Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Verða sett á neyðarlög eftir kosningar að kröfu AGS vegna ástands efnahagsmála?

Ekkert heyrist frá stjórnmálamönnunum okkar hvað taki hér við í haust og á næsta ári og hvernig menn ætla að taka á samdrættinum sem er óhjákvæmilegur á næstu árum.

113_1387Þeir einu sem virðast vera að velta þessum málum fyrir sér er almenningur.

Ég er að verða sammála Davíð Oddsyni að líklega þarf Þjóðstjórn til þess að höndla þann mikla niðurskurð sem framundan er. Sjá grein mína þar um hér

Andri Geir Arinbjarnarson er búinn að rýna í þær skuggalegu aðgerðir sem framundar eru á Írlandi. Staðan er enn verri hér, samt er enginn að ræða þessi mál hér. Sjá grein Andra hér, Þessi grein er skyldulesning. Hann spáir því að Alþjóðagjaldreyrissjóðurinn krefjist þess að það verði sett á neyðarlög strax eftir kosningar til að takast á við efnahagsvandann með niðurskurði og skattahækkunum.

Kosningabaráttan framundan hlýtur og verður að fara að snúast um þessi mál.

 

Mynd: Kerlingarfjöll


Hættum hvalveiðum og einbeitum okkar að hvalaskoðun.

Hvernig nýtum við þessa auðlind best sem eru hvalastofnarnir við landið? Hvort mun gefa meira í aðra hönd, að skoða hvalina eða skjóta þá?

HvalveiðarHvort eigum við að láta sjávarútvegsfyrirtækin eða ferðaþjónustufyrirtækin um að nýta þessa auðlind?

Ferðaþjónustan segir að á síðasta ári hafi 115.000 manns farið í hvalaskoðunarferðir og um 200 manns hafi af þessu atvinnu.

Sjávarútvegurinn segir að hvalveiðar muni skapa rúm 200 störf.

Báðir þessir atvinnuvegir skapa okkur gjaldeyri. Eins og staðan er í dag skapar nýting hvalastofnanna álíka mörg störf hvort heldur hvalir eru skoðaðir eða skotnir.

Framtíð hvalveiða við Ísland er og verður mjög óviss. Markaðir fyrir hvalaafurðir eru fáir og ótryggir.  

Framtíð hvalaskoðunar er björt. Þetta er atvinnugrein sem á sér örfárra ára sögu en hefur vaxið gríðarlega ár frá ári. Þar er ekkert nema vöxtur og auknar tekjur framundan.

Niðurstaðan er einföld, við munum hagnast meira á því að skoða hvalina en skjóta þá.

Látum ferðaþjónustunni eftir að nytja hvalastofnana við Ísland og hættum að slást við alþjóðasamfélagið um þetta mál.

 


mbl.is ESB gagnrýnir hvalveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurreisa þarf trúverðugleika Sjálfstæðisflokksins.

Með brotthvarfi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins úr starfi vakna þær vonir að nýr formaður Sjálfstæðisflokksins ætli að taka á þessu máli af fullri hörku. Þeir aðrir trúnaðarmenn flokksins sem sýndu þá siðblindu að biðja um og taka við fjárstyrkjum af þessari stærðargráðu frá Landsbankanum og aðaleigenda Glitnis hljóta að láta af sínum trúnaðrstörfum fyrir flokkinn.

IMG_1649 (2)Fyrrverandi framkvæmdastjóri flokksins sat til ársloka 2006 við hlið hins nýja og unga framkvæmdarstjóra sem nú er að láta af störfum. Sá var jafnframt bankaráðsmaður í Landsbankanum þegar bankinn ákvað að fara að safna innlánum erlendis inn á Icesave reikningana. 

Þessi maður sat í stjórn Landsbankans þegar bankinn safnaði yfir þúsund milljörðum króna á tæpum tveim árum. Þessi maður veðsetti þjóð sína fyrir þúsund milljarða á tæpum tveim árum. Þjóðin mun þurfa að greiða 50 til 500 milljarða vegna gjörða þessa manns. Þennan mann vill ég og hópur manna ákæra fyrir landráð. Sjá hér.

Þessi maður situr í Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins

Samkvæmt fréttum Morgunblaðsins þá hafði fyrrverandi ráðherra flokksins forgögnu um að útvega flokknum þetta fé. Sá ráðherra situr í fyrsta sæti flokksins í Reykjavík Suður.

Það er ekki nóg að þessi ungi drengur sem var í starfsþjálfun á skrifstofu flokksins þegar þetta gerðist hætti.

Til þess að ég og væntanlega fleiri stuðningsmenn flokksins til fjölda ára höldum áfram að styðja og kjósa flokkinn þá þurfa báðir þessir menn að hverfa úr trúnaðarstörfum fyrir flokkinn.

 


mbl.is Andri hættir störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúverðugleika Sjálfstæðisflokksins verður að endurreisa.

Það að Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra hafi útvegað Sjálfstæðisflokknum þessa tugmilljóna styrki var ekki til að bæta stöðu Sjálfstæðisflokksins. Allir þeir sem um þessi mál tjá sig eru sammála um að það að þiggja þessa styrki hafi í besta falli verið "óeðlilegt".

IMG_1701Það alvarlega í þessu máli er að þeir menn sem ég og aðrir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins höfum valið til trúnaðarstarfa fyrir okkur, þeir sáu ekkert óeðlilegt við það að þiggja styrki sem þessa. Heldur ekki framkvæmdastjóri flokksins.

Ef þessir forystumenn okkar Sjálfstæðismanna ráku flokkinn okkar með þessum hætti hvernig ráku þeir þá landið okkar?

Ég hvatti eindregið til þess að í þeim prófkjörum sem fóru fram í Sjálfstæðiflokknum að fyrrum ráðherrum flokksins yrði gefi frí og þeir ekki kosnir til áframhaldandi trúnaðarstarfa. Þrír af sex fyrrum ráðherrum flokksins hættu, hinum var öllum hafnað sem oddvitum í sínum kjördæmum. Eina leiðin fyrir Sjálfstæðisflokkinn til að endurheimta traust kjósenda er að sýna ábyrgð í verki og láta þá forystumenn flokksins sem leiddu þjóðina inn í þetta gríðarlega hrun bera ábyrgð á því með því að kjósa þá ekki til frekari trúnaðarstarfa.

Sjálfstæðisflokkurinn á mjög undir högg að sækja og ef Sjálfstæðisflokkurinn á að endurvinna trúnað kjósenda eftir þessar uppljóstranir þá gengur ekki að stilla upp í fyrsta sæti í Reykjavík Suður með höfuðpaurinn í þessu máli. Ekki bara að maðurinn sá ekkert óeðlilegt við að þiggja þessar greiðslur, hann fór sem þingmaður og sótti þær til þessara fyrirtækja.

Mín reynsla af stuðningsmönnum og kjósendum Sjálfstæðisflokksins er að þetta er upp til hópa gott og grandvart fólk. Ég efast um að það vilji frekar en ég kjósa slíka  menn á þing sem sína fulltrúa.

Það jaðrar við pólitísku sjálfsmorði fyrir Sjálfstæðisflokkinn að stilla í dag upp í fyrsta sæti í Reykjavík Suður höfuðpaurnum í einu mesta spillingarmáli Íslandssögunnar sem tengist fjármálum stjórnmálaflokkanna.

Það sem gerir málið svo slæmt er hvaða fyrirtæki gáfu þetta fé, Landsbankinn og aðaleigandi Glitnis. Báðir þessir bankar fóru í framhaldinu lóðrétt á hausinn  eftir að hafa rænt þjóðina og skilið hana eftir stórskulduga. Bankar sem stjórnvöld gerðu ekkert til að stöðva á þeirri heilreið sem þeir voru á. Þvert á móti, stjórnvöld gerðu allt sem bankarnir báðu um þar til Davíð Oddsson á endanum stöðvaði bullið. Já, ég er farinn að sjá Davíð Oddson í nýju ljósi þessa dagana.

Ætli Sjálfstæðisflokkurinn að endurheimta sitt fyrra traust verða menn sem staðið hafa í gjörningum eins og þessum að hverfa úr forystu flokksins. Alveg á sama hátt þarf ábyrgðarmaður númer eitt á Icesave, stjórnarmaður í Landsbankanum og fyrrum framkvæmdastjóri flokksins að hverfa úr Miðstjórn flokksins.

Gerist það ekki fyrir þessar kosningar þá verður það að gerast fyrir þær næstu, ætli Sjálfstæðisflokkurinn sér einhverja framtíð í íslenskri pólitík.

Mynd: Dýjamosi í Vopnafirði.

 

 


mbl.is Guðlaugur Þór hafði forgöngu um styrkina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf þjóðstjórn til að takast á við þennan gríðarlega efnahagsvanda?

Rúmir sex mánuðir eru frá því bankakerfið hrundi. Á sex mánuðum hafa tæp átján þúsund manns misst vinnuna. Spár gera ráð fyrir að 10 fyrirtæki verði gjaldþrota á dag næstu tólf mánuði. 3500 fyrirtæki munu falla í valinn það sem eftir lifir árs. Með óbreyttri vaxtastefnu og ef þessar spár ganga eftir þá er eðlilegt að álykta að jafn margir muni missa vinnuna á næstu sex mánuðum og á síðustu sex mánuðum.

IMG_1669

Til viðbótar þessum gjaldþrotum og vaxandi atvinnuleysi þurfum við að glíma við stórfelldan niðurskurð á útgjöldum ríkisins. Skera þarf fjárlögin fyrir 2010 úr 600 milljörðum í 400 milljarða.

Þeir sem taka við stjórnartaumunum að afloknum kosningum verða ekki öfundsverðir. Alveg sama hverjir þeir verða þá þarf þjóðin að styðja það fólk eins og hægt er. Að setja saman fjárlögin fyrir 2010 og aftur 2011 verður bara hræðilegt mál. Hvernig ætla menn að skera niður ríkið um 30%? Með því að segja upp þriðja hverjum ríkisstarfsmanni?

Ef við ætlum að skera niður útgjöldin um 30% þá þarf að grípa til ráðstafanna eins og þessara:

  • Fyrirsér er algjör uppstokkun á Háskólastiginu, niðurskurður, lokun deilda í Reykjavík og úti á landi. Starfsfólki og kennurum sagt upp.
  • Væntanlega verða allir Háskólarnir sameinaðir í einn og öllum rektorum sagt upp nema einum. Verkfræði og lögfræði sem nú er kennd á tveim stöðum, allt slíkt verður sameinað.
  • Kennslu til meistaranáms væntanlega hætt næstu árin. Nemendum bent á að sækja það nám til útlanda.
  • Kennsla í grunnskólum minnkuð og laun kennara lækkuð, kennurum og starfsfólki sagt upp.
  • Sama þarf að gera í framhaldsskólum.
  • Sveitarfélög munu loka leikskólum og fækka leikskólakennurum. Fólk sem þiggur atvinnuleysisbætur mun ekki fá pláss á þessum heimilum fyrir börnin sín.
  • Umfangsmikill niðurskurður á sjúkrahúsunum í heilbrigðiskerfinu og félagsþjónustunni er óhjákvæmilegur. Segja verður upp læknum og hjúkrunarfólki og lækka laun þeirra sem eftir verða. Takmarka verður þá læknisaðstoð sem fólk yfir fimmtugt á kost á.
  • Til að milda þennan mikla niðurskurð verður að hækka skatta.

Þá þarf að leysa eftirfarandi á næsta kjörtímabili:

  • Jöklabréf upp á 400 til 500 milljarða vilja komast úr landi.
  • Vegna Icesave falla á ríkissjóð 50 til 500 milljarðar.
  • Sjárvarútvegurinn skuldar 500 til 900 milljarða.
  • Krónan er ekki skráð sem gjaldmiðill erlendis.

Eigum við að ákveða að neita að borgar allar ofangreindar skuldir? Það er ljóst að við munum ekki geta rekið ríkissjóð hallalausan næstu árin hvað þá borgað skuldir.

Mikil hætta er á að sú ríkisstjórn sem þarf að takast á við þessi mál hún hreinlega springi á limminu, slíkar eru ákvarðanirnar sem þarf að taka. Um flestar þessar ákvarðanir verður að nást víðtæk samstaða. 

Það er alveg ljóst að það verða allir að leggjast á eitt ætlum við að vinna okkur út úr þessu. Það er líka eins gott að við Íslendingar förum að gera okkur grein fyrir því að þessi kreppa leysist ekkert hér á landi á einum eða tveim árum. Við erum að horfa á allan næsta áratug hið minnsta. 

Mér fannst tillaga Davíðs Oddsonar um þjóðstjórn síðastliðið haust fáránleg. Í dag er ég orðinn sammála Davíð Oddssyni, það getur enginn nema þjóðstjórn ráðið við þau mál sem þarf að höndla hér næstu þrjú til fjögur árin.

Það er nánast ómannúðlegt að leggja alla ábyrgðina af þessum erfiðu ákvörðunum á einstaka ráðherra og þingflokk hans. Þessi mál verður að leysa í samstarfi.

 


mbl.is 3.500 fyrirtæki gjaldþrota á næstu 12 mánuðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofvaxið bankakerfi og væntanlegur niðurskurður ríkisútgjalda á næsta ári.

Liggur ekki fyrir að núverandi bankakerfi er allt of stórt? Umsvifin hér innanlands hafa dregist mikið saman. Umsvif bankakerfisins erlendis eru væntanlega engin og þeir eru þess utan allir fjárvana.

IMG_1239Eins og staða mála er í dag þá er íslenska bankakerfið 4 til 5 sinnum stærra en þörf er á. Landsbankinn einn í núverandi stærð gæti sjálfsagt sinnt landinu öllu. Með sparisjóðina honum við hlið er íslenska bankakerfið væntanlega miklu meira en fullmannað.

Ekkert verður hróflað við neinu fyrir kosningar en mín tilgáta er sú að áður en árið er runnið þá verður hér bara einn ríkisbanki. Ný ríkisstjórn mun fá það "öfundsverða" hlutverk að skera ríkisútgjöld niður úr 600 milljörðum í 400 milljarða og er ljóst að víða verður að höggva þar sem hlífa hefði þurft. Fjárlögin á næsta ári vera eitthvað á þessa leið:

  • Fyrirsér er algjör uppstokkun á Háskólastiginu, niðurskurður, lokun deilda í Reykjavík og úti á landi. Starfsfólki og kennurum sagt upp.
  • Væntanlega verða allir Háskólarnir sameinaðir í einn og öllum rektorum sagt upp nema einum. Verkfræði og lögfræði sem nú er kennd á tveim stöðum, allt slíkt verður sameinað.
  • Kennslu til meistaranáms væntanlega hætt næstu árin. Nemendum bent á að sækja það nám til útlanda.
  • Kennsla í grunnskólum minnkuð og laun kennara lækkuð, kennurum og starfsfólki sagt upp.
  • Sama þarf að gera í framhaldsskólum.
  • Sveitarfélög munum loka mörgum leikskólum og fækka leikskólakennurum. Fólk sem þiggur atvinnuleysisbætur mun ekki fá pláss á þessum heimilum fyrir börnin sín.
  • Umfangsmikill niðurskurður á sjúkrahúsunum í heilbrigðiskerfinu og félagsþjónustunni er óhjákvæmilegur. Segja verður upp læknum og hjúkrunarfólki og lækka laun þeirra sem eftir verða. Takmarka verður þá læknisaðstoð sem fólk yfir fimmtugt á kost á.
  • Til að milda þennan mikla niðurskurð verður að hækka skatta.

Það mun bíta þá fast þá alþingismenn okkar sem þurfa að standa fyrir þessum aðgerðum. Fyrir þá að skera síðan niður við trog ofvaxið bankakerfi og opinberar framkvæmdir verður átakalítið.

Hugmyndir um að einhverjir vilji kaupa þessa banka, fjárvana með lánadrottnana vokandi yfir þeim, hef ég litla trú á. Meðan nýju bankarnir hafa ekki gert upp við lánadrottnana vegna lánanna sem þeir yfirtóku af gömlu bönkunum, lán sem lánadrottnarnir eiga í raun þá eru þeir ekki söluvara. Það uppgjör getur tekið mörg ár og það uppgjör getur kostað mörg málaferli.

Ég vil taka það fram að þetta hér eru mínar hugleiðingar þar sem ég er að reyna að skyggnast inn í óvissa framtíð. 

Það góða við kreppuna eru róglegheitin og tíminn sem við munum eignast. Nú er um að gera að láta komandi kreppuár verða að bestu árum ævinnar, árunum sem við eyddum með fjölskyldunni og nutum frístunda.

Mynd: Á Þverfellshorni, Esjunni.

 

 


mbl.is Óttast áhlaup á Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað vill eftirsóttasti og uppteknasti maður í heimi til Íslands?

Óvæntur áhugi Forseta Bandaríkjanna á tækniþekkingu okkar Íslendinga og ósk hans um að koma í heimsókn til landsins kom mér í opna skjöldu. Hvað kemur til að sá maður í heiminum sem er mest upptekinn og með þéttustu dagskrána sýnir áhuga á að koma til Íslands? Allir vilja ná fundum þessa manns, allir vilja fá hann til að beita sér fyrir þessu eða hinu, fá hann til að gera þetta eða hitt eða bara sýna sig hér eða þar.

111_1180Hann velur nú í byrjun síns embættisferils að setja heimsókn til Íslands á dagskrá. Af hverju? Af hverju vill hann og starfsmenn hans taka frá tíma á dagskrá þar sem slegist er um hvern einasta klukkutíma til að fara til Íslands? Af hverju ekki til Kína eða Indlands? Og af hverju núna á þessari ögurstund í sögu þjóðarinnar?

Ástæðuna segir Barack vera áhugi sinn á nánara samstarfi Íslands og Bandaríkjanna á sviði jarðhitavinnslu.

Með slíkri heimssókn þá væri Barack að gera miklu meira en baða sig í Bláa lóninu og skoða virkjanirnar á Hellisheiði.

Með honum kæmu margir flugvélafarmar af fréttamönnum. Kastljós heimsins myndi enn á ný beinast að Íslandi. Ísland og allt sem íslenskt er yrði baðað í sviðsljósi fjölmiðlanna þessa daga sem hann dveldi hér. Það yrði enginn sá fjölmiðill í heiminum sem ekki myndi segja frá þessari heimsókn. Í þetta sinn væri það ekki gamla "víkingaeðlið" sem væri að koma okkur í heimsfréttirnar.

Í þetta sinn er það "bændamenning" okkar víkinganna sem hugsanlega er að koma okkur í kastljós heimspressunnar. Hvernig við með elju, dugnaði og þekkingu höfum lært að nýta og nytja náttúru landsins og orkulindir þess þannig að á því sviði stöndum við fremstir meðal jafningja.

Við vitum líka að Barack er að taka til eftir Bush stjórnina um allan heim. Við vitum hvernig samskipti landana hafa verið eftir að bandaríkjamenn fóru héðan án þess að kveðja. Með slíkri heimssókn væri Barack að bæta samskiptin og endurvekja gamlan vinskap þessara þjóða.

Með slíkri heimsókn væri Barack Obama að gefa okkur tækifæri til að sýna þjóðum heims að þó við séum víkingar og í okkur blundi "víkingaeðlið" þá erum við eins og víkingarnir forðum fólk sem setur sér lög og reglur og við búum hér að mikill menningu og tækniþekkingu. Hér er elsta þing í heimi og það var hér fyrir 1000 árum sem þau orð voru mælt sem höggvin eru í stein víða um heim í ólíklegustu byggingum á ólíklegustu stöðum:

"Með lögum skal land byggja en með ólögum eyða".

Komi Barack Obama í heimsókn til Ísland til að skoða hér jarðvarmavirkjanir þá er Forseti Bandaríkjanna að gefa okkur Íslendingum tækifæri til að endurheimta orðspor okkar um allan heim.

Við Íslendingar eigum sem betur fer enn víða vini.

Mynd: Kirkjan á Hofdölum, Skagafirði.

 


mbl.is Áhugi á samstarfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gestirnir á "Hrunadansleiknum" kveðja nú einn af öðrum.

RefurGestirnir sem stofnuðu til "Hrunadansleiksins" kveðja nú einn af öðrum. Ballið er búið, allt uppétið og síðasta kampavínsflaskan tæmd. Enda eins gott fyrir þessa gesti að hafa sig á brott nú þegar gestgjafinn er að ranka úr rotinu og er að átta sig á því að það sem ekki hefur verið brotið því hefur verið rænt.

Að ekki sé minnst á Visareikninginn sem er á leiðinn. Eins gott að þeir sem gestgjafinn treysti fyrir Visakortinu verði horfnir þegar sá reikningur kemur. Vissara að vera horfinn þegar gestgjafinn áttar sig á því að það mun taka hann og börnin hans áratugi að greiða Visaskuldina sem stofnað var til á þeim árunum sem "Hrunadansleikurinn" stóð.

Þá er gott að vera horfinn áður en gestgjafinn skynjar til fulls að gestirnir og vinir þeirra náðu að móðga alla nágrannana í götunni meðan á ballinu stóð með drykkjulátum og náðu þar að auki að féflett stóran hluta þeirra.

Mynd: Refur upp í Veiðivötnum með dauðan álftarunga.


mbl.is Valgerður kvaddi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjaldeyrishöftin ekki til að auka áhuga erlendra fjárfesta á Íslandi.

IMG_1237Lögin sem sett voru til að herða gjaldeyrishöftin eru ekki beint til að auka áhuga erlendra fjárfesta á Íslandi. Sömuleiðis er þessi mikli fjöldi lagabreytinga sem samþykktur hefur verið síðustu daga ekki beint fallin til þess að auðvelda mönnum að átta sig á hvert verður lagaumhverfi fyrirtækjanna í landinu þegar þessum breytingum öllum er lokið.

Ástæður þessara hertu gjaldeyrishafta eru sagðar þær að kominn var tvöfaldur markaður með íslenskar krónur. Seðlabankinn var með sitt opinbera gengi en erlendis er verið að selja krónuna á miklu lægra verði. Með því að setja hertari reglur um meðferð gjaldeyris er verið að reyna að koma í veg fyrir þetta tvöfalda gengi á íslensku krónunni.

Þessi gjaldeyrishöft eru mjög tvíeggja vopn. Íslensku krónurnar sem vilja verða að evrum munu finna sér nýjan farveg. Þegar það gerist ætla menn þá að herða enn á reglunum?

Það verður að finna aðra lausn en þessa að setja slík höft á meðferð gjaldeyris inn og út úr landinu. Það verður að leysa þetta vandamál með krónubréfin. Er ekki betra að láta krónuna taka dýfu í hálft ár eða svo meðan verið er að koma þessum fjármunum úr landi heldur en að vera hér með gjaldeyrishöft næstu árin?

Ef eitthvað fælir erlenda frjárfesta frá landinu þá eru það gjaldeyrishöft eins og þessi.

 


mbl.is Langir vinnudagar á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eini bankinn á Íslandi sem ekki er á framfæri ríkisins.

bankar aSérkennilegt er að lesa það að Nýi Kaupþing banki reyni að koma í veg fyrir það að hér verið til nýr viðskiptabanki sem ekki er annað hvort í eigu ríkisins eða í gjörgæslu hjá ríkinu.

Ég ætla ekki að viðhafa mörg orð um það hvað mér finnst um þessa afstöðu bankans annað en að í þeim banka virðist ekkert hafa beyst. Það síðast sem tekið er tillit til í rekstri þess banka eru hagmunir almenning í landinu.

 

 


mbl.is Lögðust gegn sölu SPRON
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband