Auðvita á að selja mjólkurkýrnar.

Auðvita á að selja mjólkurkýrnar. Menn hafa alltaf grætt á því, það vita allir. Þá fær maður líka svo mikinn pening úr að moða meðan maður er sjálfur við stjórnvölin. Þetta hljóta allir að skilja.

Það er svo bara annarra að hafa áhyggjur af því sem gerist þegar þarf að fara á næsta bæ á komandi árum og áratugum til að kaupa mjólk handa börnunum. "Den tid den sorg" eins og Danirnir segja.

IMG_3751Er ekki bara um að gera á meðan gengið er svona hagstætt erlendum fjárfestum að reyna að selja þeim enn meira af þessum mjólkurkúm okkar?

Er ekki einmitt tækifærið nú að reyna að koma hinum orkufyrirtækjunum og fiskveiðiauðlindinni í hendurnar á útlendingum þegar þeir sjá hér kauptækifæri þegar krónan hefur lækkað um 50% til 60% gagnvart evru og dollar?

Ætli það sé ekki líka möguleiki að selja Gvendarbrunnana og aðrar vatnsveitur sveitarfélaganna? Gæfi það ekki líka pening?

Við getum þá lifað hér fínu lífi út þetta kjörtímabil og það er ekki svo langt eftir hvort sem er, rétt rúmt hálft ár í næstu sveitarstjórnarkosningar. Menn hljóta að skilja það að borgin verður að hafa einhverja peninga úr að moða nú fyrir kosningar. Það verður að sýna lit í borginni fyrir kosningar í vor, slá og mála gangstéttar við kjörstaði og svona.

Ég meina, það er ekki okkar vandamál hér í borginni þó orkureikningar þeirra Suðurnesjamanna komi til með að hækka um heil ósköp á næstu árum þegar einkaaðili verður komin með einokun á sölu á öllu rafmagni og hita á svæðinu, er það?

Ég meina, þeir voru fyrstir til að selja sinn hlut fyrir slikk til einkaaðila. Af hverju mega Reykvíkingar ekki gera það líka?

Hvað með næstu kynslóð, spyr kannski einhver, sem verður þá hér eignarlaus þjóð án auðlinda í eigin landi ofurseld einokun þeirra erlendu manna sem sitja á orkuauðlindunum, neysluvatninu og fiskimiðunum?

Ég spyr þá bara á móti fyrir hönd okkar Íslenskra Thatcherista, er það ekki bara þeirra vandamál?

Hvernig er það annars, eru ekki einhverjar altaristöflur og kirkjugripir til í kirkjunum hér í Reykjavík sem væri líka hægt að koma í verð?

Já, það stefnir allt í stórsigur okkar Sjálfstæðismanna í borgarstjórnarkosningunum nú í vor, enda framsýni, almannaheill og gamla kjörorðið "Íslandi allt" verði okkar leiðarljós þetta kjörtímabil.

Borgarbúar munu án efa verða flokknum gjöfulir á atkvæðin sín og verðlauna okkur í samræmi við verkin okkar. Borgarbúar sjá öruggleg líka til þess að Framsóknarmenn í borginni njóti þess sem þeir hafa sáð til.

Með öðrum orðum, ég er æfur yfir því að við erum að selja orkuauðlindirnar úr landi.

Hvað erum við án auðlindanna?

Mynd: Dómadalsvatn

 


mbl.is Endurskoðendur í svaðið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. september 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband