Icesave 3 kostar 25 - 230 ma. Versta niðurstaða fyrir dómstólum 140 ma.

Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn líka að bregðast þjóð sinni í þessu máli og samþykkja Icesave 3? 

IMG_4116Í hruninu afhjúpaðist hugmyndafræðilegt gjaldþrot þessarar bresk-, bandarísku hægristefnu sem  stjórnað hefur för í Sjálfstæðisflokknum síðustu tvo áratugi.

Stefna flokksins í Icesave málinu er það eina sem ég hef verið sáttur við hjá flokknum eftir hrun.

Nú er það búið líka.

Ég vil benda þeim sem áhuga hafa á þessar umsagnir hér um Icesave 3.

Í umsögn InDefence er að finna eina matið á því hvað það mun kosta þjóðina ef dómstólaleiðin verður farin.

Þetta eru niðurstöður InDefende. Sjá töflu bls 49 í greinargerð þeirra:

  • 140 milljarða mun það kosta ríkið ef málaferlin tapast algjörlega.
  • 22 milljarða mun það kosta ríkið ef við verðum dæmd til að tryggja lámarksinnistæður, rúmlega 20.000 evrur per reikning.
  • 0 milljarða mun það kosta ríkið ef við vinnum málaferlin.

Þá er rétt að hafa eftirfarandi í huga:

  • 75 milljarða mun Icesave 3 kosta okkur að mati InDefence.
  • 25 til 230 milljarða mun Icesave 3 kosta okkur að mati að mati GAM Management.

Miðað við lögfræðiálitið þá er líklegasta niðurstaðan í dómsmáli að við verðum dæmd til að tryggja allar innistæður upp að rúmlega 20.000 evrum. Það mun kosta okkur 22 milljarða, skv InDefence.

Í umsögn lögmannanna er talið mjög ólíklegt að við töpum málinu algjörlega og verðum dæmd til að tryggja allar innistæður að fullu en það mun kosta okkur 140 milljarða, skv InDefence.

Valið sem við stöndum frammi fyrir er:

  • Icesave 3 sem mun kosta okkur 25 til 230 milljarða
  • Dómstólaleiðin sem mun kosta okkur 0 til 140 milljarða 

Ástæða þess að Icesave samningarnir eru okkur svo óhagstæðir eru þau ótrúlegu ákvæði að Bretar og Hollendingar fá af einhverjum furðulegum ástæðum í sinn hlut 49% af eignum Landsbankans. Vegna þessa ákvæðis sem InDefence kallar "Pari Passu" í greinargerð sinni, sjá bls 22, þá fær skilanefnd Landsbankans bara 51% af eignum bankans til að borga upp í Icesave kröfur Breta og Hollendinga. Það sem þá stendur eftir vegna Icesave fellur á bændur, sjómenn og launafólk á Íslandi.

Þetta "Pari Passu" ákvæði í Icesave samningunum stangast á við íslensk lög og lög og reglur ESB. Þetta ótrúlega ákvæði hafa margir bent á, m.a. Ragnar Hall, og sagt að það eigi að vera skýlaus krafa okkar Íslendinga að fara eigi að lögum í skiptum á þrotabúi Landsbankans.

Verði dómstólaleiðin farin, það er við höfnum þessum Icesave 3 samningi, þá höfum við allt þrotabú Landsbankans óskipt undir til að borga það sem við hugsanlega verðum dæmd til að borga.

Þess vegna er dómstólaleiðin okkur svo hagkvæm. Með henni fáum við allt þrotabú Landsbankans í hendurnar. Þessi leið kostar okkur í versta falli 140 milljarða. Líklegasta niðurstaðan úr málaferlunum kostar okkur 22 milljarða.

Eftir að við urðum fyrir einhverri svívirðilegustu árás sem nokkurt land Evrópu hefur orðið fyrir frá stríðslokum, þegar Bretar settu hryðjuverkalög á Seðlabanka Íslands og ríkisjóð og frystu með því inni í London gull- og gjaldeyrisforða okkar Íslendinga þá er löngu orðið tímabært að við höfnum þessum Icesave nauðasamningum í eitt skipti fyrir öll og segjum Bretum og Hollendingum að ef þeir vilji að bændur, sjómenn og launafólk á Íslandi tryggi innistæður á þessum Icesave reikningum þá verði það ekki gert nema að undangengnum dómi. 

Með því að frysta inni í London gull- og gjaldeyrisforða okkar Íslendinga þá hafa Bretar fyrirgert öllum rétti sínum að við Íslendingar nálgumst þetta mál af sanngirni og farin verði einhver samningsleið í þessu máli. Hvað þá að við látum þá fá þvert á lög og reglur 49% af eignum þrotabús Landsbankans.

Það átti að hætta öllum samningaviðræðum við þetta fólk eftir að þjóðin felldi síðasta Icesave samning í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna þá er þetta þing umboðslaust í þessu máli. Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna þá fer þetta þing umboðslaust af stað að semja á ný.

Þennan samning eigum við að taka úr höndum þingsins, setja í aðra þjóðaratkvæðagreiðslu og fella hann þar. Vegna þessa svívirðilega gjörnings Bretar að setja á okkur hryðjuverkalög þá eigum við ekki að borga krónu vegna þessa máls.

Tjónið sem hryðjuverkalögin ollu okkar á að slétta út á móti þessu Icesave máli.

16.037 hafa nú skrifað undir áskorun til forsetans á Facebook. Sjá hér.

Mynd: Í Skálmárdal


mbl.is Lófaklapp í lok ræðu Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. febrúar 2011

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband