Sunnudagur, 15. júní 2025
Bíllaus lífstíll er ávísun á félagslega einangrun
Með því að borgaryfirvöld ákveða að byggja mikinn fjölda fjölbýlishúsa án bílastæða í anda stefnunnar um bíllausan lífstíl þá eru yfirvöld um leið að gera atlögu að öllu félagsstarfi í borginni og ljóst að þessi met þátttaka borgarbúa í öllu menningarstarfi, leikhúsum og tónleikum mun minnka.
Verður einhver verðandi íbúi í bíllausu blokkunum á Ártúnsholtinu tilbúinn að mæta á fund í Lions klúbbnum mínum í Lionsheimilinu á Hlíðarsmára í Kópavogi og mæta á þessa kvöldfundi að vetrarlagi, gangandi, hjólandi eða í strætó? Munu þessir verðandi íbúar á Ártúnsholtinu verða duglegir að sækja leikhús og tónleika í Miðbænum að vetrarlagi, gangandi, á hjólum eða í strætó?
Nei, þetta fólk mun ekki verða virkir þáttakendur í slíku, fólk sem flytur í fjölbýli fyrir bíllausan lífstíl er að flytja inn í félagslega einangrun. Það sýnir sig að fjöldi þeirra sem býr í slíku húsnæði vill ekki þessa félagslegu einangrun, það er á bíl og vill geta mætt á fundi í Hjálparsveitinni, hitt Bridge félagana og farið á tónleika óháð veðri og tímatöflu strætó. Þessi bílaeign í bíllausu blokkunum veldur svo nágranna óeirðum þegar bíllausa fólkið leggur í stæði nágranna sinna, eins og illindin við Móaveg í Grafarvogi sýna.
Þessi hugmyndafræði örfárra kverúlanta sem hafa komist tímabundið til valda í Reykjavík og eru að þvinga hluta borgarbúa inn í félagslega einangrun og gera um leið óafturkræfar breytingar á borginni með því að byggja fjölbýlishús án bílastæða, þetta er sú mannfjandsamlegasta stefna sem nokkurn tíma hefur verið reynt að þvinga upp á okkur Reykvíkinga.
Og til hvers eru Borgaryfirvöld að reyna að einangra stóran hóp borgarbúa í íbúðum sínum uppi í Gufunesi og á Ártúnsholti? Til að fækka fólki í leikhúsum og á tónleikum, fækka Bridge klúbbunum og fækka í Golfklúbbum Höfuðborgarinnar?
Frá 1994 hefur stefna Borgarinnar verið að Auka ekki umferðarrýmd vestan Elliðaár. Eina leiðin til að halda í þessa hugmyndafræði nú 30 árum síðar er að fækka þeim sem nota göturnar vestan Elliðaár og loka hluta borgarbúa af inni í íbúðum sínu og kalla það stofufangelsi bíllausan lífstíl.
Er ekki löngu tímabært að sturta þessari 30 ára gömlu hugmyndafræði niður um klósettið og ganga í að auka og bæta flæði umferðar vestan Elliðaár, í stað þess að dæma þúsundir borgarbúa í félagslega einangrun undir merkjum bíllaus lífstíls?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook