Miðvikudagur, 6. janúar 2010
Víða klappað fyrir Íslandi og Forseta Íslands.
Þau viðbrögð sem ég hef orðið var við erlendis vegna ákvörðunar Forseta Íslands að hafna Icesave lögunum er almennt á jákvæðum nótum. Gildir það jafn um bankamenn í Kanada og hagfræðiprófessora í Danmörku. Menn segja þessa ákvörðun þá einu réttu í stöðunni.
Þá hef ég heyrt að menn hafi tekið þessari frétt með húrrahrópum og klappi í Arabaheiminum.
Það er ljóst að víða er nú horft til Íslands. Smáþjóðar sem stendur uppi í hárinu á stórveldum Evrópu. Smáþjóðar sem setur þessum löndum stólinn fyrir dyrnar og segir, hingað og ekki lengra.
Þessar stjórþjóðir verða nú að beygja sig fyrir þeim lýðræðislegu leikreglum sem eru í gildi hjá þeirri þjóð sem býr við elstu lýðræðishefð í Evrópu.
Þjóðir um allan heim munu nú fylgjast með þegar elsta samfellt starfandi þing í heimi tekur þetta mál og ber undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta mál hefur þegar vakið heimsathygli og það mun vekja enn meiri athygli þegar nær dregur atkvæðagreiðslunni. Þegar kosið verður þá verður Ísland á ný miðpunktur fjölmiðlaumræðunnar í heiminum.
Heimurinn allur mun fylgjast náið með hvernig þessi gamla lýðræðisþjóð mun afgreiða þetta mál. Og það verður ekki slæm landkynning að komast með þeim hætti í heimspressuna.
Heimsbyggðin öll mun fylgjast með þegar þjóðin sjálf verður látin taka ákvörðun um það hvort þessi breyttu lög taka gildi sem fella niður það efnahagslega skjól sem þjóðin hafði í þeim Icesave lögum sem þingið var búið að samþykkja í ágúst og forseti staðfesta.
Almenningur um allan heim er að fylgjast með þessu máli og hann mun fylgjast með hvernig atkvæðagreiðslan fer fram og hver niðurstaðan verður. Að þessu loknu verður án efa spurt víða um heim: Af hverjum fáum við ekki líka að kjósa um okkar erfiðu mál í beinni þjóðaratkvæðagreiðslu eins og Íslendingar?
Eitt er víst að við eigum víða vini og þeim fer ekki fækkandi eftir þessa neitun forsetans.
Mynd: Næst er fjallið Skriða, þá Skjaldbreiður. Efst til vinstri er Ok, fyrir miðju Þórisjökull, til hægri sést í Geitlandsjökul.
![]() |
Kurteis og hófstillt mótmæli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:30 | Slóð | Facebook