Seðlabankinn fær 100 milljarða í viðbót til að sólunda.

Mikið óskaplega leggst það illa í mig að Seðlabanki Íslands skuli vera að fá í hendur 100 milljarða í erlendum gjaldeyri.

IMG_3727Ég myndi treysta flestum betur en Seðlabankanum og til að gæta þessa fjár vilji menn endilega taka þetta fé að láni.

Þetta er eini Seðlabanki í Evrópu sem hefur orðið gjaldþrota frá lokum seinni heimstyrjaldarinnar. Allt sama fólkið er þarna enn sem stóð að þeim ákvörðunum sem leiddu til þess að bankinn varð gjaldþrota.

Og við erum að láta þetta sama fólk hafa hundruð milljarða af erlendum gjaldreyri að sýsla með.

Allar líkur eru á að bankinn muni sólunda þessu fé á örfáum misserum í einhverju rugli við að verja krónuna.

Þessi banki og starfsfólk hans var ófært að verja sjálfan sig og þjóðina í aðdraganda hrunsins.

Er ekki borin von að hann sé eitthvað frekar fær um það nú?

Mynd: Í Skálmárdal

 


mbl.is Nota forðann í afborganir lána
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. október 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband