Hættum hvalveiðum og einbeitum okkar að hvalaskoðun.

Hvernig nýtum við þessa auðlind best sem eru hvalastofnarnir við landið? Hvort mun gefa meira í aðra hönd, að skoða hvalina eða skjóta þá?

HvalveiðarHvort eigum við að láta sjávarútvegsfyrirtækin eða ferðaþjónustufyrirtækin um að nýta þessa auðlind?

Ferðaþjónustan segir að á síðasta ári hafi 115.000 manns farið í hvalaskoðunarferðir og um 200 manns hafi af þessu atvinnu.

Sjávarútvegurinn segir að hvalveiðar muni skapa rúm 200 störf.

Báðir þessir atvinnuvegir skapa okkur gjaldeyri. Eins og staðan er í dag skapar nýting hvalastofnanna álíka mörg störf hvort heldur hvalir eru skoðaðir eða skotnir.

Framtíð hvalveiða við Ísland er og verður mjög óviss. Markaðir fyrir hvalaafurðir eru fáir og ótryggir.  

Framtíð hvalaskoðunar er björt. Þetta er atvinnugrein sem á sér örfárra ára sögu en hefur vaxið gríðarlega ár frá ári. Þar er ekkert nema vöxtur og auknar tekjur framundan.

Niðurstaðan er einföld, við munum hagnast meira á því að skoða hvalina en skjóta þá.

Látum ferðaþjónustunni eftir að nytja hvalastofnana við Ísland og hættum að slást við alþjóðasamfélagið um þetta mál.

 


mbl.is ESB gagnrýnir hvalveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. apríl 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband