Aðal samningamaður Íslands einn af stóru hákörlunum í fjármálaheiminum?

Aðal samningamaður Íslands í væntanlegum samningaviðræðum um Icesave, Lee C. Buchheit, var kynntur í íslenskum fjölmiðlum sem "bandarískur lögmaður". Þessi maður er nú gott betur meira en einhver venjulegur bandarískur lögmaður.

IMG_0034Lee C. Buchheit situr í stjórn Essdar Capital. Essdar Capital er eitt stærsta og öflugasta fjármálafyrirtæki heims. Það er með aðsetur í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstabæmunum. Sjá nánar hér.

Á heimasíðu Essdar Capital er upplýst að eftirfarandi fyrirtæki eru meðal eigenda, sjá hér. Samkvæmt mínum heimildum eru þetta nokkur af stærstu fjármálafyrirtækjum heims.

Verkefni Essdar Capital eru á sviði ráðgjafar og fjármögnunar Seðlabanka og ríkisstjórna. Sjá nánar hér.

Aðal samningamaður Íslands í Icesave deilunni við Breta og Hollendinga gegnir m.a. þeirri stöðu í stjórn Essdar Capital að taka þátt í því að velja hverjir fá að setjast í stjórn Essdar Capital.

Hinn aðal samningamaður Íslands í væntanlegum viðræðum um Icesave er Kanadamaðurinn Don Johnston, fyrrverandi forstjóri OECD. Kanada er hluti af Breska samveldinu. Elísabet Englandsdrottning er æðsti þjóðhöfðingi Kanada. Don Johnston hefur í störfum sínum þjónað Kanada af trúfestu og þar með Bresku drottningunni. Gleymum ekki hinum gríðarlegu völdum bresku drottningarinnar. "The Royal Army" og hver einast hermaður í þeim her, heyrir persónulega beint undir drottninguna.

Íslenska samninganefndin sem heldur nú til fundar við Breta og Hollendinga eftir helgi er leidd af einum af stóru hákörlunum í fjármálaheiminum og manni sem þjónað hefur vinstri hendi bresku drottningarinnar um árabil.

Eru þetta réttu mennirnir sem við Íslendingar eigum að trúa fyrir hagsmunum okkar í samningum við Breta og Hollendinga um Icesave?

Eru þessir menn skipaðir í þessa samninganefnd til að koma vitinu fyrir Breta og Hollendinga eða forystumenn stjórnarandstöðunnar á Íslandi? 

Eins og ég hef margoft bent á hér á þessari síðu þá vil ég að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram. Við fellum Icesave lögin með sóma. Síðan hættum við að ræða þetta Icesave mál. Vilji Bretar og Hollendingar samt halda sínum kröfum til streitu að bændur og sjómenn á Íslandi verði dregnir til ábyrgðar og látnir borga það sem tapaðist á þessum Icesave reikningum vegna gjaldþrots Landsbankans þá eigum við að láta Breta og Hollendinga óska eftir þeim viðræðum.

Þær viðræður á þá að halda á Íslandi og þá á fyrst að semja um bætur fyrir það tjón sem hér varð þegar Bretar settu á okkur hryðjuverkalög og lýstu því yfir að Ísland væri gjaldþrota. Þegar búið er að semja um það tjón, þá má fara að ræða Icesave, ekki fyrr.

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


Bloggfærslur 13. febrúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband