Riðar ríkisstjórnin til falls?

Mótmæli bÞessi uppákoma í viðskiptanefnd hlýtur að vera mjög alvarlegt mál fyrir forystu ríkisstjórnar. Þingmenn Framsóknarflokksins hafa það í hendi sér að gera ríkisstjórnina óstarfhæfa með því að stöðva mál stjórnarinnar í nefndum Alþingis. Þeir ætla sér greinilega að nýta sér það. 

Höskuldur Þórhallsson er að stöðva stærsta mál ríkisstjórnarinnar. Það mál sem stjórnin var að stórum hluta mynduð um, þ.e. að koma til móts við kröfur Búsáhaldabyltingarinnar, að stjórnendur Seðlabankans væru látnir axla sína ábyrgð á bankahruninu.

Stjórnin horfir nú fram á þann möguleika að geta hugsanlega ekki komið nema fáum málum í gegn um þingið vinni þingmenn Framsóknar með þessum hætti. 

Þórhallur segist vilja bíða með að samþykkja frumvarpið fram á miðvikudag því þá komi nýjar reglur frá ESB um starfsemi Seðlabankana. Gott og vel en ef þessar reglur eru á skjön við það frumvarp sem nú er fyrir þingnefnd þá þarf að breyta frumvarpinu. Slíkar breytingar geta tekið vikur og mánuði. Það þýðir að stjórninni tekst ekki að gera þær breytingar á Seðlabankanum sem til stóð að gera á þeim stutta tíma sem hún hefur til umráða.

Forystumenn ríkistjórnarinnar hljóta að spyrja sig, hvað með önnur mál? Ætlar þingmaðurinn sem tapaði í formannskjöri Framsóknar að knésetja minnihlutastjórnina sem nýi formaðurinn var arkitektinn að?

Þetta lítur ekki vel út. Ég held að forystumenn minnihlutastjórnarinnar hljóti að velta því alvarlega fyrir sér hvort það séu forsendur til að halda áfram þessu samstarfi við Framsóknarflokkinn.


mbl.is Mikil fundahöld í þinghúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. febrúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband