Fimmtudagur, 10. desember 2009
Er búið að tæma Lífeyrissjóð verkfræðinga?
Lítil frétt birtist í blöðunum í dag þess efnis að framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verkfræðinga hafi látið af störfum. Hvorki framkvæmdastjórinn né formaður stjórnar lífeyrissjóðsins vill tjá sig um málið.
Þegar það hefur gerst að framkvæmdastjórar lífeyrissjóða hætta skyndileg störfum og engin vill eða þorir að segja neitt við fjölmiðla þá segir reynslan manni það að eitthvað mikið hafi gerst og eitthvað mikið sé að í Lífeyrissjóði verkfræðinga.
Lífeyrissjóður verkfræðinga er nokkuð stór og er/var stöndugur sjóður sem í er stór hluti tæknimanna landsins ásamt fleirum sem eru með háskólamenntun á sviði raungreina svo sem eðlisfræðingar, efnafræðingar, stærðfræðingar o.s.frv.
Hroll hlýtur nú að setja að sjóðsfélögum við þessar fréttir.
Einkennilegt er þetta sér íslenska hugarfar að þegja og upplýsa aldrei neitt. Af hverju þegir stjórnarformaður sjóðsins?
Ef allt er í lagi með sjóðinn og fjármuni hans, af hverju er það þá ekki upplýst?
Ef eitthvað er að og framkvæmdastjórinn hættir vegna þess, af hverju er það þá ekki sagt?
Af hverju velja Íslendingar svo oft þessa leið sem er versta leiðin af öllum, að þegja?
Hvaðan kemur þessi ruglaði "kúltúr" að þegja og segja engum frá eins og hægt sé að leysa vandamálin með því að þegja um þau?
Framkvæmdastjórinn hætti 7. desember s.l., í dag er 10. desember þegar þessi frétt birtist. Af hverju var ekki þegar búið að senda út fréttatilkynning um þetta mál í stað þess að þegja bara?
Það er ljóst að þessi stjórnarformaður er annað tveggja sjálfur á kafi í þessu máli / málum sem verða þess valdandi að framkvæmdastjórinn lætur af störfum eða stjórnarformaðurinn er ekki starfi sínu vaxinn.
Nú held ég að sjóðsfélagar verði að koma saman til fundar og fá botn í þetta mál og komast að því hvað þarna er í gangi. Það bendir allt til þess að félagsmenn þurfi að draga þessar upplýsingar út úr stjórn sjóðsins með töngum.
![]() |
Hættur hjá Lífeyrissjóði verkfræðinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:06 | Slóð | Facebook