Af hverju tók Íslandsbanki Moggann úr höndum eigendanna og seldi?

hestar fEf það er yfirlýst stefna stjórnvalda að selja ekki eignir á brunaútsölu af hverju var Morgunblaðið þá selt?

Af hverju var eigendum Morgunblaðsins ekki gefinn kostur á frystingu lána í eitt til tvö ár þar til krónan réttir úr kútnum og afborganir af erlendum lánum verða orðnar skaplegar? Af hverju mátti ekki afskrifa skuldir Árvakurs með óbreytt eignarhald? Af hverju þurfti að skipta um eigendur? Af hverju var ekki hægt að una þeim sem hafa lagt mikla vinnu og fé í að byggja upp fyrirtækið að eiga það áfram ef afskrifa átti skuldir? Hefði ekki verið hægt að minnka verulega þessar afskriftir ef lán hefðu verið fryst í eitt til tvö ár og fyrri eigendur haldið áfram að reka blaðið?

Er það krafa frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum að öll fyrirtæki sem lenda í vandræðum með greiðslur af lánum skuli tekin úr höndum eigenda sinna og seld? Er það krafa frá ríkisstjórninni? Eru þetta vinnureglur sem starfsmenn bankana hafa búið sér til sjálfir? Þessara sömu starfsmanna og keyrðu þessa sömu banka í gjaldþrot og þjóðina í greiðsluþrot. Ætla bankarnir í framhaldi að ganga á röðina og taka samskonar "snúning" á öllum fyrirtækum landsins? Er markmið bankana enn það sama og það var þegar þeir voru í einkaeign, að féfletta viðskipavini sína?

Þessir bankar sem eru að hirða Moggann, þeir eru ástæða þess að Mogginn er í vandræðum með að borga af lánum sínum. Það eru bankarnir og eigandi þeirra ríkið sem bera alla ábyrgð á stöðu mála. Það eru bankarnir og eigandi þeirra ríkið sem keyrðu þjóðina í mesta bankagjaldþrot sem nokkur þjóð í Evrópu hefur staðið frammi fyrir frá lokum seinni heimstyrjaldarinnar. Afleiðing þessa er gjaldeyriskreppa og verðfall krónunnar sem hækkað hefur öll erlend lán um 100%.

Ekkert af þessu er af völdum eða á ábyrgð eigenda Moggans. Þessar utanaðkomandi ástæður hafa valdið því að Mogginn og öll önnur fyrirtæki í landinu hafa átt í miklum erfiðleikum að borga af lánum sínum. 70% allra lána fyrirtæja í landinu eru erlend lán og þau hafa öll hækkað um 100%. Allar afborganir af þessum lánum hafa því hækkað um 100%.

Ég spyr hvað er í gangi? Er þetta meðferðin sem býður allar fyrirtækja í landinu sem ekki ná að standa í skilum? Ætla þeir sem unnið hafa mestu efnahagslegu skemmdarverk Íslandssögunnar, bankarnir og starfsmenn þeirra, að halda áfram í umboði ríkisins að valda enn meira tjóni? Sætta eigendur Moggans sig við þessa meðhöndlun?

Ég skora á ríkisstjórnina að sjá til þessa að bankarnir gefi fyrirtækjum í landinu greiðslufrest í eitt eða tvö ár á þeim lánum sem þau geta ekki staðið í skilum á. Gefið eigendum fyrirtækjanna í landinu tækifæri að til að lifa af þessar efnahagshamfarir. Að sleppa böðlum bankana lausum á þessi fyrirtæki eins og staðan er í dag er engum til hagsbóta. Ekki láta bankana auka tjónið í samfélaginu enn meir. Nóg er tjónið hér orðið samt.

 

Holtasóley

Holtasóley dagsins frá Norræna Íhaldsflokknum fær Ásta Möller þingkona Sjálfstæðisflokksins fyrir að hafa beðið þjóð sína afsökunar í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins á því að hafa ekki staðið sig betur sem kjörinn fulltrúi, þegar bankakerfið stækkaði ört og að lokum hrundi.

 


mbl.is 3 milljarðar sagðir afskrifaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. mars 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband