Fimmtudagur, 19. ágúst 2010
Neyðarlögin stærsta "rán" í sögu Evrópu?
Var íslenski bankamálaráðherrann undrandi á því að evrópskir ráðamenn voru honum fjandsamlegir eftir að hann og íslenska ríkisstjórnin hafði breytt öllum leikreglum á íslenska fjármálamarkaðnum og framið eitt stærsta "rán" sem nokkurn tíma hefur verið framið í sögu Evrópu?
"Rán" sem fólst í því að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, Þingvallarstjórnin, ákvað að ræna þá banka og fjármálastofnanir sem höfðu átti í viðskiptum við íslensku bankana og höfðu lánað íslensku bönkunum fé. Það fé sem ríkisstjórnin tók með þessum hætti af lánadrottnum gömlu bankana það fé fengu innistæðueigendur í hendurnar.
Með því að breyta lagarammanum á íslenska fjármálamarkaðnum á einum næturfundi í byrjum október 2008 þá var þetta "rán" mögulegt í skjóli þess að Ísland er sjálfstætt ríki og setur sín eigin lög og það er ríkistjórn og Alþingi sem saman framkvæma þetta "rán". Það sem mestu skipti í þeirri breytingu sem gerð var með setningu neyðarlaganna er að innlán voru gerð að forgangskröfu. Það þýðir að þegar þrotabú bankana eru gerð upp þá fá innistæðueigendur allt sitt fyrst. Síðan kemur að öðrum kröfuhöfum.
Þannig voru lögin og reglurnar ekki þegar Deutscke bank, HSBC, Commerce bank og allar hinar fjármálastofnanirnar lánuðu íslensku bönkunum fé. Þvert á móti, þá voru þessi innlán eingöngu tryggð af Tryggingasjóði innistæðueigenda og fjárfesta.
Er að undra þó ráðmenn í Evrópu hafi verið fjandsamlegir við íslenska bankamálaráðherrann eftir að hann og ríkisstjórnin sem hann sat í framdi eitt allra stærsta "rán" ef ekki það stærsta sem framið hefur verið í Evrópu þegar hann og ríkisstjórnin "rændi" á annað þúsund milljörðum frá öllum helstu fjármálastofnunum Evrópu og setti það fé í hendurnar á innistæðueigendum?
Er að undra?
Sjá nánar um stærsta "rán" Íslandssögunnar í þessum pistli hér:
Skjaldborg slegin um stærsta "rán" Íslandssögunnar.
Mynd: Meyjarós í Reykjavík.
Bildt var fjandsamlegur í garð Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:31 | Facebook
Athugasemdir
Og sundraður almenningur sættir sig við þetta.
Almenningur á sér engann talsmann
Takmarkað aðgengi að fjölmiðlum rödd almennings heyrist ekki
Kannski væri reynandi að kæra þetta rán til Lögreglu
Ég er með
Kveðja
Æsir (IP-tala skráð) 19.8.2010 kl. 20:05
Nú er ég ekki hagfræðimenntaður, en mér sýnist að þetta "rán" hafi fyrst og fremst orðið til þess að kröfuhafar í Landsbankanum munu tapa sínu vegna forgangs Icesave krafnanna í þrotabúið. Hvað aðra banka varðar urðu neyðarlögin fyrst og fremst til að koma í veg fyrir áhlaup á bankana. Innstæðurnar eru enn að mestu leyti í (nýju) bönkunum þannig að kröfuhafar fá meira fyrir sinn snúð en ella, þar sem ekki þarf í raun að borga innstæðurnar (þær eru því ekki í praxís í kröfuröðinni). Helsta tap kröfuhafa bankanna er fyrst og fremst froðuútlán til viðskiptavina sem ekki hafa reynst borgunarmenn, "eigur" bankanna voru gabb. Ránið var ekki framið af Alþingi, heldur Sigurði, Björgólfi og Bjarna auk hinna krimmanna og meðreiðarsveina þeirra.
Ómar Harðarson (IP-tala skráð) 19.8.2010 kl. 20:05
Þetta "rán" er nákvæmlega sama aðferðarfræði og bandaríkjamenn notuðu við skiptingu á WaMu bankanum stóra. Sá banki hafði einfaldlega of mikill innlán til að hægt hefði verið að leyfa honum að steypast í venjulegt gjaldþrot, þjóðfélagið hefði ekki þolað það.
Nákvæmlega sama sagan og hér. Skuldabréfaeigendur, innlendir og erlendir, geta ekki ætlast til þess að vera jafn réttháir venjulegum innlánseigendum þegar svo stórir innlánsbankar fara undir.
En það er augsýnilegt hvar samúð þín liggur. :)
Kalli (IP-tala skráð) 19.8.2010 kl. 21:40
Sæll Ómar
Ef tilgangur neyðarlaganna var að koma í veg fyrir áhlaup á bankana þá var nóg að skipta um kennitölu á bönkunum. Engin hefði þá geta tekið út sitt fé og þar með hefði ekkert áhlaup orðið. Innistæður hefðu þá verið tryggðar samkvæmt þeim lögum og reglum sem giltu hér og á EES svæðinu.
Þetta með WaMu bankann þekki ég ekki. Yfir 100 bankar hafa farið í gjaldþrot í BNA það sem af er ári. Þessi fullyrðin þín að samfélög þoli ekki að ákveðnir einstaklingar og félög tapi fé það skil ég ekki. Ég skil hins vegar að samfélög þola það ekki að vera drekkt í skuldum við það að tryggja þessar innistæður og til að halda gjaldþrota bönkum gangandi.
Sæll Kalli
Lestu hinn pistilinn, Skjaldbor slegin um stærsta "rán" Íslandssögunnar. Þá sérð þú hvar samúð mín liggur.
Friðrik Hansen Guðmundsson, 20.8.2010 kl. 00:57
Þá eru allar ríkistjórnir í Evrópu ræningjar líka, allar kepptust við að lýsa yfir hinu sama.
Kristján Sigurður Kristjánsson, 20.8.2010 kl. 17:27
Sæll Kristján
Ég vil benda þér á eftirfarandi:
Þess vegna líta fjölmargir útlendingar á okkur Íslendinga sem "ræningjalýð", því miður.
Þess vegna er það svo nauðsynlegt að við losum okkur við þetta fólks úr öllum opinberum trúnaðarstörfum sem sat í ríkisstjórn og á þing og framdi þennan gjörning, þetta "rán".
Fyrr getum við Íslendingar ekki byggt á ný upp trúnað gagnvart þjóðum heims.
Friðrik Hansen Guðmundsson, 21.8.2010 kl. 12:59
Langt síðan maður sá áþreyfanlega, að best væri að horfa á þetta horrordæmi frá einhverju öðru landi, langt síðan öll teikn voru á lofti með að hér færi allt fjandans til. Fyrsta axarskaft foringjans kom í beinni frá Leifsstöð, skýrt alarm, annað skýrt alarm, hirðin leyndi ekki hrifningu sinni.
Robert (IP-tala skráð) 22.8.2010 kl. 07:13