Laugardagur, 14. febrúar 2009
Eru bankarnir fullir af ungu og reynslulausu fólki?
Það sló út á mér svita þegar ég las þessa frétt. Í mínum bransa, byggingariðnaðinum, þá er það bara þannig að félag þar sem meðalstarfsaldur starfsmanna væri 5 ár, það fyrirtæki ætti enga möguleika. Á fimm árum erum menn ekki einu sinni búnir að átta sig á leikreglunum, hvað þá út á hvað starfsgreinin gengur.
Til þess að geta rekið fyrirtæki farsællega, hvort sem það er í byggingariðnaði, fiskvinnslu eða fjármálastarfsemi þá þarf að koma til áratuga reynsla og þekking.
Að fara síðan inn á alþjóðlega markaði með slíkan mannskap, fólk sem aldrei hefur starfað erlendis í faginu, það er algjörlega dauðadæmt. Ég vil ekki trúa því að bankarnir okkar hafi starfað með þessum hætti.
Ef þessi frétt er rétt hjá Morgunblaðinu þá spyr ég, eru bankarnir okkar ennþá fullir af þessu unga reynslulausa fólki?
Er það þess vegna sem ekkert gengur né rekur með skýrslurnar um fjárhagsstöðu bankana sem átti að afhenda Alþjóða gjaldeyrissjóðnum nú um miðjan febrúar og ekkert bólar á? Þessi dráttur er að stefna í hættu fjárhagslegri fyrirgreiðslu sjóðsins til okkar. Eins kemur þessu dráttur í veg fyrir að þessir 385 milljarðar séu settar inn í bankana og þeir eru því ennþá peningalausir og þar með óstarfhæfir. Hvað er að gerst í þessum bönkum okkar? Er verið að stefna öllu í voða af því menn hafa ekki og eru ekki að vinna heimavinnuna sína? Ég væri æfur ef það væri ég sem bæri faglega eða pólitíska ábyrgð á þessum drætti.
Þá verður að fara að setja lög um starfsemi banka og sparisjóði. Nú verður að fara að halda í eyrun á þessum fjármálastofnunum, eigendum þeirra og starfsmönnum. Sjá allt um það í þessari grein hér.
![]() |
Reynslulausir réðu í bönkum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:39 | Slóð | Facebook