Eftir misheppnuðustu einkavæðingu í heimi endar, á Fullveldisdaginn, helmingurinn af þjóðarauðunum í höndum útlendinga.

Eftir misheppnuðustu einkavæðingu Íslandssögunnar ef ekki heimssögunnar þá enda tveir af þrem gömlu ríkisbönkunum í höndum útlendinga.

Skerjafjörður aAfleiðing einkavæðingar ríkisbankana fyrir sex árum, árið 2003, endaði með þriðja og sjötta stærsta gjaldþroti heims þegar Kaupþing og Landsbankinn féllu. Þessu til viðbótar er svo stærsta persónulega gjaldþrot heims þegar stjórnarformaður Landsbankans og ábyrgðarmaður númer eitt á Icesave reikningunum lýsti sig gjaldþrota fyrr á þessu ári.

Með það í huga að þetta þrennt gerðist allt á fimm árum, stærsta persónulega gjaldþrot heims og þriðja og sjötta stærstu gjaldþrot í heimi "í flokki fyrirtækja" þá held ég það muni fáir mótmæla því mjög hátt þó ég láti það eftir mér að fullyrða að einkavæðing íslensku bankana hafi verið misheppnasta einkavæðing heimssögunnar.

En það er ekki bara íslenska þjóðin sem mun njóta ávaxtanna af þessari einkavæðingu um ókomin ár. Erlendir aðilar, bankar, sjóðir, fyrirtæki og einstaklingar hafa tapað tugum þúsunda milljarða króna.

Allar áætlanir sem hér voru uppi þegar neyðarlögin voru sett um að við ættum ekki að borga skuldir óreiðumanna og bankarnir okkar, Seðlabankinn og viðskiptabankarnir, myndu á endanum koma mjög vel út úr þessum gjörningi sem neyðarlögin voru, öll eru þessi loforð horfin. Gufuð upp.

Í staðin er þjóðin að axla ábyrgð á skuldum þessara óreiðumana og erlendir aðilar eru að eignast tvo stærstu banka landsins. Þar með talin lán þúsunda einstaklinga, fyrirtækja, útgerðarfélaga, sveitarfélaga og orkufyrirtækja. Það eru allar líkur á því að það verði útlendingar sem munu eiga á morgun, fullveldisdaginn 1. des., stærstan hluta lána okkar Íslendinga og þar með talin þau veð sem á bak við þessi lán eru.

Með því að erlendir aðilar hafa eignast stærstan hluta í Kaupþingi og Glitni þá hafa erlendir aðilar í raun "eignast" hálft Ísland.

Á fimm árum tókst í misheppnuðustu einkavæðingu veraldarsögunnar

  • að gera Seðlabankann gjaldþrota,
  • veðsetja þjóðina með Icesave reikningunum um sem samsvarar landsframleiðslunni
  • skuldsetja ríkissjóð um sem samsvarar landsframleiðslunni
  • og þar að auki missa helming allra lána okkar Íslendinga í hendur erlendra aðila og þar með í raun um helminginn af þjóðarauðnum í hendur útlendinga.

Hvað er til ráða?

Halda áfram á braut ríkisstjórnarinnar sem gengur aðallega út á það að skuldsetja samfélagið enn meira með Icesave og lánum frá AGS?

Halda áfram að fylgja stefnu Davíðs Oddsonar með íslensku krónuna sem gjaldmiðil og einangra okkar frá Evrópu á sama hátt og búið er að einangra okkur frá Bandaríkjunum?

Nú þarf nýjar lausnir og nýtt fólk!

Mynd: Við Skerjafjörðinn, 1.11.09.

 


mbl.is Kröfuhafar eignast Arion
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. nóvember 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband