Laugardagur, 11. febrúar 2012
Lýðfrelsisflokkurinn er ekki þátttakandi í Breiðfylkingunni.
Um leið og það bera að þakka blaðamanninum, Hirti J. Guðmundssyni, fyrir góða samantekt á þeim nýju framboðum sem ætla sér að vera þátttakendur í komandi Alþingiskosningunum og möguleikum þessara framboða þá er rétt að leiðrétta þann misskilning sem fram kemur að Lýðfrelsisflokkurinn ætli að vera hluti af þessari svokallaðri Breiðfylkingu.
Fulltrúar Lýðfrelsisflokksins hafa vissulega rætt við ákveðna aðila í Breiðfylkingunni. Þær umræður skiluðu fljótt þeim niðurstöðum að ekki var neinn flötur á samstarfi.
Áherslur okkar í Lýðfrelsisflokknum sem endurspegla áherslur borgaraflokkanna / hægri flokkanna á Norðurlöndunum og Þýskalandi falla ekki að hugmyndafræði þeirra flokka sem ætla að standa að Breiðfylkingunni.
Þar kemur margt til. Þarf ekki annað en nefna afstöðuna til samstarfsins við Evrópu en öllum ætti að vera kunnug afstaða Frjálslynda flokksins og Hreyfingarinnar til þeirra mála.
Eins og staðan er í dag stefnir Lýðfrelsisflokkurinn ótrauður á framboð í öllum kjördæmum í komandi Alþingskosningum.
Sjá nánar heimasíðu flokksins hér: Lydfrelsisflokkurinn.net
|
Möguleikar nýju framboðanna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:42 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Höfundur er verkfræðingur, M.Sc. frá Tækniháskóla Danmerkur í Kaupmannahöfn, DTU. Hefur rekið Verkfræðistofu FHG ehf. frá 1991.
Áhugamaður um stjórnmál og formaður Norræna íhaldsflokksins. Hafnar stefnu bandarískra hægrimanna en aðhyllist stefnu borgaraflokkana á hinum Norðurlöndunum / Danmörku með tilheyrandi áhuga á nánara samstarfi við Evrópu.
Netfang: fridrikhansen@gmail.com
Forsíðumyndin er tekin á gönguleiðinni upp Þverfellshorn, Esjunni. Sér yfir til Gunnlaugsskarðs og Kistufells.
Tenglar
Mínir tenglar
Efni
Spurt er
Nýjustu færslur
- Pólitískt uppgjör á glæpum gegn þjóðinni verður í þingkosning...
- Glæpir fjórflokksins gegn þjóðinni.
- Íslenski fáninn í miðpunkti "búsáhalda-mótmælanna" í Madrid í...
- Tapa á stöðutöku gegn evrunni?
- Pólitísku uppgjöri fjórflokksins á hruninu lokið.
- Lýðfrelsisflokkurinn er ekki þátttakandi í Breiðfylkingunni.
- Hundamatur er ekki heldur hættulegur, bara ekki ætlaður til m...
- Matvælastofnun hrjáð af "Fjármálaeftirlits syndróminu" ???
- Gleðileg jól
- Stjórnlagaráð á rangri leið.
- Til lukku með Hörpuna
- Icesave-dómur og mestu afglöp íslenskra fjölmiðla?
- Moody´s kokgleypir skammir Forseta Íslands
- Auðvitað mátti ekki veita þessa ríkisábyrgð
- Fulltrúi olíufurstanna í Dubai í samninganefndinni, Lee C. Bu...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.5.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 501
- Frá upphafi: 310205
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 355
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Arinbjörn Kúld
-
Ágúst H Bjarnason
-
Árni Gunnarsson
-
Ármann Kr. Ólafsson
-
Áslaug Friðriksdóttir
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Baldvin Jónsson
-
Bergur Thorberg
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Óskar Halldórsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Dögg Pálsdóttir
-
Egill Jóhannsson
-
Eggert Guðmundsson
-
Einar Björn Bjarnason
-
Einar Vignir Einarsson
-
Elle_E
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Eyþór Arnalds
-
Eyþór Árnason
-
Finnur Bárðarson
-
Friðgeir Sveinsson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Gerður Pálma
-
Gestur Guðjónsson
-
gudni.is
-
Guðbjörn Guðbjörnsson
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Guðmundur Magnússon
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gylfi Björgvinsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Halldór Jónsson
-
Hallur Magnússon #9541
-
Haraldur Baldursson
-
Haugurinn bloggar
-
Heidi Strand
-
Helga Sigrún Harðardóttir
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Himmalingur
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hjalti Tómasson
-
Hrannar Baldursson
-
Hörður Halldórsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Indriði Haukur Þorláksson
-
Ingólfur H Þorleifsson
-
Ívar Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Jenný Stefanía Jensdóttir
-
Jóhann Páll Símonarson
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jón Gunnar Bjarkan
-
Jón Magnússon
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jón Vilhjálmsson
-
Jórunn Ósk Frímannsdóttir
-
Kama Sutra
-
Karl Ólafsson
-
kreppukallinn
-
Kristján Baldursson
-
Kristján Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lárus Guðmundsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Letigarðar
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Magnús B Jóhannesson
-
Magnús Jónasson
-
Magnús Jónsson
-
Marinó G. Njálsson
-
Morgunblaðið
-
Norræni Íhaldsflokkurinn
-
Ólína Þorvarðardóttir
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Ómar Geirsson
-
Páll Blöndal
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Sigurbjörn Sveinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Sigurður Jónsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigurjón Benediktsson
-
Sigurjón Sveinsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Skúli Sigurðsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Vilborg G Hansen
-
Hrólfur Þ Hraundal
-
Einar Karl
-
Guðmundur Pálsson
-
Vilhjálmur Árnason
-
TARA
-
Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þjóðarheiður
-
Samstaða þjóðar












Athugasemdir
Þó svo að óhætt sé að óska öllum gæfu og gengis sem vilja reyna að hafa áhrif á íslensk stjórnmál og sitt samfélag, þá held ég að LF hafi þar afskaplega litla möguleika, auk .þess sem ég get ekki óskað ESB sinnuðum framboðum gæfu eða gengis, þó svo það sé ekkert persónulegt.
Samkvæmt nýjustu skoðanakönnun FRBL þá mælist þið nú varla eða með um 1% fylgi og þó er búið að vera að tala fyrir þessu framboði ykkar í meira en heilt ár.
Samtals er stuðningur við flokka sem hafa ESB innlimun á stefnuskrá sinni innan við 20% en þeirra sem eru andvígir ESB aðild er það yfir 80%.
Stuðningur við Samfylkinguna höfuðból ESB aftaníossana er í sögulegu lágmarki eða aðeins 12% og bergmál Samfylkingarinnar ESB-framboð Guðmundar Steingríms, Björt framtíð er eitt floppið enn og mælist með aðeins 6% í skoðanakönnun sem þessari.
Hvað verður þá í kosningunum sjálfum kannski 3% og þið með 0,5% fylgi.
ESB sinnuð framboð eiga ekkert upp á pallborðið hjá þjóðinni.
Það er bara staðreynd sem að þið þurfið að kyngja fyrr en seinna hvort sem ykkur líkar það betur eða verr !
Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 11.2.2012 kl. 18:59
Friðrik, það gæti ruglað marga í ríminu að Lýðræðisflokkurinn þinn er ekki það sama og Lýðræðishreyfingin, sem á listabókstafinn P.
Því væri gott svona til aðgreiningar ef flokkurinn þinn birti jafnframt listabókstafinn sinn með svona yfirlýsingum.
Kolbrún Hilmars, 11.2.2012 kl. 19:15
Ekki má skilja mig svo að ég tali fyrir einhvern stjónmálaflokk þegar ég spyr þig Friðrik hvað þú meinir þegar þú - eftir að hafa skilgreint stefnu Lýðfelsisflokksins - segir:
-Þar kemur margt til. Þarf ekki annað en nefna afstöðuna til samstarfsins við Evrópu en öllum ætti að vera kunnug afstaða Frjálslynda flokksins og Hreyfingarinnar til þeirra mála.
Er samstarf í þínum augum það sama og að ganga undir einhverskonar pólitískt jarðamen?
Ég er vel kunnugur pólitískum áherslum innan Frjálslynda flokksins og hef aldrei orðið var við annað en mikinn vilja til samstarfs við evrópskar þjóðir í sem flestum málum.
Svo er einnig um afstöðu til flestra þeirra þjóða sem fara fram með friði.
Árni Gunnarsson, 11.2.2012 kl. 19:17
Sæll Gunnlaugur
Við erum nokkuð ánægð með að fá þessi 1,6% í þessari skoðunarkönnun. Mjór er mikils vísir segir einhverstaðar.
Ef horft er til þess að við höfum hingað til eingöngu kynnt Lýðfrelsisflokkinn á netinu og í raun viljað frið í kringum flokkinn til að fá næði til þess að móta stefnuskrána sem við höfum nú unnið að í rúm tvö ár, þá erum við nokkuð ánæðg.
Eðlilega hafa menn misjafnar skoðanir á nánara samstarfi við Evrópu.
Þess vegna er það svo dapurt að þeir sem eru "hægra" megnin í stjórnmálunum skuli í dag ekki bjóðast annar valkostur á þeim væng stjórnmálanna er flokkur sem allt að því hatar Evrópu og allt sem Evrópa stendur fyrir.
Þess vegna verður að bjóða hér upp á nýjan valkost á hægri væng íslenskra stjórnmála. Öll verðum við að hafa tök á því að kjósa í samræmi við okkar sannfæringu.
Friðrik Hansen Guðmundsson, 11.2.2012 kl. 19:18
Sæll Árni
Líklega er þetta of óljóst hjá mér. Það sem ég á við er að forystumenn Frjálslynda flokksins og Hreyfingarinnar berjast ekki fyrir inngöngu Íslandi í ESB og upptöku evru eins og við.
Borgaraflokkarnir í norður Evrópu hafa staðið að og fyrir efnahagssamvinnu ríkjanna í Evrópu. Þetta er grunnþráðurinn í pólitík þessara flokka á fjölda sviða. Má þar nefna efnahagsmál, peningamál, atvinnumál og tækni og vísindi svo eitthvað sé nefnt. Þátttaka þessara landa í ESB er hornsteinn þessara samfélaga á þessum sviðum, tryggilega stutt af borgaralegu flokkunum í Evrópu.
Með sama hætti er aðild að ESB grunnþátturinn í svo mörgum málum hjá okkur í Lýðfrelsisflokknum.
Friðrik Hansen Guðmundsson, 11.2.2012 kl. 19:31
Sæl aftur Kolbrún.
Flokkurinn okkar heitir Lýðfrelsisflokkurinn.
Friðrik Hansen Guðmundsson, 11.2.2012 kl. 19:34
Eins og svo oft áður, þá er Árni Gunnarsson með skýrustu og réttlátustu hugsjónina.
Takk Árni, fyrir að halda sjó, í öllu þessu flokkabrölti. Það þarf sjóaða og réttsýna raunsæismenn, til að halda réttlætis-þræðinum núna, eins og alltaf í svika-pólitíkinni.
M.b.k.v
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 11.2.2012 kl. 19:39
Friðrik, það var einmitt þetta Lýð+eitthvað sem ég átti við. Listabókstafurinn með er ómissandi. :)
Kolbrún Hilmars, 11.2.2012 kl. 19:48
Ekki tókst mér að forðast innsláttarpúkann þegar ég sló inn orðin jarðarmen og Lýðfrelsisflokksins.
Sú var tíð að þessi þjóð engdist í fjötrum verslunaránauðar og menn urðu sekir vegna kaupa á snæri frá frönskum duggum.
Nú leika skilríkum mönnum landmunir til að fá að binda þjóðina í yfirþjóðlega fjötra þar sem leyfis þurfi að biðja ef taka eigi upp viðskipti við þær þjóðir sem hagstæðust bjóða kjörin hverju sinni og gildir þá einu hvort kaupa skal eða selja.
Lítið er lunga.......
Ég man þann dag þegar gervöll íslenska þjóðin tárfelldi af gleði og himnarnir grétu með á Þingvöllum við Öxará.
Þar var ég staddur með foreldrum mínum og bróður 17. júní 1944.
Hvern hefði grunað þá.......?
Árni Gunnarsson, 11.2.2012 kl. 20:33
Sæll aftur Árni
Þeir sem vinna saman í stjórnmálaflokkum þurfa að hafa nokkuð svipaða lífssýn. Í það minnsta þurfa menn að vera sammála um í hvaða átt skal haldið í stærstu málaflokkunum.
Stærstu mál okkar tíma er hvort við ætlum að skipa okkur til borðs með sjálfstæðum þjóðum Evrópu eða hvort við ætlum okkur áfram hlutskipti einangraðrar, afskiptrar eyþjóðar sem lifir í þeim sælu heimi blekkingarinnar og telja sig vera fullvalda og sjálfstæða þjóð, þegar allir vita sem vilja vita, að við erum algjörlega háð nágrönnum okkar með allt sem heitir fullveldi og sjálfstæði.
Hverngi getur þjóð sem sinnir ekki öryggisgæslu í eigin efnahagslögsögu leyft sér að kalla sig sjálfstæða og fullvalda þjóð?
Hverngi getur þjóð sem þyggur stærstan hluta laga sinna frá Brussel, þjóð sem hefur ekki einu sinni rétt til að taka til máls þegar þessi lög eru sett, hvað þá atkvæðisrétt, leyft sér að kalla sig sjálfstæða og fullvalda þjóð?
Þeir sem vilja óbreytt ástand á Íslandi þeir kjósa að sjálfsögðu Sjálfstæðisflokkinn, Framsóknarflokkinn, Frjálslynda flokkinn, Hreyfinguna og Lillju Mósesdóttur.
Þeir sem vilja breytingar á Íslandi þeir kjósa flokka eins og Lýðfrelsisflokkinn, flokka sem styðja aðild að ESB og upptöku evru.
Þess vegna, Árni á Lýðfrelsisflokkurinn ekki samleið með Breiðfylkingunni því við í Lýðfrelsisflokknum viljum breytingar.
Friðrik Hansen Guðmundsson, 11.2.2012 kl. 20:35
Sæll Friðrik.
Þakka þér fyrir að árétta staðreyndir málsins. Stundum gætir misskilnings í fréttaflutningi en það er ekki við Lýðfrelsisflokkinn að sakast um neitt slíkt svo ég viti.
Það er virðingarvert að vera hreinn og beinn í því sem maður tekur sér fyrir hendur. Góðar stundir.
Guðmundur Ásgeirsson, 11.2.2012 kl. 20:57
Sæll enn á ný Árni
Árið 1262 gengu Íslendingar Noregskonungi á hönd. Árið 1350 varð Noregur og Ísland hluti af Danmörku. Ísland var svo hluti af Danmörku þar til 10. maí 1940 þegar Bretar hernáum Ísland. Ári síðar, 1941 tóku Bandaríkjamenn síðan við hernáminu á Íslandi og voru hér fram í apríl 2006. Rúmum tveim árum síðar og eftir ógnarstjórn Sjálfstæðisflokksins í efnahagsmálum í 18 ár þá fór íslenski seðlabankinn í þrot, landið varð gjaldþrota og Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn tók við stjórnartaumunum á Íslandi.
Frá árinu 1262 til dagsins í dag þá má með réttu segja að við Íslendingar höfum verið sjálfstæð fullvalda þjóð í eitt heilt ár, árið 2007.
Þegar þú varst staddur á Þingvöllum 1944 og fagnaðir "sjálfstæði" Íslands þá var Ísland hersetið land. Tilgangurinn með þessum gjörningi á Þingvöllum var einfaldur. Þegar sá fyrir enda stríðsins þá vildu Bretar og Bandaríkjamenn ekki að Danir yrðu stórveldi við norðanvert Atlantshafið. Að öllu óbreyttu hefðu Danir eftir stríð átt norður Atlatnshafið með Færeyjar, Ísland og Grænland sem hluti af danska konungsveldinu. Það var heimsmynd sem hvorki Bretum eða Bandaríkjamönnum þóknaðist. Þess vegna ákváðu Bretar og Bandaríkjamenn að Ísland skildi út úr danska ríkjasambandinu og Ísland hluti af yfirráðasvæði Bandaríkjanna.
Gerum okkur grein fyrir því að við höfum aldrei verið sjálfstæð fullvalda þjóð frá 1262, ef undan er skilið árið 2007. Við getum hins vegar öðlast sama fullveldi og sama sjálfstæði að þjóðir Evrópu ef við göngum í ESB.
Draumur þess fólks Árni, sem þú varst með á Þingvöllum 17. júni 1944 getur enn ræst og Ísland orðið sjálfstæð þjóð meðal sjálfstæðra þjóða Evrópu.
Friðrik Hansen Guðmundsson, 11.2.2012 kl. 21:28
Skrýtin afstaða til frjáls ríkis, og alveg ágætt að þið standið utan við Breiðfylkinguna. Ef þið viljið ESB innlimun, þá er um nokkra flokka að ræða til að styrkja, Samfylkinguna Bjarta framtíð og Guðbjart Guðbjartsson.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.2.2012 kl. 23:14
Árni, voru ambtmennirnir ekki skíthræddir hvað bændadurgarnir ætluðu að gera við snærið?
En eins og Ásthildur bendir á, er um margt að velja þegar kemur að ESB vinum. Ég er feginn að Breiðfylkingin, eða hvaða nafn verður á endanum valið, er ekki að láta sig dreyma um sjálfstæði í skugga Brussel. Gerir hana alveg afskaplega ákjósanlega.
Villi Asgeirsson, 12.2.2012 kl. 15:31
Segja má að ESB-sinnar séu að skríða úr holunum með framboðum sem kynnt hafa verið til sögunnar: Breiðfylkingin/Hreyfingin, Lilja Mósesdóttir og Guðmundur Steingrímsson. Lýðfrelsisflokkurinn virðist vera á svipuðum slóðum, því að varla dettur nokkrum heilvita manni í hug, að almenningur muni standast áróður Evrópusambandsins, sem er með kr.125 milljarða tilbúna til að snúa vilja landsmanna. Jafnvel þótt fram fari þjóðarkönnun (ekki þjóðaratkvæði) um að leggja Ísland undir Evrópusambandið, mun niðurstaða slíkrar könnunar ekki verða virt af Alþingismönnum.
Loftur Altice Þorsteinsson.
Samstaða þjóðar, 13.2.2012 kl. 13:03
Það er þarna stór munur á Loftur. Ég veit til dæmis að Breiðfylkingin er ekki ESB sinnuð, en þar eru innan um eins og í öllum flokkum fólk sem vill skoða málin, geri réð fyrir að sama sé með Samstöðu. En þessir aðilar eru EKKI tilbúnir að semja um hvað sem er eins og Samfylkingin og Steingrímur. Þetta verður stoppað af um leið og á að fara að opna pakkana um sjávarútvegsmálin og landbúnaðin. Ég treysti þessum tveimur framboðum fyllilega til að hafa skynsemina að leiðarljósi og forystufólk þessara flokka eru flestir andstæðir inngöngu í Evrópubandalagið. Þeir flokkar sem ber að varast í þessu er Björt Framtmíð og Lýðfrelsisflokkuinn ásamt Samfylkingunni og svo auðvitað leifunum af VG þ.e. Steingrímsarmurinn.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.2.2012 kl. 13:23
Flestir hafa áttað sig á, að Evrópusambandið er ekki það friðarbandalag sem forustumenn þess vilja að sé álitið. Upphaf þessarar valdablokkar var sameiginlegur vilji Franklands og Þýðskalands að hætta sjálfstæðum tilraunum til að leggja undir sig Evrópuskagann. Þess í stað ákváðu þessi ríki að ná yfirráðum sameiginlega. Evrópusambandið hefur sýnt að útþenslan, sem Arabarnir nefna Jihad, er megin markmiðið og að valdagræðgi ræður öllum aðgerðum þess. Til dæmis má rifja upp að sundrun Júgóslavíu var runnin undan rifjum ESB. Afskipti bandalagsins af ríkjum Norður-Afríku eru af sama meiði, enda líta Evrópubúar svo á að Norður-Afríka sé þeirra áhrifasvæði. Þetta viðurkenndu Bandaríkin formlega í borgarastríðinu í Líbíu.
Atlagan að Grikklandi þarf ekki að koma neinum á óvart, því að hernaðaráætlun tví-ríkjanna hefur lengi legið fyrir. Grikkir hafa nefnilega staðið gegn aðild Tyrklands að ESB, en í Litlu-Asíu eru 75 miljónir manna, sem Brussel vill endilega nota til hernaðar. Ætla Íslendingar að leggja áformum ESB-aðalsins lið, að hjálpa til við útþensluna ?
Loftur Altice Þorsteinsson.
Samstaða þjóðar, 13.2.2012 kl. 14:38
Það er rétt Ásthildur, að flest þetta fólk í Breiðfylkingunni og stuðningsmenn Lilju eru ekki ákafir ESB-sinnar. Hins vegar skipta skoðanir þessa fólks engu máli þegar fram á bjargbrúnina er komið, Íslendingar hrapa saman niður í hyldýpið.
Sú afsökun er í bezta falli barnaleg, að við þurfum að skoða í skjóðuna, til að sjá hvort sálina-hans-Jóns-míns er þar að finna. Afnám sjálfstæðs ríkis á Íslandi og afsal fullveldisréttinda almennings er ekki hægt að réttlæta með aðgangi að mörkuðum Evrópusambandsins. Með upptöku fastgengis undir stjórn myntráðs, getum við ná þeim gengisstöðugleika sem Evran getur ekki veitt fremur en Krónan. Í báðum tilvikum er um sýndarpening að ræða. Hvað er það sem ekki liggur ljóst fyrir, varðandi Evrópusambandið ?
Ef hægt er að treysta þessu fólki til andstöðu við ESB-innlimun, þegar litið verður í skjóðuna, hvers vegna hefur það ekki skynsemina að leiðarljósi núna straks ? Er ekki ástæða til að draga ályktanir af svikum VG og flestra þingmanna Sjálfstæðisflokks í Icesave-málinu ? Hrein og klár loforð hafa verið svikin af valda-aðlinum og moðsuðu eins og Breiðfylkingin framreiðir er þó miklu síður að treysta.
Loftur Altice Þorsteinsson.
Samstaða þjóðar, 13.2.2012 kl. 15:09
ég er algjörlega sammála þér Loftur með að ég vil láta draga þessa umsókn til baka og ég mun reyna að vinna að því að slíkt verði gert í Breiðfylkingunni. Ég hef sagt þeim að þau gangi EKKI til kosninga með þetta mál í jái eða neii. Það væru mistök að mínu mati. Að öðruleyti mun ég styðja þetta framboð.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.2.2012 kl. 15:25
Það er ekkert sjálfsagðara og ekkert eðlilegra en fólk hafi skiptar skoðanir á þessu máli.
Þetta er stærsta mál okkar tíma.
Ég horfi á Esjuna og sé ávalar hlíðarnar upp af Mógilsá og vel kleyft Þverfellshornið. Aðrir horfa á Kistufellið og telja Esjuna ókleyfa öllu venjulegu fólki.
Báðir hafa rétt fyrir sér.
Þess vegna snýst þetta mál um lífsýn og með hvaða augum menn horfa á þetta efnahagssamstarf þjóða Evrópu.
Og síðan þessa grundvallar spurningu:
Vilja menn breytingar á Íslandi eða vill fólk óbreytt ástand hér í efnahagsmálum næsta aldarfjórðunginn?
Friðrik Hansen Guðmundsson, 13.2.2012 kl. 20:37
Það er af og frá Friðrik, að aðild eða ekki aðild Íslands að ESB snúist um hvort menn vilja breytingar eða ekki. Það er einnig rangt að Evrópusambandið snúist bara um efnahagssamstarf. Öllum ætti að vera ljóst að í Evrópu er verið að mynda sjálfstætt ríki sem hæglega getur orðið alræðisríki að hætti Ráðstjórnarríkjanna. Grundvöllur hefur verið lagður að slíku ríki og aðgerðir ESB gagnvart Íslandi og Grikklandi benda til að valda-aðallinn í Evrópu stefni að þannig sköpunarverki.
Loftur Altice Þorsteinsson.
Samstaða þjóðar, 13.2.2012 kl. 21:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.