Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Norðmenn að hætta sem handrukkarar Breta og Hollendinga?

Það er gleðiefni ef Norðmenn hafa ákveðið að snúa við blaðinu í afstöðu sinni til Icesave og fyrirgreiðslu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, AGS. Vonandi að rétt reynist að þeir skilyrða ekki lengur lán sitt við að Icesave verði frágengið.

IMG_0026Norðmenn ætla þar að auki að beita sér fyrir því að önnur endurskoðun AGS fari fram þó svo að Icesave verði ófrágengið.

Gangi þetta eftir og AGS endurskoðar efnahagsáætlun Íslands og fyrsti hluti lánsins frá Norðurlöndunum berst okkur Íslendingum, þá er okkar staða gagnvart Bretum og Hollendingum gjörbreytt.

Gangi þetta eftir þá eru Bretar og Hollendingar ekki lengur með kverkatak, hreðjatak og þumalskrúfur á ríkistjórn Íslands.

Vonandi að þetta gangi eftir og ráðherrar okkar fari að verja málstað okkar hér heima og erlendis á sama hátt og forseti Íslands hefur gert.

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 

 


mbl.is Norðmenn breyta um Icesave-stefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er umhverfisráðherra hryðjuverkamaður eða frelsishetja?

Með því að hengja sig á smáatriði í Skipulags- og byggingalögum hefur umhverfisráðherra tekist að stöðva um óákveðin tíma allar framkvæmdir við virkjanir í neðri hluta Þjórsár.

IMG_0025Einhver hluti kjósenda VG fagnar í dag og horfir til Svanhvítar Svavarsdóttur sem frelsishetju. Frelsishetju sem er að takast að stöðva hin illu öfl sem vinna leynt og ljóst að því að eyðileggja náttúru Íslands.

Hinn hluti þjóðarinnar lítur á Svanhvíti Svavarsdóttur sem hryðjuverkamann sem með framgöngu sinni er að valda þjóðinni miklu tjóni.

Ég tilheyri síðari hópnum.

  • Mér er algjörlega fyrirmunað að skilja að ráðherra í ríkistjórn Íslands  skuli með öllum ráðum reyna að leggja stein í götu atvinnuuppbyggingar á Íslandi.  
  • Mér er algjörlega fyrirmunað að skilja þessa pólitík að sum starfsemi sem skapar hér störf og tekjur, þau störf eru velkomin en önnur störf, jafn vel ef ekki betur borguð, þau eigi að forðast eins og pestina.
  • Mér er algjörlega fyrirmunað að skilja það fólk sem reynir með öllum ráðum að koma í veg fyrir það að þjóðin nýti náttúruauðlindir sínar. 

Íslands óhamingju verður allt að vopni þessi misserin.

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Synjar skipulagi við Þjórsá staðfestingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verklítil ríkistjórn fagnar árs afmæli.

Í dag fagnar ríkistjórnin árs afmæli. Ríkisstjórnin tók við slæmu búi fyrir ári síðan. Á þessu ári sem liðið er hefur ríkisstjórninni tekist að gera slæmt ástand enn verra.

IMG_0024Hver mistökin á eftir öðrum hafa verið gerð. 

  • Ríkisstjórnin valdi að semja við Breta og Hollendinga um Icesave á grunni óboðlegs samningsuppkasts sem fyrri ríkisstjórn hafði klúðrast til að undirrita við annan aðilan, Hollendinga, í október 2008. Ríkistjórnin valdi að þvinga óboðlegan nauðasamning í gegnum þingið með þeim afleiðingum að 25% atkvæðisbærra manna á Íslandi varð svo misboðið að hann skoraði á forseta Íslands að synja þessum Icesave lögunum staðfestingar. Ríkisstjórnin á nú í stríði við þjóð sína og forseta með óboðlegan nauðasamning í höndunum sem hún er enn að verja og krefst að þjóðin samþykki.
  • Ríkisstjórnin hefur ekkert gert í því að taka upp málstað okkar Íslendinga gagnvart Bretum og krafist bóta vegna þess tjóns sem hér varð þegar Bretar settu á okkur hryðjuverkalög og lýstu því yfir á alþjóðlegum vettvangi að Ísland væri gjaldþrota. Þessi árás Breta á okkur er einhver svívirðilegasta efnahagsárás sem nokkurt ríki í vestur Evrópu hefur orðið fyrir frá stríðslokum. Ríkisstjórnin hefur valið í þessu máli að setja kíkirinn fyrir blinda augað, að sjá ekki neitt, að gera ekki neitt.
  • Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í þágu skuldavanda heimilana hafa verið með þeim hætti að það mætir stækkandi hópur mótmælenda um hverja helgi til að mótmæla þeim vettlingatökum sem stjórnvöld hafa hingað til boðið almenningi upp á. Hagsmunir fjármagnseigenda og fjármálastofnana eru látnir hafa allan forgang. Skjaldborg heimilana byggist á því að ef greiðslubyrgði er tímabundið lækkuð þá munu bankarnir vinna það allt upp og rúmlega það á komandi árum. Skjaldborg var slegin um bankana, ekki um heimilin.
  • Lítið fer fyrir aðgerðum ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum. Umhverfisráðuneytinu er beitt með öllum ráðum til að stöðva þau fáu verkefni sem enn er verið a skoða. Lítið er gert til að nýta þau tækifæri sem eru í hendi og eru í boði. Til marks um það þá hefur ekki eitt einasta starf enn orðið til í samstarfi ríkisstjórnarinnar og lífeyrissjóðanna. Eina sjáanlega framlagið til atvinnumála á þessu fyrsta ári ríkisstjórnarinnar er að Vinnumálastofnun fór að aðstoða Íslendinga við að fá vinnu erlendis og aðstoða ungar íslenskar barnafjölskyldur að flytja úr landi.
  • Ríkisfjármálin voru leyst á þann billegasta hátt sem hugsast gat. Allir liðir sem heita framkvæmdir og viðhald voru einfaldlega fjarlægðir úr fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2010. Það sem upp á vantaði til að loka fjárlagagatinu verður sótt með því að hækka skatta. Lítið sem ekkert hefur enn verið tekið á ofvexti ríkisins undanfarin góðærisár.

Vandamál þessarar ríkistjórnar felst ekki í því að ráðherrar hennar vinni ekki nógu langa vinnudaga. Það að eiða 16 til 18 tímum á dag í vinnunni og sitja ótal fundi, það hefur ekkert með það að gera hverju menn koma í verk.

Í sumarfríum sínum dytta margir að eignum sínum. Það tekur suma heimilisfeður einn morgun að mála eitt lítið barnaherbergi. Aðra heimilisfeður tekur það marga daga að mála eitt lítið barnaherbergi og eru þeir þó að sívinnandi við að mála herbergið frá morgni til kvölds. Það eru verklitlir menn.

Þessi ríkisstjórn er verklítil.

Ef ríkisstjórnin ætlar að halda áfram stríði sínu við forsetann og þjóðina í Icesave málinu, ætlar ekkert að gera varðandi hryðjuverkaárás Breta á okkur, slær skjaldborg um bankana en ekki heimilin, hefur ekkert frumkvæði í að skapa störf strax með sértækum aðgerðum í atvinnumálum í samvinnu við lífeyrissjóðina og leysir ríkisfjármálin með því einu að ráðast á verktaka- og byggingarstarfsemina í landinu og hækka skatta, þá er þetta ríkisstjórn sem þjóðin þarf að losa sig við hið fyrsta.

Það er ekki verklítil ríkistjórn sem þjóðin þarf nú á að halda. Nú þarf að láta verkin tala.

Er einhver von til þess að þessi ríkisstjórn vendi sínu kvæði í kross og fari að láta verkin tala?

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Mörg stórmál óleyst á ársafmæli stjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn til sóma

Mikið er ánægjulegt að fylgjast með hvernig forseti Íslands tekur upp hanskann fyrir Íslenska þjóð í erlendum fjölmiðlum í þessu flókna deilumáli sem Icesave deilan er.

IMG_0023Mikið er ánægjulegt að lesa ummæli forsetans í erlendum fjölmiðlum þar sem hann kynnir málstað Íslands af næmni og þekkingu.

Mikið er ánægjulegt að æðsti embættismaður okkar Íslendinga og sá eini sem við kjósum á fjögurra ára fresti í beinni kosningu til að fara með framkvæmdavaldið, skuli berjast með oddi og egg í erlendum fjölmiðlum að verja málstað okkar Íslendinga.

Mikið er ánægjulegt að loks hafi athygli umheimsins verið dregin að þeirri svívirðilegu aðför og því gríðarlega tjóni sem hér varð þegar Bretar settu hryðjuverkalög, ekki bara á Kaupþing og Landsbankann, heldur einnig á íslenska Fjármálaráðuneytið og Seðlabanka Íslands.

Mikið er dapurt að þeir ráðherrar sem forseti hefur falið að framkvæma vald sitt skuli ekki feta í fótspor forsetans og berjast með sama hætti fyrir málstað Íslands í erlendum fjölmiðlum.

Mikið er dapurt að þeir ráðherrar sem forseti hefur falið að framkvæma vald sitt skuli ekki enn hafa gert kröfur um bætur úr hendi Breta vegna þess tjóns sem hér varð þegar Bretar settu á okkur hryðjuverkalög sem varð til þess að Kaupþing og restin af íslenska bankakerfinu féll. Tjónið sem hér varð vegna þessarar efnahagsárásar Breta á Ísland er sambærilegt við það og ef þeir hefðu sent hingað sprengiflugvélar og jafnað hálfa Reykjavík við jörðu.

Nú þarf þjóðin að taka slaginn með forsetanum og þeim fjórðungi þjóðarinnar sem skoraði á forsetann að synja Icesave lögunum staðfestingar og vill fella þennan samning.

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is „Það er verið að kúga okkur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Illa líst mér á ferð forystumanna okkar til Hollands.

Mér líst illa á að forystumenn stjórnmálaflokkana fari til fundar við embættismenn Hollendinga og Breta.

IMG_0022Eini tilgangur þess fundar er að draga forystumenn stjórnarandstöðunnar fram fyrir þaulæfða og þjálfaða samningamenn Breta og Hollendinga í þeim tilgangi að láta þessa erlendu sérfræðinga lesa þeim pistilinn og hóta þeim öllu illu.

Þeir fundir sem forystumönnum stjórnarandstöðunnar á Íslandi verður boðið upp á í þessari ferð verður þaulæft sjónarspil þar sem okkar menn hafa litla sem enga möguleika að verja sig og sínar skoðanir. Þessi ferð verður notuð til að ná taki á forystumönnum stjórnarandstöðunnar á Íslandi og setja á þá þumalskrúfurnar.

Þetta mál er samkvæmt stjórnarskrá komið úr höndum ríkisstjórnarinnar og úr höndum flokkana. Framundan er þjóðaratkvæðagreiðslan. Felli þjóðin þennan samning í þeirri atkvæðagreiðslu þá er þetta mál úr sögunni af hálfu Íslending og engin ríkisábyrgð verður veitt á einu né neinu. Sitji Bretar og Hollendingar við sinn keip og óska samt eftir ríkisábyrgð þá eiga þeir að koma til okkar og óska eftir henni. Þeir fundir eiga þá að fara fram á Íslandi.

Í nýjum samningaviðræðum eigum við að taka inn viðræður um fjárhagstjónið sem hér varð þegar Bretar beittu hryðjuverkalögum í október 2008 á Seðlabanka Íslands, fjármálaráðuneytið, Kaupþing og Landsbankann og frystu allar eignir þessar aðila inni á Bretlandi, þar á meðal gull- og gjaldeyrisforða ríkisins sem er geymdur í London. Þetta tjón má meta svipað og ef Bretar hefðu sent hingað sprengjuflugvélar og jafnað hálfa Reykjavík við jörðu. Okkur ber skylda til að krefjast bóta vegna þess tjóns sem hryðjuverkalögin hafa valdið okkur, þar með talið fall Kaupþings. Gleymum því ekki að við veðjuðum á að Kaupþing myndi ekki falla. Seðlabankinn lánaði Kaupþingi stærsta lán Íslandssögunnar, 500 milljónir evra, nokkrum dögum áður en Bretar felldu bankann með hryðjuverkalögum. Í nýjum samningaviðræðum sem við færum í að ósk Breta eigum við að bjóða þeim eftirfarandi:
  • Bretar láta Icesave niður falla. Á móti láta Íslendingar allar kröfur niður falla vegna þess fjárhagstjóns sem hér varð þegar Bretar settu á okkur hryðjuverkalög. 

Er þetta ekki sanngjörn og eðlileg leið til að ljúka þessu máli?

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Utan til funda vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seðlabankastjóri fór með sína útgáfu af Þorraþrælnum.

Það er ljóst að í augum fjárbóndans á Svörtuloftum geisar hér enn ofsaveður með miklum frosthörkum og jarðbönnum. Ekkert vit er að hleypa fénu í fjárhúsum Svörtulofta á beit utandyra. Þar er því voðinn vís, þar mun það allt falla.

IMG_0021Halda verður áfram fullri gjöf á húsi. Að minnka gjöf núna að einhverju marki þýðir að féð gæti orðið svangt og farið að leita út og þá skapast hætta á fjárfelli. Lítillega skal þó minnka gjöfina þannig að féð fitni áfram en hlaupi ekki í spik.

Eru þetta búhyggindi hjá fjárbóndanum á Svörtuloftum eða glópska?

 

Líklega hefðu fleiri landsmenn skilið Seðlabankastjóra ef hann hefði einfaldlega staðið upp á fundinum í morgun og lesið upp hægt og rólega eftirfarandi:

 

 

Nú er frost á Fróni,
frýs í æðum blóð,
kveður kuldaljóð
Kári í jötunmóð.
Yfir laxalóni
liggur klakaþil,
hlær við hríðarbyl
hamragil.
Mararbára blá
brotnar þung og há
unnarsteinum á,
yggld og grett á brá.
Yfir aflatjóni
æðrast skipstjórinn,
harmar hlutinn sinn
hásetinn.

Horfir á heyjaforðann
hryggur búandinn:
,,Minnkar stabbinn minn,
magnast harðindin. -
Nú er hann enn á norðan,
næðir kuldaél,
yfir móa og mel
myrkt sem hel.
Bóndans býli á
björtum þeytir snjá,
hjúin döpur hjá
honum sitja þá.
Hvítleit hringaskorðan
huggar manninn trautt;
Brátt er búrið autt,
búið snautt.

Þögull Þorri heyrir
þetta harmakvein
gefur grið ei nein,
glíkur hörðum stein,
engri skepnu eirir,
alla fjær og nær
kuldaklónum slær
og kalt við hlær:
,,Bóndi minn, þitt bú
betur stunda þú.
Hugarhrelling sú,
er hart þér þjakar nú,
þá mun hverfa, en fleiri
höpp þér falla í skaut.
Senn er sigruð þraut,
ég svíf á braut.



Kristján Jónsson
1842 - 1869

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Óvissa um efnahagshorfur eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun fjárbóndinn á Svörtuloftum minnka gjöfina á garðann?

Á morgun tekur fjárbóndinn á Svörtuloftum og húskarlar hans ákvörðun um hvort minnka eigi gjöfina á garðann næsta mánuðinn. Hrakviðrið sem hefur geisað undanfarin misseri er að mestu gengið niður og því ætti að vera óþarfi að halda öllu fénu á húsi.

IMG_0019Þó bóndi hafi minnkað nokkuð gjöfina undanfarna mánuði þá velur féð samt að hanga á húsi. Það þorir ekki út þó veðrið sé orðið skaplegt og víða megi finna græn tún og engi. 

Eftir mikinn fjárfellir undanfarinna missera er féð hrætt og allir vilja vera gætnir en bóndi veit líka að það eru lítil búhyggindi að hafa féð allt á húsi.

Eina leiðin til að ná fénu út er að minnka gjöfina á garðann. Ef bóndi minnkar gjöfina þá verður féð svangt og byrjar að leita út. Þar bíða víða grænir balar og brekkur. Minnki bóndi verulega gjöfina þá má jafnvel ætla að aðkomuféð sem mikið er af og hraktist inn í fjárhúsin á Svörtuloftum í ofsaveðrum síðustu missera, það fari líka að kíkja út á grænar nálar.

Smalarnir bíða óþreyjufullir eftir að bóndi minnki gjöfina á garðann svo eitthvað af fénu fari að kíkja út og fari að bíta úr nálinni. Eins og góðum smölum sæmir þá vita þeir um marga góða bala og brekkur þar sem féð verður fljótt vænt og bústið komist það þar á beit.

En meðan fjárbóndinn á Svörtuloftum gefur jafn vel á garðann og nú þá heldur féð sig innandyra því féð gerir meira en halda holdum á fóðrum hjá bónda, það fitnar. Á meðan staðan er þannig þá sitja smalarnir aðgerðarlausir og ekkert fé bítur grænu balana og brekkurnar.

Á meðan ekkert fé bítur balana og brekkurnar gengur hratt á stabbann hjá bónda.

Hvað gerir fjárbóndinn á Svörtuloftum á morgun?

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Spáir lækkun stýrivaxta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

InDefence með mótleik gegn þunglyndisrausi ríkistjórnarinnar.

Frá því forseti synjaði Icesave lögunum staðfestingar þá hafa stjórnvöld farið hamförum. Endalausar heimsenda- og hamfaraspár hafa dunið á þjóðinni. Þá hafa forystumenn ríkisstjórnarinnar verið óþreytandi að úthúða þeim sem skoruðu á forsetann að hafna Icesave lögunum staðfestingar. 

IMG_0018Þessi áróður ríkisstjórnarinnar hefur dunið á þjóðinni með vaxandi þunga. Síðast í gær var fyrrum aðstoðarmaður formanns íslensku samninganefndarinnar mættur að eigin ósk í Silfur Egils til að hóta þjóðinni með eldi og brennisteini felli hún samninginn. Þessi fyrrum aðstoðarmaður Svavars Gestssonar skautaði reyndar þannig á atriðum málsins að ég skildi ekki samhengið í því sem hann var að segja. Það eina sem ég skildi voru þessar innihaldslausu hótanir sem við höfum svo oft heyrt og að það yrði bara að samþykkja þetta mál alveg óháð því að allir eru því sammála að þetta eru óréttlátir nauðasamningar sem engin vill eða ætti að samþykkja. Við yrðum samt að samþykkja þá. Ekki var þetta framlag aðstoðarmannsins til að bæta skilning minn á þessu máli.

Mig óar við ef það verða slíkir menn sem leiða umræðuna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Menn eins og alþingismaðurinn sem hótaði forsetanum í fjölmiðlum að forseti yrði að skrifa undir Icesave lögin ekki síðar en sunnudaginn 3. janúar annars hryndi Íslenski hlutabréfamarkaðurinn þegar markaðir opnuð á mánudagsmorgni. Forsetinn skrifaði ekki undir og að sjálfsögðu haggaðist hlutabréfamarkaðurinn ekkert. Allar þessar hótanir, allar þessar heimsendaspár, allt þetta þunglyndisrugl, ekkert af þessu hefur ræst. Þetta hefur allt reynst innantómt raus fólks með rangt mat og ranga sýn á stöðu mála. Ég verð nú bara að segja það, mér finnst þetta fólk sem sér svona ofboðslegt svartnætti framundan að það er eins og lífið sé nánast búið hafni þjóðin Icesave, þetta fólk eigi að leita sér aðstoðar. Það eru til lyf við svona þunglyndi.

Þess vegna fagna ég í dag þessu framlagi InDefence að fara í fundarherferð um landið. Þeir sem standa að þessu áhugamannafélagi, þeir tala skiljanlegt mál, þeir skilja út á hvað málið gengur og þeir geta miðlað þeim skilningi til annarra.

Einhver von er nú til þess að þjóðin fái líka réttar og hlutlausar upplýsingar um þetta Icesave mál.

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 

 

 


mbl.is Indefence á leið í fundaherferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Leggja til" sameiningu stofnana.

Þetta er kunnuglegt orðalag. Þetta höfum við öll heyrt svo oft áður. Nefnd "leggur til" að farið verði í aðgerðir til að auka hagræði og skilvísi í stjórnsýslunni.

IMG_0017Þegar slíkar skýrslur hafa verið lagðar fram er gert upp við nefndarmenn og skýrslunni komið þægilega fyrir í einhverjum skjalaskápnum. Næsta mál takk.

Þannig hafa hlaðist upp fjöldi skýrslna og álita í skjalageymslunum ráðuneytanna, skýrslur og álit sem engin gerir síðan neitt með.

Er einhver von til þess að núverandi ríkisstjórn komi þjóðinni þægilega á óvart og framkvæmi eitthvað af loforðum sínum um breytingar á stjórsýslunni eða breyti skipan stjórnsýslustofnana eins og þessi nefnd leggur til? Hefur einhver trú á því að þessi ríkisstjórnin fari í breytingar á stjórnsýslunni sem hafa í för með sér sparnað og jafnvel fækkun stjórnenda og starfsfólks?

Hefur einhver trú að því að þessi ríkistjórn hafi vilja og getu til að berja slíkar breytingar í gegnum embættismannakerfið? Embættismannakerfi sem engum hefur hingað til tekist að hrófla við?

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum. 

 

 


mbl.is Stjórnsýslustofnanir sameinist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Icesave kosningin snýst um lífsýn bóndans og víkingsins.

Það eru áhöld um það í samfélaginu hvort þjóðin standi sterkari eftir taki hún á sig auknar skuldbindingar og lán með því að samþykkja Icesave-2. Hér skiptast menn í tvo hópa.

IMG_0015Annar hópurinn heldur því fram að því meira af skuldbindingum og lánum sem þjóðin tekur því betra verði orðspor hennar í útlöndum og með auknum lánum verði hún líklegri til að geta staðið í skilum.

Hinn hópurinn heldur því fram að því minna af skuldbindingum og lánum sem þjóðin tekur því betra verði orðspor hennar í útlöndum og með lægri lánum verði hún líklegri til að geta staðið í skilum.

Um þetta er það mikill ágreiningur að efnt hefur verið til þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars nk. til að fá úr því skorið hvora leiðina þjóðin vill fara. 

Á Landnámsöld voru forfeður okkar ýmist bændur eða víkingar. Í eðli sínu snýst þessi þjóðaratkvæðagreiðslan um lífsýn bóndans og víkingsins.

  • Víkingurinn vill taka meiri lán og taka á sig meiri skuldbindingar því víkingurinn telur að því meiri sem lánin eru því auðveldara verði að borga af þeim.
  • Víkingnum er umhugað um orðspor sitt í útlöndum, vill láta tala vel um sig og vill líta vel út þegar hann spókar sig um í höllum erlendra höfðingja.

 

  • Bóndinn vill ekki taka meiri lán, lán sem hann er ekki 100% viss um að geta staðið við að greiða af. Bónda finnst nóg komið af lántökum og skuldbindingum. Nú er mál að linni.
  • Bóndinn blæs á eitthvað ímyndað orðspor í útlöndum. Bóndi veit að þar þarf ekkert orðspor til þess að selja fisk, veitingar og ál.

Á hitt ber að líta að á meðan ekki er deilt um alvarlegri hluti en peninga og fjármál á Íslandi þá erum við í góðum málum.

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Styðji Ísland af öllum mætti verði útkoman nei
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband