Bretar og Hollendingar eru að gera Íslendinga afhuga aðild að ESB.

Mikill viðsnúningur hefur orðið á mjög skömmum tíma í viðhorfum Íslendinga til aðildar að Evrópusambandinu, ESB, ef marka má nýjustu skoðunarkannanir.

Eina haldbæra skýringin sem finna má á þessum viðsnúningi er Icesave málið sem nánast öll umræða hefur hverfst um frá því snemma í vor.

Grafarvog cBretar og Hollendingar hafa beitt okkur mikilli óbilgirni í þessu máli. Samningurinn sem þeir hafa verið að reyna að þvinga stjórnvöld til að samþykkja er með þvílíkum ólíkindum að hann hlaut að kalla á mikla andúð hjá almenningi.

Bretar og Hollendingar hafa beitt öllum brögðum til að þvinga okkur til að samþykkja þennan nauðasamning. Þar hafa þeir beitt leynt og ljóst jafnt pólitískum þrýstingi sem og fjárhagslegum og notað til þess Alþjóða gjaldeyrissjóðinn sem og vina- og frændþjóðir okkar.

Hefur þátttaka okkar helstu vina- og frændþjóða í þessum þjösnaskap Breta og Hollendinga, valdið mörgum Íslendingnum miklum vonbrigðum. Frændþjóðir okkar á hinum Norðurlöndunum hafa valið að blanda sér í deiluna um Icesave og tekið einarða og skýra afstöðu gegn okkur í þessum máli. Þau hafa sett klár skilyrði fyrir fjárhagsaðstoð / lánum sínum. Við verðum að skrifa undir Icesave nauðasamninginn annars fáum við engin lán.

Þegar við Íslendingar stöndum einir Evrópuþjóða frammi fyrir fordæmalausu bankahruni og fordæmalausri gjaldeyriskreppu þá eru þessar þjóðir ekki tilbúnar að hjálpa okkur nema með því að þær lána okkur fé á okurvöxtum, lán sem þær ætla sér sjálfar að hagnast vel á. Auk þess þá krefjast þær þess að við gefum eftir rétt okkar í flóknu og erfiðu deilumáli sem við eigum í við Breta og Hollendinga.

Þessi ótrúlega afstaða frændþjóða okkar hefur án efa fengið margan Íslendinginn til að snúa baki við öllum hugmyndum um aðild að ESB.

Eins og staðan er í dag þá bendir allt til þess að Bretar og Hollendingar verði, með framgöngu sinni í Icesave deilunni, þess valdandi að þjóðin hafnar aðild að ESB.

Tjónið og skaðinn er mikill sem Bretar og Hollendingar hafa valdið okkur með því að setja á okkur hryðjuverkalög, eru að valda okkur með Icesave samningnum og munu valda okkur takist þeim að vekja upp svo mikla andúð almennings á vina- og frændþjóðum okkar að þjóðin verður fráhverf inngöngu í ESB.

Hefnd Breta og Hollendinga á þjóðinni vegna framkomu 5 til 10 íslenskra bankamanna væri þá fullkomnuð.

Mynd: Við Gullinbrú í Grafarvogi, 1.11.09.

 

 


mbl.is Icesave skemmir Evrópuumræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. nóvember 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband