Nýja sjálfstæðisbaráttan hafin á 17. júní á Álftanesi.

Það fer vel á því að sjálfstæðisbaráttan hin nýja sem kallað var eftir í hátíðarræðu á Austurvelli í dag hefjist á Álftanesi, í sömu sveit og Forsetaembættið hefur sinn embættisbústað.

501701Uppreisn íbúðareigandans sem lagði hús sitt í rúst í stað þess að afhenda það bankanum gefur tónninn um það sem koma skal.

Mín spá er sú að búsáhaldabyltingin sé bara upphafið að því sem koma skal. Uppreisn almennings gegn siðblindum bankamönnum, gegnumrotnu embættismannakerfi og svikulum stjórnmálamönnum er rétt að hefjast. Stjórnmálamönnum sem hafa lofað að vernda heimilin og fyrirtækin í landinu en hafa ekki dug, döngun, kraft eða þá áræðni sem þarf til að standa við neitt af því sem þeir lofuðu.

Í því ástandi sem er að skapast þá hefur þjóðin enga þolinmæði gagnvart lýðskrumurum sem standa ekki við það sem þeir lofa fyrir kosningar og svíkja lit í öllum sínum helstu baráttumálum.

Ég spái því að samþykki Alþingi Icesave samningin og siðblindum fjárglæframönnum verður leyft að halda áfram að stjórna bönkum landsins þá munu margir fleiri bílar brenna og mörg hús fara á sama veg og þetta hér á Álftanesi.

 

 

 


mbl.is Bankinn fékk ekki lyklana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. júní 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband