Sunnudagur, 20. september 2009
Bara tímaspursmál hvenær ritstjórinn yrði látinn fara
Fyrir mér var það bara tímaspursmál hvenær Ólafur Þ. Stephensen ritstjóri Morgunblaðsins yrði látinn fara. Frá því þessum kjarna í Landsambandi íslenskra útvegsmanna, LÍÚ, var leyft að kaupa Morgunblaðið fyrr á þessu ári þá var það bara tímaspursmál hvenær Evrópusinninn á stóli ritstjóra blaðsins yrði látinn fara.
Til hvers eru Íslenskir útvegsmenn að kaupa Morgunblaðið? Af hverju eru þessir fiskimenn að halda úti blaði sem þeir reka með tapi?
Af hverju ákveða Íslenskir útvegmenn að kaupa Morgunblaðið þegar til valda kemst ríkisstjórn sem hefur það á stefnuskrá sinni að sækja um aðild að Evrópusambandinu, ESB?
Af hverju er ritstjóri Morgunblaðsins látinn fara nú þegar Alþingi er nýbúið er að ákveða að hefja aðildarviðræður við ESB?
Það er ljóst að Íslenskir útvegsmenn munu kosta öllu til í baráttu sinni við að halda þjóðinni utan ESB.
Morgunblaðið verður bara eitt af þeim mörgu vopnum sem þeir munu beita á næstunni í þeirri baráttu sinni að verja sína eigin hagsmuni.
Það eina sem er vitað um þann sem sest í stól ritstjóra Morgunblaðsins er að það verður yfirlýstur andstæðingur aðildar Íslands að ESB.
![]() |
Ólafur kvaddi starfsmenn Morgunblaðsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:33 | Slóð | Facebook