Mun ríkisstjórnin gefa allt eftir í Icesave eins og jafnan áður?

Nú fjórum dögum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna reynir ríkisstjórnin að ná fram lítillega breyttum samningum við Breta og Hollendinga í Icesave deilunni. Forsætisráðherra hampaði á þingi í gær samningstilboði með smávægilegum vaxtabreytingum frá Icesave-2 samningnum og sagði þjóðaratkvæðagreiðsluna tilgangslausa.

IMG_0044Á bak við þetta nýja samningstilboð er óbreyttur Icesave-2 samningurinn. Bretar og Hollendingar meiga eftir sem áður ganga að Landsvirkjun, varðskipunum og öðrum eigunum ríkisins dragist greiðslur.

Eina breytingin á þessu nýja tilboðið og Icesave-2 eru tvö vaxtalaus ár en í staðinn eigum við við Íslendingar að taka áhættuna af breytilegum vöxtum á afborgunartímabilinu. 

Forsætisráðherra og aðstoðarmenn segjast hafa reiknað út að þetta nýja samningstilboð spari 70 milljarða í vaxtagreiðslur. Dr. Jón Daníelsson hagfræðingur hefur reiknað út að með vöxtum þurfum við Íslendingar að greiða 507 milljarða samþykkjum við Icesave-2. Horft á þessa 507 milljarða og síðan þessa 70 milljarða "lækkun" á vaxtagreiðslum verði þróun breytilegra vaxta okkur hagstæð, þá sjá allir að þetta er enn eitt gamblið. Verði þróun breytilegra vaxta okkur óhagstæð þá getur þessi 70 milljarða "sparnaður" auðveldlega orðið að engu. 

Þetta er ekki tilboð sem mark er takandi á.

Þetta er ekki tilboð sem er þess virði að að eiða tíma sínum í að skoða. Þessu á bara að hafna á sama hátt og óbreyttum Icesave-2 samningnum.

Ótrúlegt er að forsætisráðherra skuli reyna að bjóða þjóðinni jafn lélega lausn nú fjórum dögum áður en þjóðin fellir Icesave-2 samninginn.

Felli þjóðin Icesave-2 samningin í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu þá hefur stjórnin ekki umboð til að leggja óbreyttan eða lítið breyttan samning á ný fyrir þing og þjóð. Þá verður að koma til gjörbreyttur samningur sem felur það í sér að það falli ekki króna á íslenska skattgreiðendur.

Trúum orðum forstjóra Norska innlánstryggingasjóðsins sem hefur sagt og fullyrt að það er engin ríkisábyrgð á innistæðum í norskum bönkum. Það sama hlýtur að gilda um innistæður í Íslenskum bönkum.

Icesave er ekki og á ekki að vera vandamál íslenskra skattgreiðenda.

Vandamál íslenskra skattgreiðenda er að láta Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J Sigfússon skilja þetta.

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Fundur fyrir hádegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. mars 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband