Miðvikudagur, 30. desember 2009
Forsetinn og undirskriftalisti InDefence nú Íslands eina von.
Ég skora á alla þá sem ekki hafa þegar skráð sig á undirskriftalista InDefence að gera það nú þegar og skora á forsetann að synja Icesave lögunum staðfestingar og láta þjóðina kjósa um málið.
Tæp 53.000 hafa þegar skrifað undir.
Sjá undirskriftarlistann hér:
Sjá einnig þessa grein hér
- Forsetinn er kominn upp að vegg vegna undirskriftalista InDefence.
- Vinna Mikki mús og Adolf Hitler í stjórnarráðinu.
![]() |
Alþingi samþykkti Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 31.12.2009 kl. 23:37 | Slóð | Facebook
Miðvikudagur, 30. desember 2009
Stjórnarslit og nýjar kosningar, takk!
Eftir allar þessar uppákomur í þessu Icesave máli þar sem endalaust eru að koma fram ný gögn sem stjórvöld hafa vitað af en reynt að koma í veg fyrir að yrðu gerð opinber þá er ég alveg hættur að treysta núverandi stjórnvöldum. Sama tilfinningin og ég hafði í fyrra gagnvart þeim stjórnvöldum sem þá voru við völd er komin aftur.
Í fyrra óttaðist ég að þáverandi stjórnvöld, ríkistjórn Geirs Haarde, réði ekkert við það verkefni sem hún var að kljást við og ríkisstjórnin væri að gera hvert axarskaftið á eftir öðru. Allt var síðan gert og öllu kostað til að hylma yfir mistökin. Allt var gert til að koma í veg fyrir að það fréttist hvaða mistök höfðu verið gerð. Þá hafði ég það á tilfinningunni að ríkisstjórnin væri að verða hættuleg vegna þess skaða sem hún var að valda þjóðinni. Sama tilfinning gerir nú vart við sig.
Trúverðugleiki stjórnvalda er að verða lítill sem enginn. Þessar tvær setningar úr fréttum nú í morgun segja meira en mörg orð.
- Það benda mjög sterkar líkur til þess, að lögfræðistofuna misminni hressilega þegar hún fullyrðir að hún hafi kynnt utanríkisráðherra þetta með glærusjói" sem utanríkisráðherra hafði aldrei séð og vissi ekki að væri til," sagði Steingrímur.
- Svavar Gestsson, formaður samninganefndar um Icesave, neitaði að koma fyrir fjárlaganefnd.
Nú á þjóðin að trúa annað hvort orðum utanríkisráðherra eða orðum einnar virtustu lögfræðistofu Bretlands. Hverslags staða er það?
Í framhaldi af þeirri frétt upplýsist það að formaður samninganefndar um Icesave neitar að koma fyrir fjárlaganefnd að ræða ásakanir um yfirhylmingar og að hann hafi falið og haldið upplýsingum leyndum fyrir stjórnvöldum. Ef rétt reynist þá er það með ólíkindum.
Ég spyr:
Hagsmuna hverra eru og hafa stjórnvöld verið að gæta í þessu Icesave máli?
Því miður, ég átta mig ekki á því.
Það eina sem mér er orðið ljóst er að stjórnvöld eru ekki að gæta hagsmuna barnanna minna í þessu máli.
Þessi stjórnvöld eiga að fara frá og við eigum að kjósa á ný um páska. Það er búið að sýna sig að þeir ráðherrar sem sitja nú sem ráðherrar og sátu sem ráðherrar í hrunastjórn Geirs Haarde, þetta fólk verður allt að fara. Annars heldur sama ruglið áfram með sömu leikendum og sömu leikstjórum.
Við verðum að kosta því til að fara í kosningar svo fljótt sem auðið er á næsta ári svo Samfylkingin geti endurnýjað forystu sína og Sjálfstæðisflokkurinn geti haldið áfram með sína endurnýjun. Við verðum að endurnýja meira þetta fólki á þingi og losa okkur við alla gömlu hrunaráðherrana og koma þeim þarna út. Það á að vera sameiginlegt verkefni allra þessara flokka.
Stjórnarslit og nýjar kosningar, takk.
Mynd: Suður- og vesturhluti Hofsjökuls.
![]() |
Svavar neitaði að mæta á fundinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:33 | Slóð | Facebook