Föstudagur, 1. apríl 2011
Hvernig getur skuldsetning ríkissjóðs upp á 674 ma. aukið lánshæfi hans?
Einhver ótrúlegustu rök sem ég hef heyrt ganga nú fjöllunum hærra í áróðri þeirra sem vilja samþykkja Icesave 3 samninginn. Því er haldið fram að það muni aðeins falla 47 ma. á ríkissjóð vegna þessa máls. Ekkert er hins vegar minnst á að Icesave 3 samningurinn gengur út á það að ríkið er að ábyrgjast lámarksinnistæður á þessum Icesave reikningum, þ.e. 20.887 evrur per reikning. Samkvæmt nýjustu upplýsingum þá kostar það 674 ma. að tryggja þessa lámarksinnistæðu á hverjum einasta Icesave reikning.
Samþykkjum við Icesave 3 þá þarf ríkissjóður að greiða þessar 674 ma. óháð því hvað fæst úr þrotabúi Landsbankans. Með því að samþykkja Icesave 3 þá er verið að skuldsetja ríkissjóð um 674 ma. Þessi dómur sem féll í dag að heildsölulán eru forgangskröfur verður til þess að minna er til skiptana úr þrotabúinu upp í þessa Icesave reikninga. Það þýðir að væntingar um að lítið sem ekkert muni falla á ríkissjóð samþykkjum við Icesave 3 eru gufaðar upp. Verði neyðarlögunum hnekkt nú í framhaldinu þá verður þrotabú Landsbankans ekki til ráðstöfunar upp í þessa 674 ma. sem er þá orðin að skuld ríkissjóðs við Breta og Hollendinga.
- Því er svo haldið fram að með því að auka skuldsetningu ríkissjóðs um 674 ma. þá verði auðveldara að fá lán hjá erlendum fjármálafyrirtækum.
- Því er svo haldið fram að þau lán sem bjóðast eftir að við eru búin að auka skuldsetningu ríkissjóðs um sem samsvarar hálfri landsframleiðslu að þau verða þá á lægri vöxtum en þau lán sem bjóðast í dag.
Hvernig geta eðlilega skynsamir menn haldið því fram að með því að auka við skuldir ríkissjóðs þá muni verða auðveldara að fá lán í útlöndum og þau lán verði þá á lægri vöxtum?
Auðvita verður miklu erfiðara að fá lán eftir að við höfum skuldsett ríkissjóð um sem samsvarar hálfri landsframleiðslunni, ríkissjóð sem þegar er yfirskuldsettur.
Auðvita verða þeir vextir sem ríkinu, opinberum aðilum og íslenskum fyrirtækjum bjóðast á næstu árum á hærri vöxtum ef við þann 9. apríl nk. samþykkjum að skuldsetja ríkissjóð um 674 ma.
Þetta er einfalt.
- Því meira sem við skuldsetjum ríkissjóð því færri vilja lána honum.
- Því meira sem við skuldsetjum ríkissjóð því hærri verða vextirnir á þeim lánum sem bjóðast.
Það er ljóst að það er fullt af fólki í þessu samfélagi sem er búið að missa algjörlega áttirnar í þessu máli.
Við skulum ekki láta þetta fólk segja okkur að með því að skuldsetja ríkissjóð um hálfa landsframleiðsluna þá verði auðveldara að fá lán í útlöndum og þau lán fáist á lægri vöxtum. Við skulum ekki láta þetta fólk segja okkur að hvítt sé svart og svart sé hvítt.
Kjósum NEI við Icesave og tryggjum hér á komandi árum að minnsta kosti óbreytta stöðu ef ekki betri í framboði á erlendum lánum og að minnsta kosti óbreytta vexti ef ekki betri vexti á þessum lánum.
![]() |
Heildsöluinnlán forgangskröfur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.4.2011 kl. 01:12 | Slóð | Facebook