuldir er auknar. Lánshæfi eykst eftir því sem skuldir er greidar upp eða lækkaðar.   

Auðvita mun lánshæfismat Íslands hækka í bráð og lengd hafni þjóðin Icesave að einhverju eða öllu leyti og minnkar þannig þær skuldir sem ríkið þarf að borga.

Látum ekki aðila sem við vitum að er ekki hægt að treysta hræða okkur og hafa áhrif á okkur.

 


mbl.is Fjármögnun sett í uppnám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stöðugt fjölgar í hópi bresks áhrifafólks sem er í okkar liði.

Í gær var það ritstjóri áhrifamesta viðskiptablaðs Bretlands, The Financial Times of London. Í dag er það viðskiptaritstjóri breska blaðsins Observer. Allt þetta fólk tekur nú upp hanskann fyrir Íslenska þjóð eftir að 25% atkvæðisbærra manna á Íslandi undirritaði áskorun InDefence til forsetans og í framhaldi af því synjun forsetans á Icesave-2 lögunum.

Áhrifamestu viðskiptablöð Bretlans styðja nú málstað Íslands. Það sem meira er, allt þetta fólk krefst þess fyrir okkar hönd að við eigum ekki að bera ábyrgð á þessum Icesave reikningum.

Allt þetta fólk sér ranglætið í því að draga á skattgreiðendur á Íslandi til ábyrgðar fyrir glæfraspil einkarekinna banka.

Vonandi að ríkisstjórn Íslands sjái þetta ranglæti líka og fari að tala hér heima og erlendis á sömu nótum og áhrifamestu blöð Bretlands. 

 


mbl.is Telur ósanngjarnt að láta almenning greiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband