Föstudagur, 19. nóvember 2010
Farið í manninn en ekki boltann.
það var aðall íslenskrar knattspyrnu til skamms tíma að fara í manninn en ekki boltann. Sú hefð hefur mikið breyst á síðustu árum. Knattspyrnan hér heima hefur þróast mikið og þroskast.
Ekkert hefur hins vegar breyst hjá íslenskum fjölmiðlamönnum.
Fjölmiðlamenn vaða ennþá í manninn en ekki boltann.
Lítið hefur breyst í íslenska fjölmiðlaheiminum og hvernig fjölmiðlamenn nálgast umræðuna. Allt er við það sama á þeim vettvangi og var á tímum Kalda stríðsins. Fjölmiðlamenn spila enn sinn bolta á mölinni á Melavellinum á sama tíma og samfélagið spilar sinn bolta á gerfigrasi í knattspyrnuhúsum.
Með einmitt svona vinnubrögðum þá eru frétta- og blaðamenn búnir að reka allt sómakært fólk út úr sviðsljósinu og út úr stjórnmálunum.
Ég held að fjölmiðlafólk þessa lands verði að fara að átta sig á því að í dag er hér allt annar veruleiki en var.
Fjölmiðlafólk, gefið þessu áhugafólki (eins og Marinó G Njálssyni) sem er að koma fram á sjónarsviðið, fólki sem er hvert með sínum hætti og hvert á sínu sviði að takast á við þetta mikla pólitíska og efnahagslega hrun, gefið þessu fólki grið.
Ekki greint frá skuldum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:09 | Facebook
Athugasemdir
Takk fyrir þetta, Friðrik. Ég hef sagt að aðall fréttamannsins sé að fjalla um hluti af hlutleysi, því um leið og hann glatar þeim eiginleika, þá breytist hann í pólitískan skríbent eða leigupenna.
Marinó G. Njálsson, 20.11.2010 kl. 21:44