Á nú að fela það í 80 ár að okkar helstu stjórnmálamenn og embættismenn þáðu mútur?

"Allt að 80 ára leynd mun hvíla á viðkvæmum upplýsingum sem rannsóknarnefnd Alþingis hefur haft til meðferðar í tengslum við skýrslu um bankahrunið. Um er ræða upplýsingar sem snerta launakjör einstaklinga og rekstur fyrirtækja. Forseti Alþingis segir að þetta muni ekki rýra gildi skýrslunnar". Þetta kemur fram í frétt á visir.is um málið.

Skerjafjörður bEf ég ætlaði að hylma yfir og fela það að greiðslur / mútur hafi átt sér stað frá fyrirtækjum til stjórnmálamanna eða embættismanna þá myndi ég gera það með þeim hætti sem hér er lýst.

Nú er það svo að stjórnmála- og embættismenn eru opinberir starfsmenn og launakjör þeirra hafa ekki verið og eru ekki trúnaðarmál. Þeir fá laun samkvæmt opinberum kjarasamningum. Af hverju á nú að fela það í 80 ár hvaða fjárhæðir hafa verið lagðar inná þeirra persónulegu reikninga á undanförum árum? Hvað er verið að fela?

Er það svo að það hafa komið reglulega eða óreglulega háar fjárhæðir frá bönkunum eða fyrirtækum þeim tengdum eða öðrum aðilum inn á persónulega reikninga okkar helstu lykilmanna og kvenna í stjórnmálunum og stjórnsýslunni?

Ég var einmitt að bíða eftir því að Rannsóknarnefnd Alþingis kvæði upp úr með það hvort okkar helstu stjórnmála- og embættismenn hefðu þegið mútur. Um það hefur gengið þrálátur orðrómur í mörg ár. Ljóst er á öllu að rannsóknarnefndin hefur kannað þetta mál, eðlilega.

Niðurstaða þeirrar rannsóknar er sú að Alþingi vill að þær niðurstöður verið lokaðar niðri í skúffu í 80 ár.

Hvaða upplýsingar eru svo viðkvæmar, upplýsingar er varða persónuleg fjármál / launkjör opinberra starfsmanna að það þarf að setja á þær 80 ára leynd?

Er nokkuð annað sem kemur til greina en að rannsóknin hafi sýnt að okkar æðsta fólk hafi þegið ýmsar greiðslur, greiða og gjafir, með öðrum orðum mútur, og þetta sama forystufólkið sameinast nú um að þessu verði öllu leynt næstu 80 árin?

Ég neita að trúa því að þetta fólk komist upp með að leyna þessum upplýsingum!

Í hvernig samfélagi hef ég búið í öll þessi ár?

Á spillingin hér sér engin takmörk og teygir hún anga sína um alla stjórnsýsluna og inn í forystu allra flokka á Alþingi?

Mynd: Við Skerjafjörðinn, 1.11.09. 

 


Bloggfærslur 2. desember 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband