Ábyrgist þjóðin öll innlán í bankakerfi sem er tíu sinnum stærra en þjóðarframleiðslan?

Fyrrverandi Forsætisráðherra gaf út þá yfirlýsingu í haust að öll innlán í Íslenskum bönkum væru tryggð og á ábyrgð Íslensku þjóðarinnar. Hefur Alþingi staðfest þessa yfirlýsingu með lögum?

Geta yfirlýsingar eins og sú sem þáverandi Forsætisráðherra gaf skuldbundið þjóðina? Geta slíkar yfirlýsingar skuldbundið þjóðina til að axla ábyrgð á öllum innlánum í bankakerfi sem var orðið tíu sinnum stærra en árleg þjóðarframleiðsla?

Er ekki nokkuð ljóst að þáverandi Forsætisráðherra var að lofa upp í ermina á sér? Hafði þáverandi Forsætisráðherra umboð til þess að skuldbinda þjóðina með þessum hætti og í raun að dæma hana til áratuga fátæktar í skuldafeni? Er það ekki Alþingi eitt sem hefur fjárveitingavaldið og getur skuldbindið þjóðina?

Hvað með öll hin innlánin í bankakerfinu. Icesave var bara eitt innlánsformið. Ætlar þjóðin að axla ábyrgð á öllum þeim innlánum í þessu risavaxna bankakerfi sem hér var?

Ekki er til króna í bönkunum til að standa við yfirlýsingar þessa fyrrverandi Forsætisráðherra. Ef tryggja á allar innistæður í öllum bönkunum þá er ljóst að það fé þarf að koma frá almenningi. Er það annað Icesave dæmi eða er það enn stærra?

Hversu háar ábyrgðir eru að falla á þjóðina vegna þessa loforðs þáverandi Forsætisráðherra að allar innistæður í Íslenskum bönkum eru tryggðar og þjóðin mun ábyrgjast þær?

 

 


mbl.is Hagstæð ákvæði Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að veðsetja þjóð sína fyrir þúsund milljarða

Það er "hughreystandi" að vita til þess að þeir menn sem gömbluðu með þjóð sína og veðsettu fyrir þúsund milljarða á tveim árum skuli ekki vera búnir að geyma þessum "snúningi" sem þeir tóku á þjóðinni og hugur þeirra hvarfli öðru hverju að því máli þar sem þeir dvelja í útlandinu og eru að undirbúa næstu strandhögg hér heima.

Þeim verður örugglega tekið fagnandi og sjálfsagt víða heilsað að sjómannasið þegar þeir koma hingað til lands að kynna ný fjárfestingaverkefni sem þeir vilja fara í gang með hér heima.

Sjá jafnframt eftirfarandi grein:

Kærum þá sem veðsettu þjóðina fyrir Icesave reikningunum fyrir landráð.


mbl.is Hugsar daglega um Icesave-klúðrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkefni ríkisstjórnarinnar hvert öðru erfiðara.

Þau verkefni sem það fólk sem nú situr í ríkisstjórn og á Alþingi er að glíma við eru svakaleg. Það er sama hvar borið er niður. Allstaðar er staðan svipuð, allar leiðir sem hægt er að fara eru vondar leiðir. Tekjutap ríkissjóðs samsvarar því að segja þarf um þriðja hverjum ríkisstarfsmanni til að koma fjármálunum í jafnvægi. Gjaldeyristekjur af fiskveiðum hafa dregist saman um þriðjung mælt í evrum. Álverð hefur fallið úr 3.500 $/tonn í 1.200 $/tonn. Ég þori ekki einu sinni að reikna út hvað það þýðir í tekjutapi í evrum fyrir þjóðarbúið og Landsvirkjun.

IMG_1397 (2)Þar fyrir utan er bankakerfið gjaldþrota og óstarfhæft. Afleiðingar þess eru að verða skelfilegar, gjaldþrot fyrirtækja og fjöldaatvinnuleysi. Atvinnuleysi er í sögulegu hámarki. Vextir eru svo háir að engin ný atvinnutækifæri eru að verða til og gjaldeyrishömlur koma í veg fyrir erlendar fjárfestingar.

Þessu til viðbótar þarf ný ríkisstjórnin að takast á við ævintýralegan rekstur á Seðlabankanum sem lánaði viðskiptabönkunum 350 milljarða án ábyrgða. Landsbankanum sem veðsetti þjóðina fyrir 700 til 1.500 milljarða, allt eftir hvernig á það er litið. Og samkomulagið við Breta og Hollendinga um þetta Icesave mál þar sem fyrri ríkisstjórn virðist alveg hafa spilað rassinn úr buxunum þegar hún gerði þann samning um þau mál í haust. Svo má endalaust telja.

Mitt mat er það að það væri alveg sama hvaða flokkar og hvaða einstaklingar það væru sem nú gengdu ráðherraembættum, á þá yrði deilt gríðarlega og um þá stæði orrahríð.

Þegar maður horfir fram á veg og hugsar um allar þær erfiðu ákvarðanir sem bíða stjórnvalda þá er nú eins gott að þeir sem nú sitja á ráðherrastólum hafi sterk bein og bakland þeirra sé gott. Ég held það séu ekki margir sem hafa áhuga á sitja á ráðherrastól á Íslandi á næstu þrem árum. Það má kannski líkja því við pólitískt sjálfsmorð að taka að sér ráðherraembætti í dag. Í besta falli er það Rússnesk rúlletta. Það eru allar líkur á því að pólitískum ferli sé lokið eftir ráðherradóm við þessar aðstæður.

Guð blessi það fólk sem nú situr á Alþingi með öll þessi þungu mál í fanginu.

Mynd: Refur við Arnarpoll, Veiðivötnum.

 

 

 


mbl.is Eignir duga ekki fyrir Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. júní 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband