Sunnudagur, 13. desember 2009
Rannsókn lögbrota á fullu en hvað með siðferðis- og ábyrgðarskyldubrotin?
Það er áfall að Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar hefur ákveðið eftir fjögurra mánaða skoðun að hafin verði formleg rannsókna á starfsemi íslensku bankana í Bretlandi. Það hefði verið gott ef Bretar hefðu ákveðið að frekari rannsóknar væri ekki þörf. Með þessari rannsókn sem nú er farin í gang með þáttöku landana hér í kring þá eru allar líkur eru á að mál sem snúa að lögbrotum bankana muni upplýsast.
Hins vegar þá er ekkert að gerast í þeim málum sem snúa að íslensku stjórnsýslunni og þeim stjórnmálamönnum sem báru ábyrgð á því sem hér gerðist.
Fyrir utan rannsóknir á lögbrotum bankamanna þá snýst uppgjör vegna þessa hruns í dag fyrir mér fyrst og fremst um fernt.
- Hver heimilaði og ber ábyrgð á því að banki í einkaeign fékk leyfi til að veðsetja þjóðina fyrir 1.500 milljarða (samsvarar landsframleiðslunni) á tæpum tveim árum með þessum Icesave reikningum?
- Hver heimilaði og ber ábyrgð á því að Seðlabankinn var "rændur" og skilinn eftir gjaldþrota eftir að hafa tapað 345 milljörðum á lánum án veða til bankana?
- Hver heimilaði og ber ábyrgð á því að 270 milljarðar voru teknir út úr Seðlabankanum og settir inn í peningamálasjóði bankana eftir að þessir einkabankarnir voru komnir í gjaldþrot?
- Hver heimilaði og ber ábyrgð á því að Seðlabankinn heimilaði útgáfu Jöklabréfa fyrir allt að 700 milljarða. Jöklabréf sem er dýrasta leiðin til að ná í gjaldeyri og fjármagn inn í landið. Þetta fé sem lá í þessum Jöklabréfum er nú að leita úr landi með tilheyrandi þrýstingi á krónuna til lækkunar. Hver heimilaði þetta glæfraspil sem þessi Jöklabréfaútgáfa er og hver ber ábyrgð á þessu?
Þeir einstaklingar sem á þessu bera ábyrgð vil ég að verði eltir uppi og ákærðir. Suma fyrir landráð, Icesave liðið, hina fyrir vítaverða vanrækslu og gáleysi í starfi.
Af hverju er ekkert verið að ræða þessi mál? Af hverju er ekkert að gerast varðandi þennan þátt hrunsins?
Á að leggja allt undir og veðja bara á eina skýrslu, skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis?
Mun skýrlsa rannsóknarnefndarinnar taka á þessum fjórum stærstu málum hrunsins? Ef ekki hver á og ætlar þá að gera það? Enginn?
Af hverju er Alþingi að setja sér lög um meðhöndlun þeirra gagna sem rannsóknarnefndin er að vinna með og banna birtingu þeirra í 80 ár?
Af hverju fjalla 1/3 hluti lagagreinanna í þessum lögum bara um sektir og fangelsisdóma brjóti menn trúnað og birti eitthvað af þessum gögnum innan þessara 80 ára?
Mynd: Á Landmannaleið, Helka.
![]() |
Bretar hefja rannsókn á íslensku bönkunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:49 | Slóð | Facebook