Ráðherrar dregnir fyrir Landsdóm?

Mun nást fram réttlæti og verða þeir sem bera ábyrgð á því mikla tjóni sem hér hefur orðið dregnir til ábyrgðar?

Fossvogur eFyrir helgi hefði ég svarað þessari spurningu neitandi.

Nú hefur vaknað von. Fyrir því eru tvær ástæður. 

Í fyrsta lagi er það hið óvænta útspil sérstaks saksóknara í gær að frysta eigur ráðuneytisstjórans fyrrverandi í fjármálaráðuneytinu sem seldi hlutabréf sín í Landsbankanum fyrir á annað hundrað milljónir króna nokkrum dögum fyrir yfirtöku ríkisins á bankanum.

Ef ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu sem sat ótal fundi hér heima og erlendis að ræða stöðu Landsbankans með helstu sérfræðingum í málefnum bankans, ef hann telst ekki hafa haft aðrar og betri upplýsingar en almenningur hafði um stöðu bankans og ef hann telst ekki vera innherji í þessu máli hver telst þá vera innherji? Í augum flestra er maðurinn innherji og honum bar því að tilkynna sölu á þessum hlutabréfum sínum í bankanum. Ef þetta er ekki rétt þá er nú líka eins gott að maðurinn verði hreinsaður af þessum áburði.

Í öðru lagi eru það þessi ummæli Styrmis Gunnarssonar í þessari nýju bók hans þar sem hann ræðir þann möguleika að rannsóknarnefnd Alþingis leggi það til í skýrslu sinni að ráðherrar sem sátu í ríkisstjórn Geirs Haarde verði kærðir fyrir Landsdómi vegna aðgerða þeirra og aðgerðarleysis í aðdraganda hrunsins.

Mín tilgáta er sú að Styrmir sé það vel tengdur að hann væri ekki að setja slíkar vangaveltur inn í bók sem á eftir að bera nafn hans og hróður um ókomin ár nema fyrir þessu sé nokkur fótur ef ekki klár vissa.

Vegna þessara tveggja atburða nú í vikunni þá myndi ég í dag ekki svara spurningunni sem ég set fram fremst í þessum pistli neitandi eins og ég hefði gert fyrir helgi.

Ég svara henni heldur ekki játandi í dag en  nú hefur vaknað von.

Mynd: Við Fossvoginn, nýbygging HR, 1.11.09.

 


mbl.is Ráðherrar fyrir dóm?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. nóvember 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband