Af hverju alltaf þessi leynd yfir öllu varðandi Icesave?

Af hverju er alltaf verið að halda sem mestu leyndu fyrir almenningi í þessu Icesave máli? Af hverju vilja menn halda samningsmarkmiðum Íslands leyndum í hugsanlegum nýjum viðræðum? Hverra hagsmuna er verið að gæta með því?

IMG_0033Að stjórnvöld vilji ekki upplýsa hver samningsmarkmið þeirra eru í hugsanlegum nýjum viðræðum um Icesave málið hljómar fyrir mér eins og hver annar barnaskapur. Staðan er fáránleg ef hún er sú að það hefur náðst pólitísk sátt á Íslandi um Icesave en það þurfi að fara með þessa sátt eins og um mannsmorð sé að ræða.

Slík vinnubrögð geta aldrei skilað neinni ásættanlegri niðurstöðu í hugsanlegum samningaviðræðum.

Ef þetta er að ósk Breta og Hollendinga og þeir eru að krefjast þess að "ekkert leki út" um hugsanlegar viðræður og íslensk stjórnvöld hafa samþykkt það að segja ekki frá neinu og "leka engu út", þá eru Bretar og Hollendingar búnir að vinna fyrri hálfleikinn í þessum nýju samningaviðræðum og það áður en þær hafa hafist. 

Bretum og Hollendingum hefur þá tekist að sameina alla stjórnmálaflokka á Íslandi um það að gera leynisamning við þá. Leynisamning sem Íslensku þjóðinni verður kannski aldrei sagt frá hvernig raunverulega er. Þjóðin fær kannsi aldrei að sjá öll skjöl samningsins. Út á það ganga leynisamningar ekki satt? Til hvers annars að vera með þessa leynd? Þetta þekkja Bretar og Hollendingar. Þetta eru þeirra ær og kýr og hafa verið undanfarin fimmhundruð ár.

Stjórnvöld virðast ekkert hafa lært. Vinnubrögðin eru þau sömu, að halda áfram að sveipa allt það sem er að gerast í málinu leyndarhjúpi og vilja ekki gefa upp neitt um það hvað er í gang né hvað stendur til að semja um.

Þjóðin á bara að halda kjafti og borga.

Þessi vinnubrögð urðu til þess að nú um áramótin gerði 25% kjósenda uppreisn gegn stjórninni og setti henni stólinn fyrir dyrnar með því að krefjast þess í gegnum forsetaembættið að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.

Ríkisstjórnin virðist ekkert hafa lært. Sömu vinnubrögð og hafa verið viðhöfð hingað til, þeim er haldið áfram.

Mun þetta enda með þriðju uppreisn almennings gegn ríkisstjórnum Samfylkingarinnar á innan við tveim árum? 

Mynd: Göngustígurinn upp Esju á vetrarsólstöðum.

 


mbl.is Bað RÚV að birta ekki fréttina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. febrúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband