Fimmtudagur, 24. febrúar 2011
Já, ég vel dómstólaleiðina. Það geri ég áhyggjulaust.
Einfaldir útreikningar, sjá hér, staðfesta að útreikningar InDefence á kostnaði við dómstólaleiðina eru réttir. Með einföldum útreikningum er hægt að staðfesta að kostnaðurinn við dómstólaleiðina er af þeirri stærðargráðu sem InDefence reiknar hann.
Mín niðurstaða er því sú að:
- Það er ekkert þannig að Icesave kosti 47 ma. eins og stjórnvöld halda fram.
- Það er ekkert þannig að dómstólaleiðin kosti 500 ma. eins og stjórnvöld halda fram.
Það er hins vegar hægt að treysta tölunum frá InDefence. Sjá nánar hér. Þeirra mat er þetta:
- 75 ma. kostar það okkur ef við samþykkjum Icesave.
- 140 ma. kostar það okkur ef við töpum dómsmálinu algjörlega.
Þetta eru hinir raunverulegu valkostir sem þjóðin stendur frammi fyrir.
Ég trúi að Lárus Blöndal fari með rétt mál varðandi réttarstöðu okkar. Ég trúi því að við annað hvort vinnum málið fyrir dómstólum eða verðum dæmd til að tryggja lágmarks innistæður upp á 20.887 evrur per reikning. Í báðum tilfellum mun ríkissjóður ekki þurfa að greiða krónu. Þrotabú Landsbankans á fyrir þessum dómi.
Ég trúi líka áliti þeirra lögspekinga sem lögðu fram sína umsögn um Icesave 3 fyrir fjárlaganefnd, þar sem fram kom að afar ólíklegt er að við verðum dæmd til að tryggja allar innistæður að fullu.
Ég er tilbúinn út frá þessum forsendum að fara dómstólaleiðina að gambla með það að geta hugsanlega lent í því að borga 140 ma í stað þess að þurfa með vissu að borga 75 ma. Með þessu er ég að gambla með 65 ma. (140 - 75 = 65 ma.)
Ég þykist líka vita að Bretar og Hollendingar eru EKKI tilbúnir að gambla í þessu máli með það undir að geta tapað 1.200 ma. Gerum okkur grein fyrir því að ef við vinnum málið fyrir Hæstarétti Íslands þá fá þeir ekki krónu. Tapi þeir málinu fyrir Hæstarétti Íslands þá tapa þeir 1.200 ma.
Gerum okkur líka grein fyrir því að ef við verðum dæmd til þess að tryggja lágmarks innistæður, 20.887 evrur per reikning, þá verður þrotabú Landsbankans gert að greiða Bretum og Hollendingum 630 ma. en það er kostnaðurinn við að tryggja þessar lágmarks innistæður. Það þýðir að Bretar og Hollendingar tapa 570 ma. miðað við fyrirliggjandi Icesave samning þar sem gert er ráð fyrir að þeir fái 1.200 ma.
Aðeins með því að þeir vinni málið og við dæmd til að tryggja allar innistæður að fullu fá þeir út úr dómsmáli eitthvað í líkingu við Icesave samninginn. Og hverjar eru líkurnar á því? 5% til 10%?
- Löngu áður en Hæstiréttur Íslands fær málið í sínar hendur þá semja Bretar og Hollendingar og hirða sína 1.200 ma. úr þrotabúinu án þess að nokkur ríkisábyrgð fylgi eða greiðsla frá ríkinu. Með slíkum samningi fá Bretar og Hollendingar 94% af núverandi Icesave samningi.
- Slíkan samning gætu þeir klárað fyrir hádegi á morgun með Steingrími J. Það þarf engin lög frá Alþingi til að ganga frá slíkum samning. Það er bara vegna þess að Bretar og Hollendingar vilja fá ríkisábyrgð og 75 ma. til viðbótar við það sem er í þrotabúi Landsbankans að þessi Icesave samningur fór aftur fyrir þing og þjóð.
Tapi Bretar og Hollendingar þessu máli fyrir dómstólum þá tapa þeir 1.200 ma. Hverjar eru líkurnar á því? 20% til 30%? Myndu ríkisstjórnir Bretlands og Hollands þola það? Eru þessar ríkisstjórnir til í slíkt gambl?
Verði Íslendingar dæmdir til að greiða lágmarks trygginguna, sem margir telja líklega niðurstöðu, þá greiðir þrotabúið út 630 ma. Þá fellur ekki króna á íslenska ríkið. Þrotabúið á í dag í peningalegum eignum 700 ma. Bretar og Hollendingar tapa hinsvegar 570 ma. miðað við fyrirliggjandi Icesave samning. Myndu ríkisstjórnir Bretlands og Hollands þola það? Eru þessar ríkisstjórnir til í slíkt gambl?
Nei, löngu áður en málið fer í hendur Hæstaréttar Íslands þá verða Bretar og Hollendingar búnir að gleyma öllu um ríkisábyrgðir og einhverjum smá greiðslum úr ríkissjóði Íslands. Þeir taka þrotabúið og fá þar með 94% af sínum kröfum.
Já, ég er tilbúinn að fara dómstólaleiðina og með því gambla með 65 ma. Það geri ég áhyggjulaust.
![]() |
Samningsbrotamál líklegast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:13 | Slóð | Facebook