Mánudagur, 21. febrúar 2011
Icesave 3 kostar 25-230 milljarða. Dómstólaleiðin 0-140 milljarða.
Valið sem við stöndum frammi fyrir eftir að forsetinn synjaði Icesave lögunum staðfestingar er:
- Icesave 3 sem mun kosta okkur 25 til 230 milljarða
- Dómstólaleiðin sem mun kosta okkur 0 til 140 milljarða
Ég vil benda áhugasömum á þessar umsagnir hér um Icesave 3.
- Umsögn InDefence
- Umsögn lögspekinganna
- Umsögn Seðlabankans
- Umsögn GAM Management
- Umsögn IFS-Greiningar
Í umsögn InDefence er að finna eina matið sem ég hef sé á því hvað það mun kosta þjóðina ef dómstólaleiðin verður farin.
Þetta eru niðurstöður InDefende. Sjá töflu bls 49 í greinargerð þeirra:
- 140 milljarða mun það kosta ríkið ef málaferlin tapast algjörlega.
- 22 milljarða mun það kosta ríkið ef við verðum dæmd til að tryggja lámarksinnistæður, rúmlega 20 þúsund evrur per reikning.
- 0 milljarða mun það kosta ríkið ef við vinnum málaferlin.
Þá er rétt að hafa eftirfarandi í huga:
- 75 milljarða mun Icesave 3 kosta okkur að mati InDefence.
- 25 til 230 milljarða mun Icesave 3 kosta okkur að mati að mati GAM Management.
- 47 milljarða mun Icesave kosta skv. stjórnvöldum.
Miðað við lögfræðiálitið þá er líklegasta niðurstaðan í dómsmáli að við verðum dæmd til að tryggja allar innistæður upp að rúmlega 20 þúsund evrum. Það mun kosta okkur 22 milljarða, að mati InDefence.
Í umsögn lögmannanna er talið mjög ólíklegt að við töpum málinu algjörlega og verðum dæmd til að tryggja allar innistæður að fullu en það mun kosta okkur 140 milljarða að mati InDefence.
Valið sem við stöndum frammi fyrir er:
- Icesave 3 sem mun kosta okkur 25 til 230 milljarða
- Dómstólaleiðin sem mun kosta okkur 0 til 140 milljarða
Er þetta svo erfitt val, hafandi í huga að Bretar settu hryðjuverkalög á ríkissjóð og Seðlabankann og frystu með því inni í J.P. Morgan bankanum í London gull- og gjaldeyrisforða þjóðarinnar á ögurstundu og lýstu því síðan yfir í heimspressunni að Ísland væri gjaldþrota?
Er þetta svo erfitt val?
![]() |
Afar ólíkir kostir en síðast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:04 | Slóð | Facebook
Mánudagur, 21. febrúar 2011
Ekki byrjar hún vel kynningin á Icesave 3.
Ekki byrjar hún vel kynningin á nýjasta Icesave samningnum. Lárus Blöndal kemur fram með tölur í þessu viðtali um væntanlegan kostnað þjóðarinnar af Icesave 3 sem eru í engu samræmi við önnur gögn í málinu.
Í umsögn GAM Management sem lögð var fyrir þingið í janúar, sjá hér, eru reiknaðar út nokkrar mögulegar sviðsmyndir vegna Icesave 3. Niðurstaða þessara sérfræðinga er að Icesave 3 muni kosta þjóðina 25 til 230 milljarða. Engir þeirra óháðu aðila sem reiknað hafa og metið væntanlegan kostnað þjóðarinnar af Icesave 3 hafa komist að sömu bjartsýnis niðurstöðu sem ríkisstjórnin og Lárus Blöndal eru að kynna, að Icesave 3 muni kosta ríkissjóð 47 milljarða.
InDefence reiknar þennan kostnað 75 milljarða, sjá hér.
Þá segist Lárus bjartsýnn á að þrotabú Landsbankans muni duga fyrir Icesave.
Ljóst er að Bretar og Hollendingar deila þessari bjartsýni ekki með Lárusi. Teldu Bretar og Hollendingar að þrotabú Landsbankans dygði fyrir þessum skuldbindingum þá væru þeir ekki að sækja það svona fast að ríkissjóður gangist í ábyrgðir fyrir því sem þeir gera ráð fyrir að standi út af borðinu þegar þrotabúið er uppgert.
Ef Bretar og Hollendingar væru sammála þessu mati Lárusar að þrotabú Landsbankans muni duga fyrir Icesave þá væri þeir ekki að fara fram með þennan Icesave samning og þeir væru þá ekki að krefjast þess að fá ríkisábyrgð á samninginn.
Nú þegar forsetinn hefur vísað Icesave 3 til þjóðarinnar þá er mikilvægt að fram fari heiðarleg umræða um samninginn, kosti hans og galla.
Mikilvægt er að stjórnvöld og samningamenn leggi fram réttar upplýsingar og kynni raunsanna mynd af samningnum.
Það að koma fram með ótrúverðugar bjartsýnisspár og mála samninginn miklu bjartari litum en tilefni er til er ekki að hjálpa neinum í þessu máli.
![]() |
Skýrir kostir í stöðunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:49 | Slóð | Facebook