Föstudagur, 18. september 2009
Hernaðaraðgerð Breta gegn Íslandi heldur áfram
Tilgangur Breta með beitingu hryðjuverkalaga gegn Íslandi var að valda hér eins miklu tjóni og hægt var. Kaupþing hefði aldrei fallið ef ekki hefðu komið til þessi hryðjuverkalög. Það fjárhagslega tjón sem þessi hernaðaraðgerð Bretana gegn okkur Íslendingum hefur valdið samsvarar því að þeir hefðu lagt stóran hluta Reykjavíkur í rúst með loftárásum.
Nýjast útspil þeirra afhjúpar hvert langtíma markmiðið með þessum hernaðaraðgerðum er. Langtímamarkmiðið er að lama allt Íslensk efnahagslíf næsta aldarfjórðunginn og tryggja að í lok þess tímabils verði allt samfélagið komið efnahagslega aftur til ársins 1970. Þannig ætla þeir að og koma í veg fyrir frekari "innrás" Íslendinga og Íslenskra fyrirtækja inn í breskt athafna- og fjármálalíf næsta mannsaldurinn.
Ánægjulegt er að Íslenskir stjórnmálamenn gerðu lítið með leynimakk þeirra og pukur þegar Bretar og Hollendingar heimtuðu að fá að semja um framhald Icesave fyrir luktum dyrum.
Það var hámark ósvífninnar þegar Bretar og Hollendingar kröfðust þess af Íslenskum ráðamönnum að almenningur yrði ekki upplýstur um það gagntilboð sem þeir lögðu fram. Frekju þessara manna eru engin takmök sett. Þessir menn hafa engan rétt og eiga ekkert með að koma hér og leggja fram gagntilboð sem gerir að engu fyrirvarana sem Alþingi setti við ríkisábyrgðina á Icesave og ætlast til þess að Íslenskir ráðamenn þegi um málið gagnvart þjóð sinni. Þingmenn, látið ekki bjóða ykkur þetta.
Segið við Bretana: Við tökum ekki þátt í frekari samningum við ykkur um þetta mál nema allt sé upp á borðum. Tilboð sem þið viljið ekki að komi fyrir augu almennings, slík tilboð skulið þið ekki leggja fram.
Þetta er ótrúlegt, þessir menn vinna eins og þjófar á nóttu.
Alþingi og þjóðin öll eyddi öllu sumrinu í að ræða Icesave og niðurstaðan var ríkisábyrgð á þessum innistæðureikningum þar sem þjóðin teygir sig eins langt og nokkur kostur er, og að flestra mati allt of langt, til að koma til móts við kröfur Breta og Hollendinga.
Auðvita finnst Bretum og Hollendingum þetta ekki nóg enda tilgangurinn ekki að fá þetta fé til baka heldur að "kenna" Íslendingum lexíu og hefna ófaranna á eigin heimamarkaði.
Þeir hafa ekki treyst sér til að hegna okkur með því að senda hingað sprengiþotur og varpa sprengjum á Reykjavík þó einhverjir þessara "snillinga" í þjónustu hennar hátignar hafi ábyggilega stungið upp á því á einhverjum tímapunkti þegar ljóst var að 20% af öllu sparifé þegna breska heimsveldisins var geymt á reikningum í Íslenskum bönkum, bönkum sem voru komnir í gjaldþrot.
Þeir hafa ábyggilega margir svitnað þá, Bretarnir sem áttu að gæta hagsmuna breskra sparifjáreigenda, þegar þeir áttuðu sig á þessu en höfðu sofið á á verðinum eins og íslenskir starfsbræður þeirra. Nú á að sækja þetta fé með góðu eða illu en aðallega samt að hefna þessara ófara.
Í stað flughersins var efnahagherdeildin kölluð í Dawningstræti 10. Við höfum verið að njóta "ávaxtanna" af þeim vopnum og þeim aðferðum sem sú herdeild hefur yfir að ráða í vopnabúri sínu.
Þessir hermenn hennar hátignar eru mættir hér með saltið og plógana. Nú á að plægja yfir Íslensk efnahagslíf og strá salti í plógförin. Nú að að tryggja að Íslendingar rísi ekki aftur upp næstu 100 árin.
Ég skil ekki af hverju ekki er búið loka sendiráði okkar í Bretlandi, selja eignirnar og kalla sendiherrann heim.
Ég skil ekki af hverju ekki er búið að reka breska sendiherrann, sem er enginn venjulegur sendiherra, þetta er einn af æðstu embættismönnum bresku utanríkisþjónustunnar, yfirmaður annarra sendiherrana í bresku utanríkisþjónustunni, með allt hans lið úr landi.
Hann og hans menn eru hér til að ráðleggja hvaða aðgerðum þarf að beita til að valda Íslensku þjóðinni sem mestu efnahagslegu tjóni og ná fram þeim áhrifum sem hernaðaraðgerðum þeirra er ætlað að skila í því hefndarstríði sem Bretar og Hollendingar eru í gagnvart okkur.
Mynd: Kerlingarfjöll
![]() |
Icesave í utanríkismálanefnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:55 | Slóð | Facebook