Miðvikudagur, 16. desember 2009
Er hafinn undirbúningur að því að kalla saman Landsdóm?
Eyjan birtir í dag frétt þess efnis að í forystusveitum stjórnmálaflokkanna hafi verið í gangi umræða um að líklega verði að kalla Landsdóm saman í framhaldi af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Álitið er að í skýrslunni verði svo fast að orði kveðið um vanrækslu fyrrverandi ráðherra að líkur eru á að einn eða fleiri þeirra verði látnir sæta ákæru fyrir Landsdómi. Sjá frétt Eyjunnar hér.
Ég hef skrifað nokkra pistla á þetta blogg hér og hvatt til þess að þeir sem bera ábyrgð á því að banka í einkaeigu var leyft að veðsetja þjóðina fyrir á annað þúsund milljarða (næstum heilli landsframleiðslu) á tæpum tveim árum, það fólk verði dregið fyrir Landsdóm og ákært fyrir Landráð.
Sjá eftirfarandi pistla.
- Ákærum þá fyrir landráð vegna Icesave, 10.02.09
- Ákærum fyrir landráð, 15.02.09
Mikil viðbrögð hafa verið við þessum pistlum. Greinilegt er að fólki um allt land er ofboðið.
Á annað hundrað manns haft samband og vill leggja lið. Sumir vilja leggja fram vinnu, aðrir fjármagn og enn aðrir vilja sýna stuðning í verki með því að skrá sig sem þátttakendur.
Þessi hópur hefur ákveðið að bíða með aðgerðir og sjá hver niðurstaða rannsóknarnefndar Alþingis verður og í framhaldi af því viðbrögð þingsins.
Þeir sem hafa áhuga á að stuðla að því að slík ákæra verði lögð fram hafið samband og sendið póst á fhg@simnet.is.
Mynd: Á Landmannaleið, Löðmundarvatn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:58 | Slóð | Facebook