Rjúpnaveiðar.

Engu virðist vera til sparað þegar kemur að því að vernda rjúpnastofninn. Nú virðist vera byrjað að vakta með þyrlum svæði þar sem rjúpnaveiði er bönnuð og rjúpnaveiðimenn eltir uppi á þyrlum sjáist til þeirra á þessum svæðum. 

Elliðaárdalur aLögreglan stöðvar líka rjúpnaskyttur og gerir afla og skotvopn upptæk hafi menn ekki á sér veiðikortið við rjúpnaveiðarnar.

Það er eins gott að lögreglan hafi ekki sama háttinn á og geri bíla og farangur upptækan þegar lögreglan stöðvar ökumenn sem hafa ekki á sér ökukortið.

Ég held lögreglan ætti nú að taka þessu aðeins rólega þó menn séu að sportast við að ná sér í rjúpur í jólamatinn. Á mörgum heimilum landsins þá eru engin jól nema það séu rjúpur á borðum enda ilmurinn af þeim þegar þær eru steiktar í ofni einstakur. Þetta er fyrir mörgum hin eina og sanna jólalykt. Ef það eru ekki rjúpur um jólin þá eru engin jól.

Nú er bannað að selja rjúpur þannig að þeir sem vilja halda sínum gömlu jólasiðum, þeir verða að fara á stúfana og veiða þær sjálfir.

Fjölmargir virðast vera tilbúnir að leggja mikið á sig til að eyðileggja þennan gamla jólasið fyrir þessum "rjúpnafjölskyldum" og hafa allt á hornum sér þegar rjúpnaveiðimenn fara til rjúpnaveiða.

Það er ljóst að þetta árið verða þessir rjúpnaveiðimenn ekki teknir neinum vettlingatökum og þó að ekki finnist fé til að kaupa eldsneyti á þyrlur Landhelgisgæslunnar þegar þarf að sinna einhverjum ferðalöngum í vandræðum á hálendinu þá virðist vera nægt fé til þegar þarf að vakta rjúpnaveiðilendur.

Alvarlegustu aðförina að þessum sið að hafa rjúpur í jólamatinn gerði þó Sif Friðleifsdóttir í ráðherratíð sinni í Umhverfisráðuneytinu. Hún bannaði alfarið alla rjúpnaveiði í nokkur ár. 

 

Mynd: Í Elliðaárdalnum, 1.11.2009.

 

 


mbl.is Skyttur teknar á Þingvöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. nóvember 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband