Að missa auðlindir landsins í hendur útlendinga.

Svo illa er nú komið fyrir þessari þjóð að erlendir fjárglæframann eru byrjaðir að kaupa upp auðlindir þjóðarinnar og gengur það vel. Fjárglæframenn segi ég því það er ekki hægt að kalla þá annað, menn sem bjóðast til að kaupa hlut Reykjavíkurborgar í hitaveitu þeirra Suðurnesjamanna með því að greiða út 25% kaupverðs og fá 75% kaupverðsins lánað hjá Seljanda á 1,5% vöxtum með veði í bréfunum sjálfum.

093Svona og svipaða "díla" höfum við séð á síðustu árum hjá þeim mönnum sem gerðu þessa þjóð gjaldþrota. Þeir þurrkuðu upp allt fé úr bönkum landsins og allt fé í öllum okkar helstu og stærstu fyrirtækjum hvort heldur voru tryggingarfélög, flutningsfyrirtæki eða fisksölufyrirtæki og voru langt komnir með að féfletta lífeyrissjóðina þegar ruglið loks stöðvaðist.

Er ekki komið nóg að svona "dílum" í þessu samfélagi? Erum við ekki búin að sjá nóg af vinnubrögðum af þessum toga?

Er stór hluti forystumanna okkar í sveitarstjórnum og á Alþingi virkilega orðnir eins og þessar "meðvirku" konur sem alltaf sækja í ný og ný sambönd við drykkfelda menn sem berja þær?

Liggur ekki ljóst fyrir hvað þessir menn ætla sér að gera við þetta félag ef þeir ætla sé að fá 75% af kaupverðinu lánað hjá Seljanda og einu veðin eru bréfin sjálf? Hversu mikils virði verða þessi bréf þegar búið er að tvöfalda skuldir Hitaveitunnar frá því sem nú er?

Er ekki öllum ljóst að þessir menn líta ekki á þessi kaup sem langtíma fjárfestingu? Skilja menn það ekki að ef þetta væri langtíma fjárfesting hjá þessum aðilum þá kæmu þeir með sitt eigið fé og keyptu þennan hlut OR?

Liggur ekki fyrir að nái þeir meirihluta í félaginu þá munu þeir "taka á því snúning". Eftir mun standa orkufyrirtæki enn verr sett en það er í dag, skuldsett upp fyrir haus og þær skuldir munu eins og allt hitt ruglið lenda á þjóðinni. Þegar búið verður að veðsetja og taka lán út á vinnsluleyfi Hitaveitunnar  sem er til 65 ára með vilyrði um framlengingu í önnur 65 ár þá munu allar skuldir Hitaveitunnar á endanum lenda á þjóðinni ætli menn að nýta orkuna á þessu svæði til húshitunar og rafmagnsframleiðslu. Og af hverju er verið að veita mönnum vinnsluleyfi í svona mörg ár? Erlendis eru slík leyfi veitt í 5 til 10 ár með vilyrði um framlengingu.

Þessa taglhnýtinga Alþjóða gjaldeyrissjóðsins eigum við að senda til síns heima. Þessa menn sem koma hér og vilja komast yfir orkuauðlindir þjóðarinnar þegar hægt er að kaupa þær fyrir tíu sent á dollar en finnst það ekki nóg og hafa til að bera þá óskammfeilni að reyna að komast yfir þær án þess að borga fyrir þær með því að reyna að fá kaupverðið lánað hjá okkur Reykvíkingum, slík fyrirtæki og slíka menn getum við verið án.

Við eigum sjálf nóg til af fólki af þessu sauðahúsi. Það er óþarfi að vera að flytja slíkt fólk til landsins. 

Þar fyrir utan þá eiga auðlindir þessa lands að vera í höndum og eigu þjóðarinnar. Það minnsta sem við getum gert nú þegar Alþingi er nýbúið að samþykkja að skuldsetja næstu kynslóð upp fyrir haus með því að samþykkja Icesave er að við höldum auðlindunum í eigu þjóðarinnar þannig að afraksturinn af þeim nýtist þjóðinni um ókomin ár, ekki útlendingum.

Mynd: Á Löngufjörum.

 

 


mbl.is Eignast meirihluta í HS Orku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 31. ágúst 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband