Fimmtudagur, 12. febrúar 2009
Setjum reglur um hámarks lengd vinnuviku.
Á nýjum tímum skapast ný tækifæri. Nú er tækifærið til að stuðla að heilbrigðu fjölskyldulífi og góðum starfskilyrðum á vinnustöðum landsins.
Nú eigum við að setja svipaðar reglur um hámarks lengd vinnuviku launafólks og er í gildi á hinum Norðurlöndunum (Afspassering). Við eigum til að byrja með að hafa viðmiðið hærra hér en þar eða 45 til 50 stundir á viku.
Ársfjórðungslega verði vinnustundir reiknaðar út og hafi verið unnið meira en sem samsvarar 45 eða 50 stundum á viku að jafnaði síðustu þrjá mánuði þá skal viðkomandi taka launalaust frí á móti því. Hægt er að flytja slík frí á milli ársfjórðunga en fríið skal taka innan ársins.
Með þessu eru atvinnurekendur alltaf með úthvílt vinnuafl sem þýðir meiri afköst og færri dýra næturvinnutíma.
Þekkt er að afköst eru meiri hjá þeim sem vinna stuttan vinnudag en þeirra sem vinna langan vinnudag. Þetta sýna rannsóknir og þetta þekkja allir þeir sem hafa unnið í ákvæðisvinnu árum saman. Ef vel er unnið kemur best út að vinna 8 tíma á dag.
Vinnan dreifist með þessu fyrirkomulagið á fleiri hendur og atvinnulausum fækkar.
Með þessu vinnulagi þá fá launþegar meiri tíma fyrir sig og fjölskyldulífið blómstrar. Til þess er jú barist, að eiga tíma fyrir sjálfan sig og fjölskylduna.
Ofangreint er tekið upp úr áherslum Norræna Íhaldsflokksins um atvinnumál.
![]() |
Staðið verði við launahækkanir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:16 | Slóð | Facebook