Þetta er ykkar val.

Það er borgarbúa að velja hverja þeir kjósa til forystu í borginni.

Valið stendur á milli:

  • Fjórflokksins
  • Tveggja brota úr brotnum flokki
  • Framboðs skemmtikrafta
  • Reykjavíkurframboðsins.

Þetta er ykkar val.

Reykjavíkurframboðið, x-E 

 

 


Reykvíkingar hafna Hönnu Birnu og Degi.

Mestu tíðindi í sögu Reykvískra stjórnmála má lesa í dag á síðum Fréttablaðsins. Reykvíkingar hafna í nýjustu skoðunarkönnun borgarstjóraefnum fjórflokksins. 44% reykvíkingar velja frekar hirðfíflið og trúðana en fulltrúa spilltustu stjórnmálaafla í Norður Evrópu.

Kemur þetta einhverjum á óvart?

Og hver eru hin raunverulegu hirðfífl og trúðar?

Hverjir voru hirðfíflin og trúðarnir í veislum bankana og útrásarvíkinganna?

Hverjir höguðu sér eins og trúðar og hirðfífl og mynduðu fjóra borgarstjórnarmeirihluta á kjörtímabilinu?

Hvaða hirðfífl og trúðar skuldsett borgarsjóð upp í rjáfur og keyrðu Orkuveituna í gjaldþrot?

Hver eru hin raunverulegu hirðfífl og trúðar í þessum borgarstjórnarkosningum?

Við í Reykjavíkurframboðinu viljum bjóða Reykvíkingum alvöru valkost í komandi kosningum. Við bjóðum alvöru framboð með alvöru fólki sem vill vinna fyrir Reykvíkinga. Fólk sem er ekki með nein fíflalæti. Fólk sem vill ekki að fjórflokkurinn haldi hér áfram völdum í borginni með bull rekstri sínum á borgarsjóði og fyrirtækjum borgarinnar.

Það er löngu orðið tímabært að valdaklíkurnar sem standa á bak við fjórflokkinn þær verði reknar burt frá völdum í borginni.

Þann 29. maí gefst Reykvíkingum tækifæri til þess að kalla til nýja fjósamenn til að moka þennan flór.

Veljið alvöru fólk, veljið xE

 


Bloggfærslur 22. maí 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband